Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Side 26

Stúdentablaðið - 01.09.1995, Side 26
26 FERÐALOG Sumariö: tími afslöppunar og feröuluga. En sú kynslóð íslendinpa sem undirritaður er stundum talinn tilheyra vandist öðru. Fyrsta mánudapf eftir próf var mœtt til vinnu þar sem sumrinu var eytt, fríið var fóstudapjssíödepji til aðjyeta komist í tvœr útilejyur á sumri, eina utan verslunarmannaheljjar þejjar allir íslendingar eijja frí í einu, nema helst verslunarmenn. Þessi kynslóð hefur aðeins óljósa hujjmynd um merkinjju orösins ,yumarfrí“. Það erþví að líkindum að þejjar sex einstaklinjjar á þrítujjsaldri fara til Bret- landseyja á sumri þá er það ekki til afslöppunar heldur eru ferðalanjjarnir háskólaborjjarar á leið á mál- þinjj, nánar tiltekið til Leeds, ojj sá tími sem ekki verður eytt í ráðstefnuna er markaður skynsamlejjum versl- unarferðum, nú skulu keyptfót á fjölskylduna ojjjjjafir til ástvina. Nítjánhundruð- ♦ áttatíu og fjögur Flugvellir: einkennilegt sambland fögnuðar og drunga. Sæluríki Vesturlanda- búa á ferðalagi, búðir til aö kaupa ódýrar munaðarvörur, barir þar sem má drekka sig ffá ráöi og rænu, sófar að setjast í, fæða til að innbyrða og staðir til að losa sig við hana þegar hennar er ekki lengur þörf. En þar er iíka stóri bróðir. Á flugvöllum öðlast hinn almenni borgari stöðu grunaðs manns, hann gæti verið þjóðfélagsmein, honum er ekki trevstandi. I’ar veitist sjaldgæf innsýn í líf sakamannsins með löggæslu á hverju strái. Allir ganga í gegnum tæki sem æpir ef það tinnur lykt að sakbornmgi. Tækið á að finna sprengjur og þvíumlíkt en eins og varðhundur með streitusjúkdóm geltir það jafnt aö sekum og saklausum og er einkum í nöp við lyklakippur og aðra málma sem vart ógna þjóðarörygginu. Ferðafélagi minn hefúr stáltá í skónum og er jafn hataður af tækinu og bréfberi af ár- vökulum varöhundi. Á heimleið úr landi hennar hátignar, á flugvellinum í Glasgow, æpir tækið og engum togum skiptir að em- bættismaður vindur sér að félaga sínum, sem mér sjálfúm finnst líkari skáta en hryðju- verkamanni, og hann fær að standa meö hendur útréttar eins og Kristur á krossinum og láta þukla sig hátt og lágt. Við sem tækið leggur ekki fæð á stöndum áhyggjufúll hjá, það er eitt geðþekkasta einkenni Islendinga aö yfirgefa ekki landa í neyð, hvaó þá ferðafélaga, við setjum í brýnnar í heilagri vandlætingu yfir að heiðarleiki eins úr hóp- num sé dreginn í efa og með stellingu okkar gefum við til kynna að við stöndum með honum. Sjálfúr er hann víkingslundin upp- máluó, stendur gratkyrr með vandræðalegan æöruleysissvip og segist eftir á hafa haft gam- an af þessu, þaó sé sjaldgæf skemmtun að láta karlmann káfa á sér. En auövitað lýgur hann því til að halda virðingu sinni, rétt eins og Jómsvíkingar forðum klæmdust áður en þeir voru höggnir. Á flugvöllum sætta menn sig við að vera meðhöndlaðir sem glæpamenn til að fá inn- göngu í sæluríki fríhafnarinnar, að láta embættismenn komast í nánari snertingu við sig en bestu vinum liðist og kippa sér ekki upp við þó að persónulegir munir séu grand- skoðaðir þó að hinir sömu fengju flog ef þá grunaði að pósturinn læsi póstkort sem þó veita mun minni upplýsingar um einkalíf þeirra. Engu máli skiptir að ópvélin finnur engar sprengjur og töskurótarar engin fikniefni. Enginn kvartar, þaó er andstætt löghlýðnu víkingseðli þjóðarinnar, þvert á ntóti verða menn hneykslaðir ef þeir komast óáreittir af flugvelli, þjóðin gæti verið í hættu ef hún nýtur ónógrar verndar flugvallarins. 2„How to Order ♦ a Drink“ Ráðstefnugestir hafa fengið sendan lítmn bláan bækling frá stjórn þingsins. Hann ein- kennist af breskri nákvæmni og löngun til að geðjast aókomumönnum en er einnig lykil- hluti af táknmáli ráðstefnugagnanna, hefur það hlutverk að draga úr þrúgandi alvöru ráðstefnudagskrárinnar með sama lit, þar sem lýst er efni 750 fyrirlestra frá álíka mörgum fyrirlesurum. Þarna eru uppdrættir af ráðstefnusvæðinu, þar á meðal íbúóunum sem ráðstefnugestum býðst að nota þessa viku sem ferðin tekur, en einnig gagnlegar upplýsingar eins og um hvernig eigi að panta sér „drink“ í breskum krám. Nú er ekki til svo mállaus Islendingur að hann ráði ekki við einmitt þessa aðgerð í útlöndum enda er bæklingurinn ekki í raun og veru að bæta úr brýnni þörf heidur að draga úr kvíða nýliða á ráðstefnum. Skilaboðin eru: Það er ekki 4 einvörðungu vinna að sækja ráðstefnur, þvert á móti er beinlínis ætlast til drykkju og svalls. Þessi boð hafa og tilætluð áhrif á ferðafélaga mína. Víkingslund Islendinga kemur ekki einvörðungu fram í æðruleysi við þukl skoskra embættismanna. Þeir láta sig einnig hafa það að rnæta á ráðstefnur sem hafa alla merkingarauka sem eru óaölaöandi í augurn Islendinga: gáfttr, lærdómur, fræðimennska, snobb. I’eir sem fara á slík þing í fýrsta sinn hafa gjarnan talsverðar áhyggjur yfir að verða fáfróðastir á staðnum, eins og bakkabræöur innan um spekinga, en setningin um bjórinn í Bretlandi breytir því. Eftir að hafa setið þingió finnst á hinn bóginn flestum að jafnvel þeir sjálfir gætu orðið fræöimenn, það sé enginn vandi. I’ar með er raunar ekki sagt að hver sem er geti verið góður fræðimaður en það er önnur saga. Veðurleysi og ♦ vinstriumferð Ráðstefnan sem við sækjum er um miðaldir og þvi er viðeigandi að halda hana i Bret- landi. I’ar eru menn nefnilega ennþá á miðöldum í vatnsmálum, í stuttu máli þekkjast þar ekki blöndunartæki heldur er kaldi kraninn kaldur og sá heiti stundum heitur. I’að á líka við um húsnæðið þar sem ráðstefnugestir fá að gista sem þó er glænýtt. I’ar með er ekki sagt að ekki sé minnt á 20. öldina, það sem hét „íbúð“ í ráðstefnu- gögnunum reynist vera eins konar eftirmynd af fangelsum í alræðisríkjum, örmjór gangur með nokkrum herbergjum meö þungri hurð sem skellur að stöfúm ef henni er sleppt. Hið eina sem vantar er vörður sem ber á dyr hálfellefu og æpir: Lights out. Einnig er þar sameiginleg sturta, hönnuð af fyrrverandi fangavörðum í Belsenfangabúðunum og þar er lykt sem óskiljaniegt er hvernig hefúr náð 1 t I * * * 4 * í » l 4 S t i •

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.