Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Qupperneq 3

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Qupperneq 3
F R ETT I R 3 Til greina kemur að Nýsköpunarsjóður náms- manna verði starfrxktur allt árið að sögn Dags B. Eggertssonar, umsjónarmanns sjóðsins. Sjóður- inn hefur þegar starfað fjögur sumur og á þeim tíma hefur honum tekist að ávinna sér gott orðspor. „Nýsköpunarsjóðurinn hefur hlotið viöurkenningu stjórn- valda og vísindasamfélagsins fyrir vinnu margra hundraða náms- manna sem starfað hafa á hans vegum,“ segir Dagur. „I’að er auðvelt að benda á verkefni sem hafa beina hagnýta þýðingu hjá fýrirtækjum og stofnunum og þess utan hafa rannsóknarniöurstöður lagt til þekkingu á nær öllum fræðasviðum.“ VETRARSTYRKIR LÆGRI Dagur segir að verið sé að huga að þeirri hugmynd í ráðuneytum að styrkja námsmenn til rannsókna veturlangt. Hann telur að sama fyrirkomulag verði á úthlutun vctrarstyrkja og á vali verkefna fyrir sumarið. „Alterslu verður þó að leggja á að sumar- og vetrarstarf- serni sjóðsins verði haldið aðskyldri. Styrktímabilin yrðu tvö en hvort tveggja yrði undir nafni Nýsköp- unarsjóðs. I framkomnum hugmyndum er gert ráð fyrir að vetrarstyrkir yrðu lægri, um þriðjungur eða fjórðungur mánaðarlauna sem greidd eru á sumrin. Vinnuframlag verður að sama skapi minna enda sé gert ráð fyrir að styrkþegi vinni að rannsóknum samhliða námi.“ Dagur telur að mjög margir muni njóta góðs af því að starfrækja sjóðinn árið um kring. Fræðimenn fái aðstoð við vinnu að rannsókna- verkefnum og fræðastörfum, stúdentar öðlist dýrmæta reynslu og ffamfærslueyri sem aftur rninnki lánsþörf þeirra hjá Lánasjóðnum. Loks þarf fjárveitingavaldið ekki að 160 stúdentar hlutu styrki úr Nýsköpunarsjóði námsmanna í sumar Nýsköpunarsj óður allt árið? Utvarpsþáttaröð um unyytfólk ojy rannsóknir hefst 15. október hafa áhyggjur enda hafi komið í ljós að sjóðurinn sé gríðarlega góð fjárfesting og ódýr kostur fyrir ríki og sveitarfélög í samanburði við atvinnubótavinnu skólafólks. Þessu til staðfestingar bendir Dagur á að meðalkostnaður sjóðsins fyrir greidd mánaðarlaun hafi í fyrra verið um 78 þúsund krónur. 160 FENGU LAUNASEÐIL I sumar störfuðu 160 stúdentar að 149 verkefnum sem Nýsköpunarsjóð- urinn styrkti, en 260 umsóknir bár- ust sjóðnum. Alls var 25 milljónum króna veitt í sjóðinn; 10 milljónir fengust á fjárlögum, borgin setti aðrar 10 milljónir í hann en í júní fékkst loks 5 milljóna króna aukafjárveiting úr ríkissjóði. I’ess utan hefur tekist að afla mótframlaga til að styrkja verkefni enn frekar fjárhagslega. Fjögur verkefni voru valin sem verðlaunaverkefni í Nýsköpunar- smiðjunni, samstarfsverkefni Tækniþróunar hf. og Nýsköpunar- sjóðs. Verkefni þessi voru styrkt með þrennum hætti; fjárframlagi, aðstoð við könnun á hag- kvæmni og mark- aðsmöguleikum og loks bauðst þeirn nemendum sem unnu að verk- efnunum ráðgjöf Utflutningsráðs. I haust mun dóm- nefnd endurmeta verkefnin fjögur og gera tillögu um hvaða verkefni skuli styrkt áfram. Verkefnin fjögur snerust um að hanna forrit til að bæta nýtingu hráefnis við fiskvinnslu, forrit til að hanna einingarhús í þrívídd, undirbúa að setja sögu Islands á geisladisk og finna aðferð til að búa til þrívíddarmyndir af landslagi í tölvum. SPURNING BLAÐSINS Nýnemar, hvernig var fyrsti kennslutíminn í háskólanum? ENGIN LOGNMOLLA 15. október n.k. hefst útvarps- þáttaröð um ungt fólk og vísindi í umsjón Dags B. Eggertssonar. I’ættirnir verða alls 12 og verða sendir út á sunnudögum og endur- teknir á miðvikudögum á gömlu gufúnni, Rás 1. Sjónum verður einkum beint að verkefnum sem Nýsköpunarsjóðurinn styrkti í sumar. En hvernig verða þættirnir uppbyggðir? „I’etta verða fyrst og fremst spennandi, skemmtilegir og alþýðlegir þættir og byggjast þeir að stofni til á viðtölum við stúdenta sem hafa verið að vinna að rann- sóknurn á grundvelli eigin hug- invnda. Viðtölum við háskólamenn sem eitthvað hafa til málanna að leggja um ungt fólk og vísindi verður fléttað saman við umfjöllun um nýsköpunarverkefni. Fannig verður fjallað um sjóðinn, Nýsköpunarsmiðjuna, framhalds- nám á Islandi og þá möguleika sem ungt fólk hefur til að tengjast rannsóknum og þróunarverk- efnum.“ Fættirnir eiga að sögn Dags að höfba til allra þeirra sem hafa áhuga á rannsóknum en líka þeirra sem hafa almennan áhuga á fræðandi útvarpsefni. „Fetta verður tekið hressilegum tökum, þetta verður engin lognmolla í þáttunum,“ bætir Dagur við. „Fað hefúr ákaf- lega margt spennandi verið að gerast í ólíkum verkefnum í sumar. Vonandi verða þættirnir til þess að áhugi manna aukist á Nýsköpunar- sjóðnum enn frekar.“ NÝSKÖPUN OG RANNSÓKNIR/22 Írís Elfa Þorkelsdóttir laganemi Athyffltsverður. Það eru nokkur viðbrijjði að koma í háskóla ojjfyrst er maður svolítið utanjjátta. Mér þótti aftur á móti Sijjurður [Líndal prófessor] skemmtilejjur. Sigurbjörn Gunnarsson Laganemi Hann reyndist ájj&tur ojj nokkuð fr&ðandi. Fyrir mijj eru það mikil umskipti að fara l&ra að nýju því að éjj ekki verið i námi í tvö ár. En það virkar velheima [á Ólafsftrði] að vera nú meðal menntamanna í háskólanum. Anna María Ólafsdóttir hjúkrunar- fræðinemi Hann var mjöjjfinn. Mér líst mjójj vel áfajjið. Þetta er ekkert erfiðara en éjj átti von á, éjj veit vel að þetta verður strembið. Éjj &tla að lejjjjja mijj allafram ojj komast áfram. 1. SEPTEMBER: Gæsaskyttur skutu folald rétt fyrir ofan Akranes. Lítið spurðist af gæsum. Afengi hækk- aði um 1%. 2. SEPTEMBER: Majórarnir Knut Gamst og Turid Gamst voru skipaðir yfirforingjar Hjálpræðis- hersins á Islandi. Fau eru norsk en ágæt engu að síður. Fagnaðar- samkoma á Akureyri og í Her- kastalanum. 3. SEPTEMBER: Bandarískur biskup fór til Akureyrar að boða kærleik og frið. Hann sagði í Morjjun- blaðinu að þorpsbúar væru dómharðir, lokaðir og leiðin- legir. 5. SEPTEMBER: Heimir Steinsson skrifaði grein í Morjjunblaðið um „Ut- varp og sjónvarp í almenningsþjónustu." Frágangur var til fyrirmyndar og lítið um stafsetningarvillur. Greinin var 2730 orð. 6. SEPTEMBER: Frakkar hófú kjarn- orkutilraunir sem eru algerlega skaðlausar umhverfinu - svo skaðlausar að þeir ákváðu að hafa þær á miðju Kyrrahafi, eins langt frá Frakklandi og hugsanlegt er. Akureyringar segja í Mojjjjanum að þeir séu alls ekki lokaðir, leiðinlegir og dómharðir. FRETTAYFIRLITIÐ Fyrir þá vandlátu sem aðeins lesa Stúdentablaðið 7. SEPTEMBER: Háskólakennarar stór- hækkuðu í launum og nálgast nú óðum meðallaun skúringakvenna. 8. SEPTEMBER: Björn Bjarnason lagði til að stofnaður yrði 1.000 ntanna her á Islandi og 27.000 manna varalið. Talið var að hann hefbi ákveðnar hugmyndir um hver verði skipaður varnarmálaráð- herra. Mussukommar endurskipu- lögðu áróðursherferð fyrir næstu Keflavíkurgöngu: Björn í herinn og herinn burt. 9. SEPTEMBER: Víkingasaga frumsýnd í Laugarásbíó. Ralph Muller, þýskt kyntröll sem kjörinn var herra Alheimur um árið, fór með aðalhlutverk. Svar Islendinga voru Ingibjörg Stefónsdóttir og Hinrik Olafsson. Fau báru einnig stóra ábyrgð á myndinni. 10. SEPTEMBER: Borgarráö ákvað að hækka strætisvagnafargjöld. Venjuleg fargjöld hækkuðu urn 20% en börn og gamalmenni þurfa í framtíöinni að borga helmingi hærri fargjöld. 1 ævinfyralegu m rökstuðningi fyrir hækkuninni sagöi Arthur Mortens að það væri fullt af ríku görnlu fólki. Sem er þá líklega fyrst og fremst fólkið sem ferðast með strætó. Hann sagði einnig að hækkunin væri nauðsynleg til að „bæta þjónustuna“. Fað var ekki tekið fram í hverju sú „bætta þjónusta“ átti að felast en svarið er FRETT MANAÐARINS Björn Bjarnason menntamálaráöherra kynnti hugmyndir um stofnun varnarliös. Heimir Steinsson og Hannes Hólmstein lýstu yfir stuðningi. Málið úr sögunni. líklega að farþegar fá aukið rými í strætó enda hafa unglingar og aldraðir ekki lengur efni á öðru en fara fótgangandi leiða sinna. 11. SEPTEMBER: Hannes Hólmsteinn segir í DV að hugmyndir Björns Bjarnasonar, tilvonandi varnar- málaráðherra Islands, um herliö séu ágætar. Um svipað leyti skrifar séra Heimir Steinsson í grein í Morjjunblaðinu þar sem hann segir að þetta sé „þörf hugverkja". Málið endanlega úr sögunni. 12. SEPTEMBER: Katrin Fjeldsted varpaði hinni knýjandi spurningu „Ihald eða vinstri?“ fram í fyrirsögn greinar í Morjjunblaðinu. Greinin fjallaði um húsfriðun. 13. SEPTEMBER: Ekið á kind á Reykja- nesbraut. Ásgeir Eliasson, fúlltrúi, vildi lítið tjá sig í fjölmiðlum enda rnálið á viðkvæmu stigi. 14. SEPTEMBER: Guömund- ur Jaki flutti þrumu- ræðu á baráttufúndi verkalýðsins fyrir 1 a u n a 1 æ k k u n u m annarra. Alltaf ferskur. 15. SEPTEMBER: Eggjum kastað í Stjórnarráðið. Lögreglan kom á staðinn og tók skýrslu af næturverðinum sem var heldur spældur. ló. SEPTEMBER: Kvennaráðstefnunni í Peking lokið. Kínverjar varpa öndinni léttar enda loksins lausir við Kristinu Ástgeirsdóttur sem ætlaði að koma mótmælum á framfæri „svo eftir væri tekið“. 17. SEPTEMBER: Viðtal við Ingibjörgu Pólmadóttur, heilbriðisráðherra, í Morjjunblaðinu. Ingbjörg er eini kvenmaðurinn í ríkisstjórn og stýrir stærsta ráöneytinu. Fað sem blaðamanni Morgunblaðsins lék helst forvitni á að vita var: „Eru ekki svona fjarvistir slæmar fyrir hjónabandið?“ og „hefúr þetta ekki breytt lífi fjölskyldunnar?“ 19. SEPTEMBER: Margrét Frímanns- dóttir og Steingrimur J. Sigfússon í viðtali aftan á Alþýðublaðinu. Fau eru að bjóða sig ffarn til formanns í Alþýðubandalaginu, af fúsum og frjálsum vilja. Kosningaslagurinn er svo æsispennandi að Alþýðu- blaðið er eini fjölmiðilinn sem nennir að skrifa urn hann. 21. SEPTEMBER: Tveir dauðir fiskar fúndust í Víðidalsá í Steingrímsfirði. Baksíðu- frétt í Morjjunblaðinu. 22. SEPTEMBER: Loksins, loksins! Frétt! Fað gerðist eitthvað í þessu landi: Gamall spjótsoddur og nokkrir kindakjálkar fundust í Fijótsdalshéraði. Stórfenglegur fornleifafúndur og allir fjölmiðlar á staðinn. Jafnvel er talið að eitt bein geti verið höfuðkúpa úr hundi. Sem auðvitað er tímamótafúndur. 23. SEPTEMBER: Víkverji skrifar um sultugerð í Morjjunblaðinu. Að öðru leyti lítið að ffétta. GBE

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.