Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Page 14

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Page 14
14 HASKOLINN Utgefandi: Stúdentaráð Háskóla Islands Ritstjóri og ábyrgSarmaóur: Þórmundur Jónatansson Framkvæmdastjóri: Sæmundur Nor&fjörð Ritstjórn: Dalla Olafsdóttir, Gauti B. Eggertsson, Jón Ottar Birgisson, Kristján Guy Burgess og Sigurjón Pálsson Ljósmyndari: Sigurjón R. Sigurjónsson, Teikningar á forsiðu og mióopnu: Þorri Hringsson, Prófarkalestur: Ármann Jakobsson, Umbrot og hönnun: Reykvisk útgáfa, Filmuvinnsla og prentun: Isafoldarprentsmiðja, Höfundar efnis: Auðunn Atlason, Ármann Jakobsson, Björn Sigurjónsson, Dagfinnur Sveinbjörnsson, Egill Arnarson, Flóki Halldórsson, Helga Dögg Björgvinsdóttir, Pétur Hrafn Árnason, Sigríður Hagalín, Skarphéðinn Guðmundsson, Valgeir Valdimarsson, Orn Ulfar Sævarsson. Með blaðinu fylgir kynningarbæklingur frá Stúdentaráði Háskóla Islands og auglýsingabæklingur fró Mál og menningu. Skrifstofa Stúdentablaðsins er opin virka daga frá kl. 9-17 Sími: 562-1080, Bréfasími: 562-1040, Netfang: thormund@rhi.hi.is L E I Ð A R I ÚRBÆTUR STRAX! Eitt mesta áhyggjuefni ungs fólks í námi hin síðustu ár hefur verið að leita leiða til að koma þaki yfir höfuðið. I’að er hreint ekki auðvelt aö kaupa íbúð og vera í námi á sama tíma. Námsmenn hafa fá tækifæri til að leggja fyrir og þegar úr námi er komið bætast námslánaskuldir við. Húsnæðisstofnun hefúr að ósk Stúdentaráðs metið hverjar heimilistekjur stúdenta þurfa að vera til að standast greiðslumat í húsnæðiskerfinu. Niðurstöður þessarar athugunar eru sláandi skýr skilaboð um að rækilega verði að endurskoða lánasjóðskerfiö og samhæfa það húsnæðiskerfinu. Það er óviðunandi ástand að ungt fólk standi frammi fyrir því að velja á milli þess að fara í nám og koma þaki yfir höfúðið. Það er ótækt að námsmenn þurfi að vera hátekjumenn til aö mennta sig og eignast húsnæði. Tölurnar sýna aó stúdentar standa ekki jafnir að vígi, jafnrétti til náms er ógnað við núverandi aðstæöur. Stúdentablaóið telur óhjákvæmilegt að endurgreiðsluhlutfall námslána verði lækkað og endurgreiðslukröfúr verði samræmdar í húsnæðiskerfinu og námslánakerfinu. STERKUR MÁLSVARI Stúdentablaóió er sérlega áhugaveróur fjölmiðill. Lesenda- hópurinn er afmarkaður en kröfúr lesenda ólíkar. Blaðiö verður að vera í senn upplýsandi og upplyftandi, fræöandi og fjölbreytt. Þetta markmið næst ekki nema á einn veg. Stúdentar verða að lesa blaðið, gagnrýna efni þess og koma með hugmyndir. Þátttakendur í félagslífi veróa að eiga frumkvæói að því að blað allra stúdenta endurspegli félagslíf í skólanum. I’átttakendur í stúdentapólitík veröa að kynna sig á síðum Stúdentablaðsins og taka þátt í mótun blaðsins af hcilum huga. Stúdentaráð Háskóla Islands gefur blaóið út og tryggir aö stúdentar eigi sér sterkan fjölmiðil. Það er hlutverk ritstjóra að tryggja aö öllum sé gert jafnt undir höfði. Þetta er inntak sannrar en áhrifaríkrar blaðamennsku og eingöngu til þess fallið aó færa lesandann nær kjarna málsins. Nýráðinn ritstjóri hefúr þetta aó leióarljósi í ritstjórnarstefnu sinni og væntir góðs af samstarfi við stúdenta í vetur. MIKIL VONBRIGÐI Þegar Stúdentablaðið kemur heim tíl stúdenta hafa þeir þegar fengið í hendur blað Vöku, þeirrar fylkingar sem er í minnihluta í Stúdentaráði. Þar er lýst yfir því að ráðning ritstjóra Stúdentablaðsins sé pólitísk og gefió er í skyn aö ritstjóri veröi ekki hlutlaus í efnistökum sínum. Þessi gagnrýni er ritstjóra Stúdentablaðsins mikil vonbrigði í upphafi útgáfiiárs. Hann hefur ekki fengió tækifæri til að sýna að hann sé traustsins verður. Stúdentar hafa hvorki fengið tækifæri til að skoða blaðið né myndað sér skoóun á efni þess. Það er ekkert leyndarmái að ritstjóri þessa blaðs var kosningastjóri Röskvu í fyrra, þeirrar fylkingar sem hefúr meirihluta í Stúdentaráöi. Ekki er þaö heldur launungarmál að ritstjóri Stúdentablaðsins hefur starfað sem blaóamaður og hlotiö reynslu af blaðamennsku. Hann hefúr í því starfi fylgt siðareglum blaðamanna. Ætlar hann aó engin breytíng verði þar á. Stúdentablaóið á að vera ábyrgur miðill og er þannig í engu frábrugðinn öðrum ábyrgum fréttamiðlum. Meó þátttöku stúdenta úr öllum deildum, burtséð frá bakgrunni þeirra eða hugsjónum, verður Stúdentablaðið sterkur miðill. Þegar best lætur hefúr Stúdentablaöið mótandi áhrif á samfélagið. Þórmundur Jónatansson Háskólakennarar samþykkja nýjan kjarasamninjy semjyildir til loka nœsta árs Margir vildu láta reyna á verkfall Háskólaráð lýsir megnri óán&gju með samninginn ÞÓRMUNDUR JÓNATANSSON SKRIFAR Háskólakennarar sam- þykktu nýlega samning sem tryggir þeim að meðaltali 11,4% kauphxkkun. Engu að síður ríkir mikil óánægja meðal háskólakennara með kjaramál þeirra. Svo virðist sem æ fleiri geti hugsað sér að hefja harða kjarabaráttu, jafnvel boða til verkfalls. Af því verður þó ekki fyrr en í fyrsta lagi um önnur áramót. Prófessorar telja samninginn ómögulegan og vara við þeirri stefnu að halda launum niðri í háskólasamfélaginu. Háskólaráð hefur sent frá sér harðorða ályktun en í henni er megnri óánægju lýst með gerðan kjarasamning. Bjarni Guðnason prófessor gagnrýndi stjórnvöld harðlega á almennum félagsfundi háskólakennara um daginn en hann segir stjórnvöld gera lítið úr rannsóknum oy menntun og stefna menningarlífi Islendinga í hættu. PRÓFESSORAR FÁ MINNST Meirihluti háskólakennara sam- þykkti á almennum félagsfúndi fýrr í mánuðinum kjarasamning Félags háskólakennarara og ríkisins en hann tryggir dósentum og lekt- orum þokkalegar kjarabætur en prófessorum minni launahækkanir. Að mati samninganefndar háskóla- kennara má gróflega áætla að meðalhækkun til félagsmanna sé um 11,4%. A fúndinn mætti hálft „Kjaraþróunin hjá háskóla- kennurum hefur verið óþolandi hin síðustu ár,“ sagði Jónatan Þórmundsson prófessor á fúndi Félags háskólakennara. Jónatan fúllyrti að jafnvel þótt ýmislegt Kjaraþróunin er óþolandi - segir Jónatan Þórmundsson prófessor hefði áunnist í nýgerðum kjara- samningi séu kjörin enn mjög rýr. „Aður fyrr höfbu prófessorar jafnhá laun og dómarar og um tíma hærri. Nú er aftur á móti svo komið að við erum rétt hálf- drættingar á við dómarana.“ Hann taldi þó ekki eingöngu við stjórnvöld að sakast, háskóla- kennarar hefðu sjálfir verið allt of lengi áhugalausir og aðgerðalidir um kjör sín. „Iðulega hefúr skort samheldni og einhug í kjarabaráttu háskólakennara," sagði Jónatan. Hann benti á að það hefði verið slys að setja prófessora ekki undir kjaradóm þegar þeim hefði boðist það fýrir nokkrum árum. Prófessorinn nefndi til söguna eina skýringu á kjarastöðnun stéttar- innar. Hún væri sú aö stéttin væri allt of þæg og að háskólakennarar treystu sér ekki í harðar aðgerðir, s.s. verkfallsaðgerðir. Sjálfúr hefbi hann verið einn hinna þægu en nú hefði hann skipt um skoðun. Hugsanlega væri eina leiðin til að ná ffam kjarabótum sú að boða til verkfalls. „Ég er tilbúinn í aðgerðir en við höfúm að sjálfsögðu vonað að ekki þurfi að grípa til slíkra ör- þrifaráða.“ Tortrygginn á kennaraverkföll - segir Gísli Gunnarsson dósent „Það er mjög auðvelt að vera óánægður með þennan samning,“ sagöi Gísli Gunnarsson dósent á fúndinum. „Ég er sjálfúr mjög óánægður með hann. Aftur á móti er ég mjög tortrygginn á verkföll sem bitna á þriðja aðila. Sér í lagi er ég tortrygginn á kennaraverkföll. Jafn hundóánægður og ég er greiði ég atkvæði með samningnum." Gísli nefndi fern rök gegn því að fara í verkfall en flestir virtust ganga út frá því að óhjákvæmilegt væri aö boða verkfall, færi svo að samn- ingurinn yrði felldur í atkvæða- greiðslu á félagsfúndinum. Hann sagðist vera á móti verkföllum sem bitnuðu á þriðja aðila, þ.e. nem- endum. Hann sagði háskóla- kennara hafa sérstöðu í kjaramálum sínum að því leyti að þeir geta sótt um styrki úr ýmsum sjóðum Háskólans. Þá taldi hann háskóla- kennara eiga eftir að gera hreint fýrir sínum dyrum vegna fram- kvæmdar á úthlutunum úr tiltekn- um sjóðum, s.s. vinnumatssjóði. Loks sagði Gísli háskólakennara vera sundurleitan hóp sem tæpast gæti farið í verkfall. Þá benti hann á „Ég styð ekki svona aumingja- samning,“ sagði Bjarni Guðnason prófessor á sama fúndi. „Ég er orðinn langþreyttur á þeirri félagslegu kúgun sem felst í samningnum." Bjarni kvaðst t;aka undir orð Jónatans og sagði að launamál háskólakennara vörðuðu ekki eingöngu hvern mann fýrir sig heldur Háskólann sem stofnun og ffamtíðarhorfúr hans. Hann taldi að svo virtíst sem stjórnvöld vilji að sumir háskólakennarar ynnu utan Háskólans samhliða kennslu. „Hvernig fer sá maður í verkfall sem lítur á starf sitt sem auka- starf?,“ spurði Gísli. lítið sem ekkert stuðla að eflingu rannsókna og menntunar. „Það er skrýtið að ekki rnegi hækka grunn- laun prófessora. Það er ekkert svigrúm til bættra kjara nema að „beita brögðum“ og sækja í sjóði Háskólans." Bjarni lýsti ennfremur yfir því að háskólakennarar ættu ekki aðeins að sporna gegn svona samningi heldur vísa yfirvöldum rétta leið til að hlúa að menningu og menntun á Islandi. Styð ekki svona aumingj asamning - segir Bjarni Gubnason prófessor

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.