Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Blaðsíða 9

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Blaðsíða 9
HASKOLINN 9 M O L A R Fróði skal félagið heita Sagnfræðinemar hafa loksins fengið nafn á félag sitt. I tuttugu ár sögu félagsins hafa ýmsar hugmyndir um nafngift verið settar fram en aldrei hafa sagnfræðinemar getað gert upp hug sinn. Nöfn eins og Espólín, Espólína eða Mómó hafa ekki fallið í kramið á allra síðustu misserum. A aukaaðalfundi Félags sagnfræðinema gerðust aftur á móti rnikil tíðindi. Þegar enginn átti von á var lögð fram lagabreytingatillaga um nafn félagsins. Félagsmenn tóku sig til, voru í góðu skapi og sam- þykktu að leggja slíka tillögu fram jafnvel þótt hún hafi ekkert verið kynnt. Ein þriggja tillagna gerði ráð fyrir að félagið yrði nefnt Fróði, líkast til með vísan í hina þekktu sögupersóna Ara og Sæmundar fróða. Onnur vísun var þessari kynslóð sagnfræðinema einnig góðu kunn. Hverjir muna ekki eftir Fróða, hinum alskeggjaða sögumanni frönsku teikni- myndaþáttanna Einu sinni var um sögu mannkyns. Sú persóna á án efa rnikinn þátt í því að hundruð íslenskra ungmenna fengu áhuga á sögu og sagnfræði. Formaður Fróða tilkynnti að þegar væri hafin undirbúningur að hönnun rnerkis fyrir félagið og að sjálfsögðu verður hinna aldni Fróði aðalsmerki félagsins. Stöð 1-3 Ákveðið hefúr verið að ný sjónvarpsstöð sem hefja mun útsendingar síðar í ár heiti hinu frumlega nafni Stöð 3. Fyrir eru að sjálfsögðu Stöð 2 og Ríkissjónvarpið sem æ oftar er kallað Stöð 1 í daglegu tali. I’etta er allt gott og blessað og í sjálfú sér ákaflega þægilegt að þurfa ekki að leggja á minnið misgáfuleg nöfn á mismerkilegum sjónvarps- stöðvum. Hitt er annað mál að frumleiki fer fyrir lítið og engin tilraun er gerð til að gefa stöðinni fallegt íslenskt nafn. I’ó má ekki gleyma Sýn og Omega en þær líöa væntanlega fýrir þessi óþjálu nöfh og hafa þess vegna ekki náð hylli landsmanna. Islensk dagblöð bera aftur á móti flest góð og gild nöfn, s.s. Morgunblaðið, Dagblaðið, Tíminn, Alþýðu- blaðið og Morgunpósturinn. Aður fyrr gátu menn lesið Þjóðviljann heitinn, Isafold, Spegilinn og þannig má lengi telja. Ef blaðaútgefendur hefðu verið jafn frumlegir og eig- endur sjónvarpsstöðva nú á dögum héti Morgunblaðið Blað 1, Alþýðublaðið Blað 2, Tíminn Blað 3, Dagblaðið Blað 4 og Morgunpósturinn Blað 5. Hvernig líst ykkur á þessi slagorð: Blað 1 - blað allra landsmanna eöa Blað 4 - frjálst og óháð! SPURT & SVARAÐ Sigurður Steinþórsson, prófessor í jarófræói Er hœtta á pví að jjeisla rirk efni berist í sjó við kjarn orkutilraunasvadi Frakka við Mururoa-eyjar? „Mururoa-eyjar eru kóralrif sem myndast hafa ofan á gömlum eldfjöllum. Frakkar gera tilraunir sínar í djúpum holum sem þeir hafa borað niður á rifið. Hvort tilraunirnar geti verið skaðlegar vistkerfinu í Kyrrahafi, skal ég ekki dæma um. Frá náttúrufræðilegu sjónarmiði hef ég ekki annað en þeirra eigin orð fyrir því aö af tilraununum hljótrist engin skaðleg geislun. Hins vegar má spyrja, fýrst svo er, hvers vegna Frakkar geri ekki tilraunir sínar í Frakklandi eða á Korsíku. Eg lít svo á þetta mál sé fýrst og fremst siðferöislegt álitamál. I’annig tel ég að Fransmenn hegði sér eins og skepnur í málinu en Frakkar hafa lengi hagað sér eins og nýlendukúgarar 19. aldar í þessum heimshluta. Fyrst umhverfisgeislun ber á góma má nefna rniklu nærtækara mál frá okkar sjónarmiði, kjarnorkuhreinsistöðvarnar í Sellafield og Dounray í Bretlandi. Af þeirra völdunt er geislun í írlandshafi 600 Becquerel/m3, miðað viö2-3 bc/m3 við suðurströnd Irlands. Sjórinn frá Irlandshafi streymir í Norðursjó, norður með vesturströnd Noregs og loks með austurströnd Grænlands. Kunnugir segja að hægt sé að skilgreina A-Grænlandsstrauminn með Geigerteljara. I’að þarf litla spádómsgáfú til að sjá það fyrir að innan tíðar mengist Islandsstrendur líka af þessum völdum og hættulegt veröi að leggja sæfang til munns.“ >g avoXtir iianclliægauu tuaJiúöum Sá væqir sem mandari'nu hefur meiri Ástaraldin í sátt oq sítrónu Sítrónu sæll oq qlaður Bananavinur með vanillu

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.