Stúdentablaðið - 01.09.1995, Qupperneq 15
HÁSKÓLINN
15
annað hundrað háskólakennara og
starfsmanna; samninginn sam-
þykktu 99, 48 voru á móti en 8
sátu hjá. Rúmlega 600 kennarar,
sérfræðingar og starfsmenn eru í
félaginu.
Laun háskólakennara
hækka mismikið á
samningstimabilinu
sem rennur út í lok
næsta árs. Prófessorar
fá minnst, rúmlega 6%
hækkun en prófessorar
með lágar heildar-
tekjur hjá Háskólanum
sem hafa ekki
verulegar tekjur utan
skólans eiga þess kost
að sækja um heimild til
að inna af hendi vinnu
umfram það sem þegar er í innifalið
í vinnuskyldu þeirra. Þessi vinna
verður greidd sent yfirvinna.
Dósentar, lektorar, fræðimenn,
vísindamenn og sérfræðingar fá
meiri en mismikla hækkun, allt frá
9,38% hækkun upp í 19,52%.
ÓÁNÆGÐIR SAMÞYKKJA
Margir þeirra sem samþykktu voru
eftir sem áður mjög óáægðir með
samninginn en völdu heldur að
samþykkja en binda samningamál í
hnút. Formaður Félags
háskólakennara, Guðvarður Már
Gunnlaugsson, fúllyrti að ekki yrði
gengið lengra í þessari samninga-
lotu og lýsti yfir því að yrðu
samningurinn felldur kæmi fátt
annað til greina en að boða til
verkfalls. Hann taldi að
samningurinn væri nokkuð góður
rniðað við forsendur og samninga-
aðferð. „Við getum ekki kreist
nieira með þessari aðferð,“ sagði
Guðvarður á fúndinum.
Ekki fór framhjá neinum fúndar-
manni að prófessorar voru hvað
óánægðastir með samninginn enda
fengu þeir eingöngu lægstu pró-
sentuhækkunina en engar launa-
flokkahækkanir. Guðvarður Már
taldi mjög slæmt að ekki hafi tekist
að búa til nýja
launaflokka og hækka
þannig hæstu launin.
Þrátt fýrir góðan
ásetning félagsins hafi
félagar þeirra í
samninganefnd
ríkisins ekki viljað
heyra á slíkt minnst.
Eins og áður segir
samþykktu 2/3
fundarmanna samn-
inginn en 48 greiddu
atkvæði gegn
honum. Af samsetningu fúndar-
manna má draga þá ályktun að
dósentar og lektorar og ýmsir
starfsmenn hafi samþykkt samn-
inginn; hugsanlega af ótta við að
fórna því sem þegar væri í höfn.
Prófessorar, sent höfðu nær engu
að tapa, hafi á hinn bóginn greitt
atkvæði gegn samningnum.
Dæmi um launahækkanir
háskólakennara
Prófessor í efsta launaþrepi
Dósent í efsta launaþrepi
Byrjunarlaun lektors
Fyrír Eftir
143.353 152.231 (m.v. 1.1.96)
116.559 135.255 (m.v. 1.1.96)
81.012 94.006 (m.v. 1.8.96)
Hvað veit almenningurr
Hver telur þú vera <grunnlaun prófessors í hœsta launaflokki við Háskóla
íslands? Hver erugrunnlaun lektors í Ujjsta launaþrepi háskólakennara?
Eyjólfur Pálsson húsgagnaarkitekt
Eg myndi halda
að prófessorar
hefbu 150 þús-
und kr. á mánuði
sem ég tel vera
allt of lágt til að
halda góðu fólki í
skólanum. Lekt-
orar hafa líklega
um 100-110 þúsund kr..
Hólmfríður Rós Eyjólfsdóttir
menntaskólanemi
Uuhm ... pró-
fessorar ... þeir fá
um 80-100 þús-
und kr. á mánuði.
Lektorar, ég hef
ekki hugmynd um
þá, ætli þeir fái
ekki um 70
þúsund kr.?
Anna S. Wessmann, atvinnulaus
Bíddu nú við!
Prófessorar hafa
150 þúsund,
lektorar tæplega
100 þúsund. Það
er einfaldlega allt
of lágt.
Börkur Baldvinsson kvikmynda-
gerðarmaður
Prófessorar fá um
120 þúsund kr.
og lektorar 150
þúsund kall. Nei,
og þó, hafðu
þetta öfúgt.
■J>| 9 0 0 7 6 60 •J>l ieS'59L :j°as 11 ? y
V I Ð T A L
Verkfall
óumflýjanlegt fyrr eða síðar
Guðvarður Már Gunnlaugsson, formaður Fclags háskólakennara, stóð í ströngu
í samninjjaviðr&bum við ríkið fyrr í haust. Stúdentablaðið r&ddi við hann um
kjaramálin, nýjjerðan samning, verkfóll ojj atjjervisflótta háskóiamanna.
Stbl.: „Telur þú að dósentar og lektorar,
fræðimenn og sérfræðingar, sem fengu
hlutfallslega mestar kjarabætur, hafi samþykkt
samning Félags háskólakennara við ríkið en
prófessorar felít hann í atkvæðagreiðslunni um
daginn?"
Guðvarður: „I sjálfu sér finnst mér ekkert
ólíklegt að það geti verið. Ég veit náttúr-
ulega ekki hver skipting fúndarmanna eftir
starfsheitum var á fúndinum en það kernur
ekki á óvart að prófessorar hafi almennt
greitt atkvæði gegn samningnum. Hvað
dósentar og lektorar hafa gert er ekki gott
að segja. Ég geri ráð fyrir því að margir
þeirra hafi samþykkt samninginn en það
verður að horfast í augu við að þrátt fyrir
hækkanirnar eru laun háskólakennara lág.”
Stbl.: „I samningnum er kveðið ó um að prófess-
orum, sem lægst hafa launin og litlar sem engar
tekjur hafa úr sjóðum Hóskólans, af yfirvinnu eða
af annarri atvinnu utan skólans, verði tryggðar
yfirvinnugreiðslur. Er ekki verið að staðfesta að
stétt hóskólakennara sé lóglaunastétt?"
Guövarður: „Það má eiginlega segja það.
Nú á það raunar aðeins við um prófessor-
ana að geta fengið þessar yfirvinnugreiðsl-
ur, sem ekki eru metnar til kennslu eða
rannsókna, ofan á grunnlaunin. Þetta er
sem stendur gert í því skyni að jafna
aðstóðu prófessora. Greiðslurnar fá ein-
ungis þeir sem eru undir meðallaunum
prófessora. Auðvitað má hiklaust túlka
þetta þannig að þetta sé staðfesting á þeirri
láglaunastefnu sem hefur verið við lýði.”
Stbl.: „Hefur lóglaunastefnan haft þær afleið-
ingar að þínu mati að hæfileikaríkir hóskóla-
kennarar vilji síður nó frama innan hóskólans og
helga sig fræðilegum störfum en leiti fremur, og
mjög fljótt, í betur launaðar stöður í erlendum
hóskólum eða í óskyld störf utan skólans?"
Guðvarður: „Já, það finnst mér. Háskólinn
hefúr raunar alltaf að vissu marki átt í
samkeppni við háskóla erlendis. Fólk hefúr
ekki komið heim úr námi til að vinna hér
við háskólann. Háskólinn hefúr einnig átt í
samkeppni við atvinnulífið, í því sambandi
má nefita verkfræðinga og lögfræðinga sem
dæmi. Síðan er alltaf að koma betur og
betur í ljós að Háskólinn er að eignast fleiri
samkeppnisaðila. Framhaldsskólinn keppir
t.a.m. við Háskólann um hæfileikaríkt
háskólamenntað fólk. Þó að okkur hafi
tekist að hækka laun lektora töluvert í
þessum samningum getur samt verið
eftirsóknarverðara að hefja störf við
framhaldsskóla en við Háskólann. Loks má
nefna að við erum með fólk í ýmsum
almennum störfúm, á bókasöfnum, skrif-
stofúm og víðar. Þetta fólk getur fengið
miklu hærri laun annars staðar. Ég var
einmitt að heyra dæmi af nýútskrifúðum
bókasafnsfræðingi sem er liklega á um 70
þúsund kr. launum, við Þjóðarbókhlöðuna.
Bókasafnsfræðingurinn vann áður hjá fyrir-
tæki úti í bæ og það fyrirtæki vill nú fá
þennan starfsmann aftur og býður honum
um 130 þúsund kr. mánaðarlaun. Þannig
að við erum ekki aðeins í samkeppni um
fræðimenn heldur líka margt skrifstofúfólk
og fólk í sérfræðiþjónustu. Það verður þó
taka fram að ríkið hefúr alltaf verið í
samkeppni um slíkt fólk.”
Stbl.: „HvaS gefur þú fyrir þau rök að engin
óstaeða sé til þess að hækka laun prófessora og
onnarra hóskólakennara vegna þess að þeir hafi
hóar heildartekjur og vinni hvort sem er ó
mörgum stöðum og sé því engin vorkunn?"
Guðvarður: „Það má líta á þetta frá tveim-
ur hliðum, eins og ævinlega. Annars vegar
hefúr samninganefnd ríkisins örugglega
tekið tillit til þess að margir prófessorar
hafa mjög háar heildartekjur. Til að mynda
er ég viss um að umfjöllun DV um skatt-
tekjur manna hafi haft viss áhrif á samn-
inganefndina. A lista blaðsins yfir tekju-
hæstu háskólamennina voru margir
prófessorar með miklar tekjur. Það hefúr
örugglega átt sinn þátt í því að ráðherra
neitaði kjaranefndarleið fyrir prófessora.
Samninganefiidin hefúr þannig litið svo á
að sumir væru með háar tekjur að þeir ættu
ekki skilið að fá meira en þessi 6% en á móti
hafi aðrir lægri tekjur og því hafi verið
eðlilegt að gera eitthvað fyrir þá. Þá fylgir
hún eingöngu markmiðum jafnlaunastefnu
ríkisstjórnarinna': Ég vil hins vegar líta á
þetta þannig að hækka eigi laun prófessora
og annarra háskolakennara mikið að menn
þurfi ekki að vera harka úti í bæ, reka þar
eigin stofúr eða vera í annarri vinnu. Aftur
á móti má ekki gleyma því að sumir eru í
þeirri stöðu að vera mikils metnir í
þjóðfélaginu og þá er oft leitað til þeirra,
ekki síst af ríkinu, og þá er eðlilegt að þeir
hafi tekjur fyrir þau verk. Það má ekki
fordæma tekjur manna utan frá algjörlega.
Innan háskólans eru margir sem vinna utan
skólans beinlínis í því augnamiði að hækka
tekjur sínar. Koma þarf í veg fyrir það með
því að hækka grunnlaunin hér innanhúss.”
Stbl.: „Er það rétt mat að jafnvel bótt
samninaurinn hafi veriS samþykktur sé meirinluti
hóskólokennara hundóónægour með samning-
ana? Eru hóskólakennarar einfaldlega svo þæg
stétt að hún treystir sér ekki í harðari kjarabaróttu
og hugsanlega verkfallsátök?"
Guðvarður: „Ég held að stétt háskólakenn-
ara sé mjög þæg stétt. Sérstaklega hefúr
verið sagt um prófessora að þeir geti ekki
hugsað sér að fara í verkfall vegna þess að
þeir eru embættismenn og teldu sig svo
hátt setta að þeir ættu ekki að þurfá að
grípa til slíkra örþrifáráða. Aftur á móti
köm greinilega fram á félagsfúndi Félags
háskólakennara að sumum þeirra er nóg
boðið og þeir eru tilbúnir í átök til að bæta
kjörin. Auðvitað býst ég við að margir
fúndarmanna, sem samþykktu samninginn,
hafi verið óánægðir með hann. Þeir hafi
aftur á móti samþykkt hann af því að þeir
hafi treyst mati stjórnarinnar. Við fengum
þó u.þ.b. 11% meðalhækkun með þessari
aðferð. Auðvitað gætum við fengið meira
með verkfallsaðgerðum en hve mikið meira
vitum við ekki fyrirfram. Einnig varð að
leggja mat á það hve mikið félagsmenn
vildu leggja á sig til að ná því sem maður
veit ekki hvað er. Margt benti til þess að
verkfall stæði yfir í a.m.k. um 4-6 vikur.
Þegar tillit er tekið til þess að félagið á
engan verkfallssjóð og er illa undirbúið til
að hefja verkfallsaðgerðir þá býst ég við því
að rnargir hafi fallist á rök og meðmæh
stjórnar félagsins og ekki verið nógu
óánægðir til þess að greiða atkvæði gegn
samningnum.”
Stbl.: „Samningurinn gildirtil loka næsta órs. Átt
þú von ó að þó verði stigin stærri skref til að
bæta kjör hóskólamanna?"
Guðvarður: „Ég veit að það er vilji meðal
starfsmanna í fjármálaráðuneytinu að
endurskoða launakerfið frá grunni. Hvort
þeir fá pólitískt leyfi til þess er ekki gott að
segja en það er fullur vilji hjá okkur til að
byggja launakerfið upp frá byrjun. Síðan
hefúr oft verið rætt um aukið sjálfstæði
Háskólans og taka upp samningsstjórnun
eða gera hann að sjálfseignarstofnun. Þetta
þarf allt að skoða sem tekur að öllum
líkindum lengri tíma en svo að þeir hafi
marktæk áhrif á næstu samninga. Ég tel
ólíklegt að þær pólítísku breytingar eigi sér
stað fyrir lok næsta árs að hægt verði að
endurskoða launakerfið frá grunni. Við
verðum hins vegar að brjóta niður það
launaþak sem nú er fyrir hendi og búa til
nýtt launakerfi með nýjum launaflokkum. I
þessu skyni hljótum við að virkja þá
óánægju sem ríkir meðal félagsmanna til
þess að auka þrýsting á stjórnvöld. Um leið
verðum við að reyna að vinna heimavinnu
okkar betur en áður hefúr verið gert.“
Stbl.: „Er verkfall óumflýjanlegt ef stiórnvöld vilja
ekki endurskoSa launakjör nóskólamanna og
brjóta niSur launaþak starfsmanna Hóskólans?"
Guðvarður: „Já, ég býst við að verkfall sé
óumflýjanlegt fyrr eða síðar. Ég er ekki á
móti verkfalli sem slíku, alls ekki, ég er
tilbúinn að fara í verkfallsaðgerðir. í þetta
skipti mat ég stöðuna svo að við hefðum
ekki svo mikið út úr verkfallsleiðinni til
viðbótar því sem við höfúm þó þegar náð
með samningsleið að það væri
fyrirhafnarinnar virði. Ég er aftur á móti
hiklaust til í verkfall þó að ég viti að ekki
nokkur maður tæki eftir því að ég,
sérfræðingur á Arnastofnun, færi í verkfall.”