Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Side 18

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Side 18
18 Ú T L Ö N D Stúdmtamenning í ýmsum löndum: akademískt og kaotígkt Auðunn Atlason skrifar Rándýrt helvíti ... ... eru fyrstu orðin sem manni dettur í hug þegar maður fer að leggja saman og draga frá kostnaðinn við að gerast námsmaöur erlendis. Hér skorar Ifyskaland stig, því í þýskum háskólum borgar maður tíu sinnum lægri skólagjöld á ári en í Háskólanum, skitinn tvöþúsund kall á misseri. M.ö.o.: Fjögurra ára nám í Ifyskalandi skilur ekki eftir sig fjögurra milljóna skólagjaldaskuldahalda - og munar um minna. I’aö kvarta fæstir yfir því að fé þýskra skattborgara renni að hluta til þess að mennta stúdenta ffá Gambíu, Sri Lanka og Islandi því að menn vita að þegar t.d. verkffæðistúdentinn frá Gambíu snýr til síns heimalands og kemur e.t.v að tómum kofunum í verkfræði- og tækniþekkingu, þá pantar hann tugmilljónasendingu af þýskum Baaderverkfærum, hann þekkir gæði Thyssen-stálsins til brúarsmíða og eykur þar með útflutnings- og þjóðartekjur landsins sem kostaði hann til mennta. Og friðsamleg samskipti ríkjanna. Skyldi Páll Pétursson hafa áttað sig á þessum einföldu staðreyndum eins og 80 milljónir Þjóðverja? Bækur í Ifyskalandi eru ekki dýrar, mikiö um ljósrituð gögn sem menn kaupa á kostnaðarverði í háskólunum og því er kostnaðurinn við námið sjálft lítill, menn geta m.a.s. leyft sér áskrift að tímaritum og keypt sér fagurbókmenntir. En maðurinn lifir ekki á bókunum einum saman. Framfærslukostnaður í Ifyskalandi getur ekki talist lítill (þó að hann sé að sjálfsögðu mun lægri en á láglaunaofurtollasvæðinu Islandi). Par vegur þyngst tiltölulega há leiga, ekki óalgengt að menn borgi upp undir 20 þúsund krónur fyrir herbergi, en stúdentar eiga rétt á einhverjum leigubótum, þó að margir treysti sér ekki í baráttuna viö þýskt skrifræði. Matur er ekki dýr í Bónusbúðum Ifyskalands en þar gildir sú einfalda regla að því ódýrari sem maturinn er, því verri er hann, og öfugt. Peir sem vilja borða hollan mat sem námsmenn í Pýskalandi verða því að gera annað tveggja, borga lága leigu eða verða sér úti um aukatekjur. Stór kostur við nám í Pýskalandi er á hinn bóginn sá að námsmenn eru minnihiutahópur, flokkaðir með öldruðum, hreyfihömluðum, geðfötluðum og atvinnulausum - og njóta því sérkjara í strætó, lestir, leikhús, bíó og Útlandið er eyjarskeggjann m fjarl&jjt og þess vcjjna framandi. O/j það sem er framandi er oft spennandi, freistandi ojj eftirsóknarvert. Þess vegna sœkja menn rómantíkina til Signubakka Parísar, Avintýrin jjerast í önjjstratum Búdapest ojj freistinjjarnar bíða manns í Mílanó, Marseille, Monakó ojj hvað þær nú heita, allar þessar dultiðujju borjjir mejjinlandsins. Allar? Ekki alvejj. Ef nánar er að jjáð þá á þessi skiljjreininjj útlandsins einhverra hluta vejjna ekki við st&rsta land álfunnar; Þýskaland. sund. Pannig er algengt að stúdentar borgi 3-500 krónur fyrir leiksýningu, sem er ótvírætt kostur fyrir þá sem vilja hnusa dulítið af menningarlífi meginlandsins. Akademískt og kaotískt ... ... er sennilega ágæt lýsing á náminu í Pýskalandi. Pó er mikill munur á uppbyggingu náms effir námsgreinum og því erfitt að lýsa því í fáum orðum. Almennt má þó segja að goðsögnin um agann í þýskum háskólum sé bæði bull og þvæla því að kennarar og prófessorar skipta sér ekki nokkurn hlut af námi stúdenta. Par læra menn þaö sem þeir vilja, þegar þeir vilja á Það er bara ekkert rómantískt við borjj eins oj) Túbinjjen, það bíða manns fjarska lítil Avintjri í Osnabrúck ojj freistinjjarnar eru tœplejja á hverju strái í borjjum sem heita Bad Neukirchen, Wolfenbúttel eða Wúrzburjj. Nöfnin á þessum stöðum eru bara einhvern vejjinn nájj til þess að vilja forðast þá. En af hverju fara íslenskir námsmenn því til Þýskalands í framhaldsnám? Afþví að það er ódýrt? Gajjnlejjt? Praktískt? Eða er kannski jjoðsöjjnin um leiðindi Þjóðverja jýrst ojjfremst klisja? eigin ábyrgð og einskis annars. Almennt skiptist nám upp í tvo hluta - grunnnám og aðalnám - og á hvor hlutinn um sig að taka tvö ár. I hugvísindum þar sem menn læra til magisters (jafngildi mastersgráðu) er skylt að velja tvö aukafög, auk aðalfagsins, og leggja menn því til dæmis stund á sagnffæði sem aðalfag en hagfræði og bókmenntir sem aukafög. í raungreinum (t.d. arkitektúr og verkffæði) láta menn sér hins vegar eitt fag nægja. Námsmat er óhefðbundið í hugvísindum, fer einkum eftir ritgerðum, fyrirlestrum námsmanns og frammistöðu í umræðutímum, auk prófa. I raungreinum er auk prófa og heimaverkefna mikil áhersla lögð á verklega þátt námsins. I flestum námsgreinum er mönnum skylt að ljúka starfsnámi til þess að geta útskrifast, sem felst í vinnu tengdu náminu í lengri eða skemmri tíma. Einn stærsti kosturinn viö nám í þýskum háskólum er hið gríðarlega framboð á námskeiðum sem mönnum stendur til boða. Stúdentar búa því í raun til sína eigin „námslínu“ og geta tiltölulega snemma hafið sérhæfingu í því sem hugur þeirra stefnir til. Margir vilja þó villast í frumskógi fræðanna og sækist námið seint og illa. Þýskur bjór ... ... og háskólastúdentar í Pýskalandi mynda órofa heild. Stúdentalíf í þýskum borgum er nefnilega með miklum ágætum, enda víða kjöraðstæður til nauðsynlegs skemmtanahalds. Parlendis er sú venja að þegar nýstúdentar hefja háskólanám, þá flytjast þeir að heiman til annarrar borgar og þar með eru samankomnir í hverjum háskóla þúsundir stúdenta sem vilja læra og lifa lífinu. Og að vera stúdent er ekki bara að sækja háskóla, það er lífsstíll. Pað er þó tæpast hægt að tala um hefðbundið félagslíf í háskólum eins og hérlendis, þó að vissulega séu haldnar risaveislur við upphaf og lok hvers misseris. Mun fremur mynda stúdentar með sér hópa sem hittast reglulega á knæpum við mat og drykk. Pannig er stúdentaflóran æði fjölskrúöug, allt frá friðarsinnuðum Iesbíum til verkfræðistúdenta meö vísindagrillur. Og klisjan um að Pjóðverjar séu leiðinlegir, þurrir á manninn og lokaðir fellur um sig sjálfa eftir fyrsta bjór. Stúdentar eru einnig meðvitaðir um sjálfa sig sem þjóðfélagshóp. Pannig fóru stúdentar í Berlínarháskólunum í verkfall (hættu að læra og lokuðu skólunum með valdi!) þegar til stóð að skerða fjárframlög til skólanna. Rúmlega tvöhundruð þúsund stúdentar marseruðu í kröfugöngu og fengu fyrri ákvörðun breytt. Loks má geta þess að sérlega vel er tekið á móti nýnemum og erlendum stúdentum og þeir aðstoðaðir við að taka fyrstu skrefin í nýju landi. I’annig kynnast íslenskir námsmenn í Pýskalandi yfirleitt kollegum sínum frá öllurn heimshornum, auk náttúrulega Kurt og Giselu og Dirk og þeim öllum. en leijjan skiptir öllu. FRAMFÆRSLA f ur skrimtir. ...ótaunhefar kröfur LÍft^tm námsfnamvindu. NAMSLAN Stórtpk fyrir smxlini SKÓLAGJÖLD STUDENTALIF NAMIÐ námbnat óhajjsUtt, Mi-tnmenda - Lán til námsmanns í Þýsklandi nemur 1342 mörkum á mánuði (DM = 45 ís.kr.) og einhvern reyting fær maður upp í ferðakostnað á milli landa. Föst útgjöld eru leiga, rafmagn, sími, hiti, tryggingar, strætó-lestarkort, flugferðir og matur. Upplýsingar um nám i Þýskalandi fær maður hjá Upplýsingaskrifstofu um nám erlendis, SINE í Félagsstofnun stúdenta, þýska sendiráðinu, Goethe-bókasafninu, prófessorum og ekki síst námsmönnunum sjálfum, einkum hvað varðar uppbyggingu náms, inntökuskilyrði, námsmat o.s.frv. Skólaárið í þýskum háskólum er tvískipt. Haustmisseri hefst 15. október og lýkur 15. febrúar. Vormisseri hefst 15. apríl og lýkur 15. júlí. Tímabilið 15. febrúar til 15. apríl er svokallað vetrarfrí. Sækja þarf um skólavist með dágóðum fyrirvara. Umsóknareyðublöð fást m.a. hjá sendiráðinu og flestir sækja um marga háskóla til þess að geta valið úr jákvæðum svörum seinna meir. Svör berast seint (byrjun sept.) og skynsamlegt er að „hringja eftir þeim." Flestir þýskir háskólar bjóða útlendingum upp á eins misseris tungumálanám (Deutsch als Fremdsprache). Aður þurfa menn þó að taka stöðupróf! þýsku og eftir þv! eru menn flokkaðir eftir getu. Þeir sem kunna ekkert í þýsku og kolfalla á stöðuprófinu komast ekki inn ! þýskunámskeiðið. Erfitt getur verið að fá fyrri gráður metnar sómasamlega ! þýskum háskólum. Þannig hefur 3-4 ára BA-gráða oft verið metin sem tveggja ára grunnnám, án aukafaga. Það þýðir að framhaldsnám til magisters getur tekið önnur 3-4 ár með tungumálanáminu. Háskólar í Þýskalandi eru tugþúsundaskólar. Það þýðir að oft eru fyrirlestrarsalir troðfullir og samskipti kennara og nemenda af skornum skammti. Þó má v!ða senda þeim tölvupóst eins og ónefndum ráðherra her- og menntamála eða panta viðtal. Þú lærir sjálfsnám frá a-ö. Háskólar í Þýskalandi eru mismunandi a2t stæró og gæðum Jafnan leggur hver skóli metnað sinn i nokkrar greinar, t.d. hagfræði ! Freiburg, sögu ! Heidelberg o.s.frv. Opinber „einkunnagjöf" er ekki til en hvert haust gefa timaritin Spiegel, Stern og Focus skólunum einkunnir sem nota má sem vísbendingar. Atvinnumöguleikar eru góðir i Þýskalandi. Námið er í senn fræðilegt og atvinnulífstengt og margra bíða störf að námi loknu (einkum í arkitektúr og verkfræði). Einnig er tiltölulega auðvelt að fá hlutastarf með námi. Tiltölulega fáir kunna sómasamlega þýsku á Islandi. Bjór á knæpu í Þýskalandi kostar u.þ.b. 3.50 DM, sem er u.þ.b. 150 kr. íslenskar. Stór bjór kostar 5 DM = 225 krónur. Afbragósrauóvín út úr búð kostar um 10 DM eða 450 krónur. Er ekki timi til kominn að fara inn ! ESB?

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.