Stúdentablaðið - 01.09.1995, Side 23
M E N N I N G
23
I
Leikhúsárið virðist alltaf vera að
lengjast. Leikfélögin mörg
hver halda uppi sumar-
sýningum cins og flestir hafa tekið
eftir. Nú í sumar bar hæst
söngleikina „Jesus Christ Superstar“
í Borgarleikliúsinu og „Rocky
Horror" í Loítkastalanum. Þrátt
íýrir þetta heldur okkar haust áfram
að vera vorið í leikhúsheiminum. Sá
tími þegar leikhúsin lifna við eftir
sumardvala. En hvað er á dagskrá
leikhúsanna í vetur? Hvað er
spennandi að sjá? Ég fletti í gegnum
leikskrár leikfélaganna og sló á
þráðinn til nokkurra og komst að því
að við leikhúsfíklarnir ættum ekki að
þurfa að láta okkur leiðast í vetur.
Þjóðleikhúsið
Dagskrá Þjóðleikhússins í vetur
verður að teljast fjölbreytt og af
nógu er að taka. Af nýjum crlendum
verkum vekur helst athygli nýtt verk
eftir Simon Burke, „Leigjandinn“, í
leikstjórn Hallmars Sigurðssonar.
Þetta er breskt verðlaunaleikrit og
jafnframt fyrsta sviðsverk höfúndar. I
samtali við Guðrúnu Backmann
leikhúsritara kom fram að þctta verk
væri mjög nýstárlegt, ferskt og
jafnvel pínulítið „weird“. -Eitthvað
fyrir okkur sem vilja sjá eitthvað sem
ekki hefur sést áður.
Auk „Stakkaskipta“ Guðmundar
Steinssonar verða tvö ný íslensk verk
á stóra sviðinu í vetur. „Tröllakirkja“
eftir Olaf Gunnarsson í leikgerð
Þórunnar Sigurðardóttur og „Þrek
og tár“ eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Leikárið hefst einmitt á þessum
gleðileik Ólafs Hauks sem gerist í
vesturbænum á sjöunda áratugnum.
Haustið við Hverfisgötuna verður
því troðfúllt af tónlist, lífsgleði og
speki í leikstjórn Þórhalls
Sigurðssonar.
Klassísku vcrkin eiga sinn hlut í
dagskrá vetrarins. Fyrst skal fræga
telja söguna um kvennabósann Don
Juan eftir Moliére. Leikstjóri þessa
verks er Litháinn Rimas Tuminas
sem hvað frægastur er fýrir
stórkostlega uppsctningu á
Mávinum í hitteðfyrra. það verður
spennandi að sjá hvað verður úr einu
merkasta verki leikbókmcnntanna í
höndum Rimas. Önnur klassísk verk
eru „Sem yður þóknast“ eftir
Shakespeare og „Leitt hún skyldi
vera skækja“ eftir John Ford. A síðast
leikári var leikrit Jims Cartwright
„Taktu lagið, Lóa!“ frumsýnt og
halda sýningar á þessu frábæra leikriti
áfram á Smíðaverkstæðinu í haust. Ef
þú sást ekki þessa sýningu í fyrra
verðurðu að sjá hana í vetur eða eins
og kaninn myndi segja „a rnust see“.
Borgarleikhúsið
Það sem einkennir dagskrá
Leikfélags Reykjavíkur í vetur eru ný
íslensk verk. Þar skal fyrst telja
„Tvískinnungsóperuna“ eftir Agúst
Guðmundsson. Þetta er rómantískt
gamanleikrit með söngvum um
samskipti kynjanna og kyn-
hlutverkið. Þeir sem sáu „Djöfla-
eyjuna" á sínum tíma lilakka líklega
til að sjá nýjasta afsprengi þeirrra
Einars Kárasonar og Kjartans
Ragnarssonar. „Islenska mafian“ er
nýtt leikrit, unnið upp úr bókum
Einars „Heimskra manna ráð“ og
„Kvikasilfúr“. Þctta er fjölskyldusaga
þriggja kynslóða sem skiptast á að
vera ríkir forstjórar, hugsjónamenn
eða fátækir hjólkoppasafnarar í
íslcnsku samfélagi síðustu áratuga.
Af sígildum verkum má helst telja
„Hið ljósa man“ sem cr ný leikgerð
Bríetar Héðinsdóttur eftir Islands-
klukku Halldórs Laxncss. Sagan cr
sögð frá sjónarhóli Snæfríðar
Islandssólar og er þcssi leikbúningur
verulega frábrugðinn fyrri leik-
gerðum. 1 sýningunni verður ný
frumsamin tónlist eftir Jón Nordal
sem mun án efa gefa sýningunni
meiri dýpt.
Jim Cartwright virðist njóta óhernju
vinsælda um ðessar rnundir en í vetur
verða sýningar á vcrki hans „BarPar“
A fjölunum í vetur
HELGA D. BJÖRGVINSDÓTTIR SKRIFAR
í veitingabúðinni í
kjallara Borgarleik-
hússins. Næsta sum-
ar verður spánýtt
leikrit Jims „Stone
Free“ frumsýnt.
Þetta verður önnur
uppfærsla leikritsins í
heiminum því verkið
verður ekki frumsýnt
á West End fyrr en í
lok þessa árs. Tónlist
sjöunda áratugarins
verður áberandi í
þessari sýningu sem
er sviðsett í lok þess
áratugar á rokkhátíð
einhvers staðar í
Norður-Englandi.
Auk fastrar dagskrár
er von á nokkrum
samstarfsverkefnum
leikhússins við
tiltekna atvinnuleikhópa. Þar má
finna nær allt milli himins og jarðar,
vcrkin eru jafn fjölbreytt og þau eru
mörg.
Kaffileikhúsið
Kaffileikhúsið hefúr nú endanlega
fest rætur í reykvísku menningarlífi
og á einmitt ársafmæli þann 7.
október n.k. þann dag mun „Sápa
þrjú“ líta dagsins ljós en Sápa eitt og
tvö voru með vinsælli verkum síðasta
árs. Höfúndur „Sápu þrjú“ er engin
önnur en Edda Björgvinsdóttir svo
að búast má við miklum hlátri í
Kaffileikhúsinu í október.
Sögukvöldin vinsælu
verða einnig á sínum
stað annan hvern
miðvikudag í vetur
auk þess sem
„Margfaldir
einleikir“ fara af
stað. Þetta verða
einleikir af öllum
gerðum eftir ýmsa
höfúnda í meðförum
ýmissa leikara en
leikstjóri þcirra allra
er sá sarni, Þórhildur
Þorleifsdóttir.
Svokallað „uppi-
stand“ grín hefur
verið að skjóta
rótum hér á landi
undanfarið. Kaffi-
leikhússmenn eru
engir eftirbátar á því
sviði nema síður sé
og stcfnan er að koma fleiri slikum
skemmtunum á fjalirnar. Hallgrímur
Helgason hefur einmitt að
undanförnu staðið fyrir „standandi
gríni“, svo að ég noti þýðingu
Súsönnu Svavarsdóttur, og mun
hann taka þátt í fleiri slíkum í vetur
ásamt nýliðum á því sviði.
Nýir leikhópar
Sífellt fleiri atvinnuleikhópar skjóta
upp kollinum á síðustu misserum. Nú
síðast Hermóður og Háðvör,
Hafnarfjarðarleikhúsið. Þann 14.
scptcmber sl. frumsýndu þau leikrit
Arna Ibsen „Himnaríki“ í leikstjórn
Hilmars Jónssonar. Þetta leikrit er
óvenjulegt að því leyti að leikið er á
tveimur sviðum í einu og leikritið
leikið tvisvar á sömu sýningu.
Ahorfandinn skiptir liins vegar um
sjónarhorn í hléi. Þetta er nýtt form á
lcikhúsi og verður spennandi að sjá
hvernig það kemur til með að ganga
í landann. Islenska leikhúsið sýnir um
þessar mundir „I djúpi daganna“ eftir
Maxím Gorkí í þýðingu meistara
Megasar. Sýningar eru í Lindarbæ og
standa yfir út október.
Eins og sjá má er af nógu að taka og
um að gera að rcyna að sjá sem flest.
það er vonandi að leikhúslífið haldi
áfram að cflast eins og það hefúr gert
undanfarið. Hver veit, kannski rætist
þá einhverntíma sá draumur að
Rcykjavík verði menningarborg
Evrópu - við erum kannski nær því
en við höldum.
nashuatet
★ Mest seldu
Ijósritunarvélar á Islandi I
★ Faxtæki ★ Fjölritar ★ Kjölbinditæki
Verib velkomin í vinningsliðið!
Umboð: Hljómver, Akureyri
Póllinn, Isafirði
Geisli, Vestmannaeyjum
ARMULA 8 - SIMI588-9000
AÓ n o iii 8 ■ •«
ber évöxt
Vextir
NÁMU-reikningslána
eru
9,75%
AO AUKl:
• Ókeypis aðild ad Einkaklúbbnum
• Fjármálaráðgjöf • LÍN-þjónusta
• NÁMU-styrkir
• Internettenging: Ekkert stofngjald
og afsláttur af mótaldi frá EJS
• Gjaldeyriskaup án þóknunar
• Minnisbók
KYNNTU ÞÉR KOSTINA...
s E A N
N K I
D S
NAMAN
Námsmannaþjónusta
Landsbanka íslands
N-A-M-A-N