Stúdentablaðið - 01.09.1995, Side 12
12
V I Ð T A L I Ð
Ui
'ndanfarna mánuði hefur Jón
Ormur Halldórsson, dósent í
stjórnmálafræði í Háskóla
Islands, verið að vinna bók um
Sameinuðu þjóðirnar. Bókin kemur út á
næstu vikum. Stúdentablaðið fór á hans
fund og forvitnaðist um innihald
bókarinnar.
„Eg reyni að líta ekki á Sameinuðu
þjóðirnar út frá íslensku sjónarhorni.
Pólitísk óskhyggja hefirr ráðið miklu um
hvernig litið hefúr verið á þær hér á landi,
út ffá einhverjum íslenskum vinkli. Þannig
kemur fram þröng og skrýtin mynd sem er
úr samhengi við alþjóðlegan veruleika.
I’etta reyni ég að forðast sem gæti gert það
að verkum að mörgum finnist ég fúll
neikvæður í garð smáþjóöa eins og Islands.
Ég tel raunar að það sé eitt af aðal-
vandamálum Sameinuðu þjóðanna hve
mikill fjöldi af dvergríkjum og örríkjum eru
innan samtakanna, ríki á borð við Island.
Það veldur því, ásamt öðru, að enginn
tekur mark á ályktunum þeirra. Ég held að
það gagnist ekki Islendingum að vera með
pólitíska óskhyggju í þessum efnum. Ég
reyni að horfa á málin út frá sammannlegu
sjónarhorni og spyr hvers vegna Sameinuðu
þjóðirnar séu svona valdalausar og
áhrifalitlar, hvers vegna flestir fræðimenn
séu á þeirri skoðun að í heildina tekið hafi
Sameinuðu þjóðunum mistekist flest af því
sem menn heföu viljað aö þær gerðu.“
SÞ og NATO taka engar
ókvaröanir í Bosníu
„Ég reyni að líta á alþjóðakerfið og þau
lögmál sem þar ráða. Sameinuðu þjóðirnar
eru lítil tilraun til stofnanabindingar innan
alþjóðakerfisins en ekki uppspretta valda.
SÞ ráðast algerlega af umhverfinu þar sem
ekkert vald er í stofnuninni sjálfri. Ég held
að það sé þarft að skýra þetta vegna þess að
í deilumálum eins og í Bosníu er sagt
daglega frá því að Sameinuðu þjóðirnar taki
ákvarðanir um hitt og þetta eða standi í
hernaðaraðgerðum. Sannleikurinn er sá að
Sameinuðu þjóðirnar hafa aldrei tekið
ákvörðun í Bosníumálinu, NATO hefúr
aldrei tekið ákvörðun í því; engin
alþjóðasamtök hafa átt þátt í að taka
ákvörðun um neitt sem skiptir máli í
Bosníu. Það sem gerist er að nokkur
stórveldi sem hafa neitunarvald í
öryggisráðinu nota stundum Sameinuðu
þjóðirnar, stundum Evrópusambandiö og
stundum NATO sem samráðsvettvang sín á
milli. Að tala um að SI> eða NATO taki
ákvarðanir um þetta og hitt gefur því
kolranga mynd um hvaða möguleika
alþjóðasamstarf getur gefið, hvað það er í
eðli sínu. Það er eiginlega ekkert
valdaframsal til þessara stofnana. Þaö er
enginn maður innan NATO sem tekur
mikilvægar ákvarðanir um hvað eigi að gera
í Bosníu. Það er enginn starfsmaður innan
SÞ sem hefúr eitt eða neitt
að segja um hvað
Sameinuðu þjóðirnar gera í
Bosníu. Hvað þá embættis-
maður í Evrópusam-
bandinu."
/
Island
hefur engin áhrif á
alþj óðavettvangi
Jón Ormur Halldórsson,
dósent í stjórnmálafmdi, vinnur aó því aó
skrifa bók um Sameinuðu þjóðirnar. Hann
telur þar valdalausa stofnun sem lúti vilja
stórvelda o£f vanmáttur þeirra hafi komið
berlejya í Ijós í átökunum á Balkanskaga.
Gauti B. Eggertsson 0£f Kristján Guy Burgess
hittu hann að máli.
... eri£jin
alþjóðasamtök
hafa átt þátt í aö
taka ákvöröun
Hvað rœður því hvaða
samstarfsvettvaiig ríkin velja ?
um neitt sem
„Þau fimm ríki sem skipta
máli varðandi Bosníudeiluna
eru Bretland, Frakkland,
Rússland, Þýskaland og Bandaríkin. Hvaða
hattur er notaður, hvaöa hatt menn setja
upp, hver gerir loftárás, hver gerir ekki
loftárás, hver tekur þessa stefnuna eða hina,
allt þetta fer eftir því hverjar af þessum
fimm þjóðum cru á hverjum stað. Síöan
hafa þessi fimm komið sér saman um
fimmveldahópinn til þess að hafa áhrif á
deiluna. Það hefur ekki verið mikið í
fréttum en Italía gerir allt til þess að komast
skiptir máli í
Bosníu.“
inn í þennan hóp. Þeir hafa jafnvel reynt að
setja reglur um hvaða flugvélar megi taka á
loft frá Ítalíu, bara til þess aö komast inn í
þennan fimmveldahóp. Þeir segja
einfaldlega: Bosníumálið er ekki mál
Evrópusambandsins, Sameinuðu þjóðanna
eða NATO, þetta er mál fimmveldanna og
við viljum vera sjötta veldið í þeim hópi.
Þetta hljómar einkennilega fyrir íslendinga
og ég held aö það gefi fólki ranga hugmynd
af því hvernig hlutir ganga fyrir sig í
alþjóðakerfinu."
Hugsum ekki um annað
en okkur sjálf
Hafa Islendinjjar haft einhver áhrif á
alþjóðamál? Efsvo ergetum við það?
„Island hefur aldrei haft nein áhrif í
alþjóðamálum sem máli skipta. Ég held að
það séu ekki nokkur dæmi um það. Við
höfúm hins vegar getað haft áhrif á einhver
þau mál sem snúa að okkur og höfúm varið
okkar hagsmuni. En við
höfúm ekki nein áhrif á mál
sem snúa að heiminum í
heild. Svarið við því hvort
við getum það er einfalt.
Nei! Við getum eins spurt
hvort Barbados geti haft
áhrif í alþjóðamálum? Getur
Fiji gert það? Getur Malta
gert það? Ef við komust að
þeirri niðurstöðu aö Malta
geti ekki haft áhrif í
alþjóðamálum eða Fiji eða
Barbados og að við séum ekki tilbúin til að
líta til þessara ríkja þegar kemur að forystu
í alþjóðamálum, þá verðum við að svara
eins með Island.
Island hefúr ekki meiri möguleika en þessi
lönd til að hafa áhrif. Það lítur enginn í
veröldinni hingað um forystu, hvað sem
mönnum dettur í huga að hjala um þau
efni. Af hverju ættu þeir líka að gera það?
Hvaða þekkingu höfum við á
alþjóðamálum sem hugsum ekki um annað
en okkur sjálf?“
Islendinjfar hafa reynt að hafa áhrif Við
vorum fyrst til að viðurkenna sjálfsuði
Litháens og með þeim fyrstu að vtðurkenna
Króatíu ?
„Ég held að það hafi ekki skipt neinu máli.
Ég held að menn hafi einfaldlega gert þetta
til þess að reyna að vera með, komast á
blað. Það sem skipti máli um Króatíu var
auðvitað viðurkenning Þýskalands og ESB.
Það sem skipti máli fýrir Eystrasaltsríkin var
viðurkenning Bandaríkjanna og ESB. Það
getur þó vel verið að í einn dag hafi það
haft einhverja jákvæð sálræn áhrif á
Eystrasaltslöndin að ísland hafi viðurkennt
þau en það hefur ekki haft nein áhrif á
hvenær Bretar, Frakkar, Þjóðverjar eða
Bandaríkjamenn gerðu það, svo að ég tali
ekki um Rússa. Það er einna
helst að það hafi verið tekið
eftir þessu á Islandi þannig
að við höfúm ekki veitt
neina forystu.
Ég held að þetta hafi ekki
haft nokkra þýðingu og
menn séu að blekkja sjálfa
sig með því að halda að þeir
geti haft áhrif á þennan
hátt. Það má líka spyrja
hvort það sé eitthvert
réttlæti í því aó Island hafi
áhrif á heimsmálin, þjóð
sem er svona örlítil.
Það tekur enginn maður
allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna alvarlega aðallega vegna þess að
hver þjóð hefúr þar eitt atkvæói. Ég held að
Islendingar séu á móti því að smáríki hafi
meiri áhrif í heimsmálum, þeir vilja bara
hafa áhrif sjálfir. Þetta er ekki spurning um
vilja því að alþjóðamál lúta ákveðnum
lögmálum þar sem áhrif og völd skapast
fyrst og fremst út frá stærð hagkerfa,
umfangi utanríkisviðskipta, tækniþekkingu
og því sem er mikilvægast, her. Við höfúm
ekkert af þessu.“
Skelfilegt skref
a6 viðurkenna Króatíu
„Ég held að það hafi verið rétt að
viðurkenna Eystrasaltsríkin, þetta voru
hernumin lönd, en það var mjög rangt að
viðurkenna Króatíu. Þetta var í raun
skelfilegt skref. Ekki að viðurkenning
Islands hafi skipt neinu máli en um
viðurkenningu Þýskalands og ESB er óhætt
að segja að það sé samstaða meðal
fræðimanna um að hún hafi verið ótímabær.
Ég hef ekki heyrt nein skynsamleg mótrök
gegn því. Ekkert var rætt um stöðu
serbneska minnihlutans í landinu eða
tryggingu á tilveru þeirra og ég held að
uppreisn Serba í Króatíu hafi verið eðlileg
afleiðing af hegðun Króata. Það má ekki
gleyma því að það eru einungis 50 ár síðan
að Króatar drápu milljón Serba í seinni
heimsstyrjöldinni með hjálp Þjóðverja og
nú eru Þjóðverjar fyrstir til að viðurkenna
Króatíu. Krafa um viðurkenningu Króatíu
var því afar óheppileg á allan hátt. Það átti
að stefna að sjálfstæði Króatíu og Bosníu en
það þurfti að leysa ýmis mál áður.“
Þú sejjir að íslendingar hafi engin áhrif eigi
jafnvel ekki að hafa áhrif og jjeti það ekki
heldur. Hvert er þá hlutverk Islendinga á
alþjóðavettvantji ?
„Ég held að það sé mikilvægast að átta sig
á því að hlutverk Islendinga á alþjóða-
vettvangi er mjög lítíð. Það er líklegast aö
þeir geti haft einhver áhrif ef menn ganga
út frá því að það sé eitthvað afar lítið og
takmarkað og vinni samkvæmt því. Menn
einbeiti sér að því að reyna að hafa áhrif á
eitthvað sem er þess eðlis að það skipti
okkur miklu máli vegna hagsmuna okkar
eða út frá hugmyndum okkar um rétt og
rangt. En menn verða líka að skilja að
enginn árangur næst nema með vinnu. Ég
held að hér heima séu menn sífellt að berja
sér á brjóst og vilji efna til flugeldasýninga.
Þeir ímynda sér að það sé hægt, án þess að
hafa mikið fyrir því að hafa mikil áhrif
hingað og þangað í krafti þess að vera tíl
eða bara af því aö við erum svo ofsalega góð
og sniðug. Island er bara allsendis óþekkt í
heiminum rétt eins og Trinidad og Tuvalu
eru óþekkt á Islandi. Þegar ég er að ferðast
í suðaustur-Asíu lendi ég stundum í
vandræðum á landamærum því að
Iandamæraverðirnir trúa því ekki að Island
sé til! Af hverju ættum við að geta haft áhrif
bara af því að okkur dettur það í hug? Hvað
höfúm við gert þar sem við höfúm haft
tækifæri? Lúxemborg veitir 12-15 sinnum
meiri þróunaraðstoð en Island og dvergríki
sem við þekkjum ekki hafa meiri alþjóðleg
umsvif. Höfum við sýnt fordæmi sem við
viljum aö aðrir fari eftir? Við
setjum minni fjármuni í
þróunaraðstoð en nokkurt
annað sæmilega statt ríki í
heiminum og höfum gert
Island að lokaðasta landi í
veröldinni fyrir flóttamenn.
Við getum haft einhver áhrif
með mikilli vinnu og
þekkingu en það gerist
hljóðlega með þekk-
ingaröflun, einbeitingu og
mikilli vinnu en ekki með
flugeldasýningu. Vinnan fer
Örlítil. “ hins vegar ekki fram og
þekkingunni er ekki safnað.
Islendingar hafa yfirleitt ekki
áhuga á neinu nema Island eða Islendingar
séu einhversstaðar inni í myndinni. En ef
við hugsum þannig erum viö hreinlega ekki
þess virði og ekki þess umkomin að hafa
áhrif. Fólk sem heftir einungis áhuga á
völdum er hættulegt í pólitík. Eins á fólk
sem hugsar ekki um annað en sjáift sig ekki
að hafa áhrif á alþjóðamál. Viö getum hins
vegar hvert um sig, sem menn, unnið og
haft einhver áhrif á smá mál. Við þurfúm
ekki sérstakt ríkisfang til þess.“
“Það má líka
spyrja hvort það sé
eitthvað réttUti í
því að ísland hafi
áhrif á
heimsmálin, þjóð
sem er svona