Stúdentablaðið - 01.09.1995, Side 19
M E N N I N G
19
Vetrardagskrá Sinfóníu-
hljómsveitar Islands hófst
þann 21. september sl. með
fýrstu áskriftartónleikunum. Stúd-
entablaðið fór á stúfana og leitaði
upplýsinga um komandi starfsár og
þau kjör sem bjóðast stúdentum.
Sú hefð hefúr myndast hjá Sin-
fóníunni, að bjóða upp á fjórar
áskriftaraðir. I öllum þessum
röðum verður Vínarklassík gerð
góð skil.Til þessarar stefnu heyra
þrjú af frægustu tónskáldum tón-
listarsögunnar, Mozart, Beethoven
og Joseph Haydn. Sá síðastnefndi
hefúr oft verið nefhdur „faðir“ sin-
fóníunnar og er hans hlutur mikill á
þessu starfsári.
Konsertuppfærslur ó óperum
Efnisskrá vetrarins er fjölbreytt. I’ar
má meðal annars benda á Þýska
sálumessu eftir Jóhannes Brahms.
Þetta fræga kórverk verður flutt í
samvinnu við Kór Langholtskirkju
þann 13. apríl í Hallgrímskirkju. I
vetur verður aftur tekið upp á því
að flytja óperur í konsertuppfærlsu.
Að þessu sinni varð fyrir valinu
meistaraverk Giuseppe Verdis,
Sinfónían
í öllum
regnbogans litum
PÉTUR H. ÁRNASON SKRIFAR
Óþelló, sem verður á dagskrá þann
9. maí. Kristján Jóhannsson mun
syngja titilhlutverkið og hefúr hann
ákveðið að gefa þóknun sína til
Samtaka um tónlistarhús.Svo getur
farið að sama verk verði á fjölunum
í Islensku óperunni seinni hluta
vetrar, þar sem annar stórtenór,
Garðar Cortes, verður í aðal-
hlutverkinu.
Af nægu öðru er að taka en alls
verða flutt 59 verk eftir 41 tón-
skáld. I vetur verður bryddað upp á
þeirri nyjung að gera einu íslensku
tónskáldi sérstök skil. Tónskáld
vetrarins verður Þorkell Sigur-
björnsson en hann mun jafnframt
verða kynnir þrjú kvöld. Einnig
verða flutt verk eftir Askel Másson,
Jón Leifs, Jón Nordal og Pál
Isólfsson. Þess má einnig geta að
tónlist Jóns Leifs í flutningi
Sinfóníuhljómsveitar Islands er
leikin í kvikmyndinni Tár úr steini.
Gulur, rau&ur, grænn og blór.
Eins og áður sagði býður Sinfóníu-
hljómsveitin upp á fjórar áskrifta-
raðir sem kenndar eru við liti
regnbogans. I gulu röðinni er lögð
áhersla á íslenska einleikara og
stærri hljómsveitarverk. I þeirri
rauðu er kappkostað að fá
einleikara sem hafa hlotið
alþjóðlega frægð og í þeirri grænu
er lögð áhersla á aðgengilega
tónlist. I bláu röðinni eru einungis
tveir tónleikar en þar er flutt
trúarleg tónlist og verk sem falla vel
að flutningi í kirkjum.
Alls verða 18 tónleikar í
vetrardagskránni, sex í gulu og
rauðu röðunum, fjórir í þeirri
grænu og tveir í bláu. Verð á
lausamiðum er frá 900 kr. upp í
1800 kr. og fer eftir því hvar setið
er og í hvaða röð tónleikarnir eru.
Askriftarskírteini kosta frá 2700
krónum upp í 9200, ódýrast fyrir
bláu röðina en dýrast fyrir þá
rauðu.
Háskólastúdentum býðst 30%
afsláttur af skírteinum og 50%
aflsáttur af miðum á tónleikadegi
gegn framvísun stúdentaskírteinis.
Einnig má benda á afsláttarkort
sem gildir fyrir átta tónleika að
eigin vali og kostar 5000 krónur.
SAMKEPPNI UM NYTT MERKI SHI
Stúdentaráð, fúlltrúasamkoma stúdenta í Háskólanum, verður 75 ára á þessu ári. Hlutverk þess er að sinna
félags- og menningarlegum hagsmunum stúdenta og vera æðsti máisvari þeirra. Margs konar starfsemi er
rckin á skrifstofú ráðsins, s.s. Stúdentablaöið, Nýsköpunarsjóður námsmanna, Atvinnumiðlun námsmanna,
lánasjóðsþjónusta, húsnæðismiðlun og Réttindaskrifstofa. Markmið starfseminnar er aö auðvelda fólki að
stunda háskólanám, fjárhags- og félagslega, og reyna þannig eftir fremsta megni að tryggja í verki jafnrétti
allra til háskólanáms.
Tillögur um nýtt merki stúdentaráðs skulu hafa borist á skrifstofu SHI, Stúdentaheimilinu við Hringbraut,
101 Reykjavík, fyrir 1. nóvember næstkomandi. Tillögur skulu merktar dulnefni en rétt natii skal fylgja með
í umslagi. Sérvalin dómnefnd með fagmenn í meirihluta fer yfir tillögur.
Dómnefúd hefur úr að spila 150 þúsund króna verðlaunafé. Dómnefndmni er heimilt að deila verðlaununum
á allt að þrjá aöila ef tilefni er til þess.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu SHÍ í síma 562-1080.
Stúdentaráð Háskóla Islands
Það höldum við
Á auglýsing frá
S I I N F Ó N í í U N N I
jfyí þessu blaði?
Því á þessum arum
ævinnar fílar maður
eitthvað frumlegt, kraftmikið. ögrandi
og æðislega öðruvísi.
SINFÓNÍUHLjÓMSVEIT ÍSLANDS (*)
Háskólabíó vib Hagatorg, sími 562 2255
W
Spennandi leikáv framundan!
Sýningav fram að ávamótum...
* vískinnungsóperan gamanleikrit með
söngxaim eftir Ágúst Guðmundsson.
j Ævintýralegt söngva- og gleðispil um sams
kynjanna og kynhlutverkið.
hé borgum ekki, við borgum ekki eftir Dar
Fo, óborganlegt grín sem kitlar hláturtaugar
! Hvað dreymdi þig, Valentína? eftir Ljúdmílu
Raznmovskaju spennandi og átakamikil sýning
um samband mæðra og dætra.
JRokkóperan Superstar eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber, sýnd fyrir fullu húsi síðan í júlíi
Barna og fjölskylduleikritið Lína Langsokkur
etir Astrid Lindgren. Alltaf jafn skemmtilegt. IJna
hefur engu gleymt.
*
íslenska mafían, nýtt verk eftir Kjartan
Ragnarsson og Einar Kárason. Margþátta
fjölskyldusaga um uppgang, hnignun, peninga
og brask í íslensku þjóðfélagi. Leiftrandi húmor.
par eftir Jim Cartwright, sýnt í nýju og
spennandi leikrými í Borgarleikhúsinu, niðri i
Veitingabúð.
STUDENTAR
Munið skólaafsláttinn í leikhúsið!
Leikfélaa Reykjavikur, Boraarleikhúsi
sími 568-8000