Stúdentablaðið - 01.09.1995, Page 29
FELAGSSTOFNUN
29
Félagsstofnun stúdenta tók tíl
starfa árið 1968 í því skyni að
veita stúdentum margvíslega
þjónustu. A 27 árum hefur
fyrirtækið vaxið og dafnað en það
rekur bóksölu, ferðaskrifstofu og
kaffistofur auk þess sem hús-
næðisdeild þess sér um úthlutun og
útleigu húsnæði á stúdenta-
görðum. A þessum árum hefur
stjórn stofnunarinnar haldið ófáa
fundina en á dögunum urðu þau
tímamót að haldinn var
sjöhundraðasti fundur stjórnar.
Tímamóiafundur
A þessum tímamótafundi afhenti
Valdimar K. Jónsson, formaður
bygginganefndar Félagsstofnunar
stúdenta, framkvæmdastjóra FS,
Bernhard A. Petersen, lyklavöld að
nýjasta áfanga Asgarðahverfisins,
Eggertsgötu 22. Asgarðahverfið er
enn í byggingu en áætíað er að
framkvæmdum ljúki um aldamótín.
I’egar Asgarðar verða að fullu
teknir í notkun árið 2000 mun FS
ráða yfir húsnæði á háskólasvæðinu
fyrir um 700 stúdenta og fjöl-
skyldur þeirra.
Húsnæðisdeild skipt upp
Ennfremur var samþykkt á fund-
inurn að taka í notkun nýtt merki
Stúdentagarða en það er ný deild
innan FS. Vegna mikilla umsvifa
Húsnæðisdeildar var ákveðið að
deila starfseminni niður og setja
upp deild sem eingöngu fengist við
útleigu á görðunum sjálfum.
Húsnæðisdeildin mun eftir sem
áður sjá um viðhald og upp-
byggingu húsnæðis í eigu FS.
Leikskólinn á Vetrargarði sem FS
hefur nýverið tekið að sér að reka
fékk nýtt nafn á fundinum en
samþykkt var að framvegis fengju
M O L A R
Á tali hjá
vörnum landsins
Hugmyndin um varnarsveitir á
íslandi, sem Björn Bjarnason
menntamálaráðherra varpaði fram
á dögunum, hefur vakið fjörugar
umræður í fjölmiðlum. Stúdenta-
blaðið ætlar ekki að taka afstöðu til
þessa máls en bendir þó á að
líklega þurfi að byggja upp varnir
landsins alveg frá grunni eigi
hugmyndin að verða að veruleika.
Þannig gerðist það kl. 10:20
miðvikudaginn 13. september að
Stúdentablaðið hugðist reyna að
ná sambandi við varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins.
I’á brá svo við að í tvígang svaraði
enginn í símann og þegar blaðið
hugðist kvarta yfir þessu hjá
utanríkisráðuneytinu kom í ljós að
þar var á tali ...
Háskólamenn
eru hærri!
Ólafur Ólafsson landlæknir fær
prik frá Stúdentablaðinu. Hann
kynnti þær skemmtilegu og
jafnframt uppörvandi niðurstöður
í fjölmiðlum um daginn að
háskólamenn væru að meðaltali
þremur sentimetrum hærri en ein-
staklingar úr öðrum stéttum. Við
sama tækifæri var komu fram þær
upplýsingar að íslendingar væru
að jafnaði stærri en íbúar ná-
grannaþjóðanna.
Enn einn áfangi í
/
Asgarðahverfinu tilbúinn
Stjórn Félagsstofnunar hefur fundað /00 sinnum
börn stúdenta dagvistun á Sólgarði
sem hét áður Litla-Brekka.
Sjóður fyrir fatlaóa nómsmenn
Pá var ákveðið að veita styrk í sjóð
fyrir fatlaða námsmenn en honum
er ætlað að standa straum af
tölvukaupum. Að síðustu var
ákveðið á fundinum að taka í fóstur
tímarit í I’jóðarbókhlöðunni. Um
er að ræða viðbót við framlag
Félagsstofnunar til þjóðarátaks í
þágu Þjóðarbókhlöðu sem stúd-
entar í Háskóla Islands efndu til á
síðasta ári.
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. • Kringlunni 5
Sími 569 2500 • Grænt númer 800 5692
Hjá Sjóvá-Almennum geturðu nú raðað saman tryggingum og myndað
STOFN sem er samheiti yfir allar tryggingar heimilisins. Kjaminn í
STOFNI er ávallt Fjólskyldutrygging en til viðbótar velurðu þær
tryggingar sem fjölskyldan þarfnast. Með STOFNI öðlastu góða yfirsýn
og líkur á gloppum í tryggingaverndinni minnka til muna.
Ef þú sameinar tryggingar þínar í STOFNI geturðu fengið allt að
20% afslátt af iðgjöldum og auk þess 10% af þeim cndurgreidd.
STOFNI fylgir einnig margs konar forgangsþjónusta:
Bónusvernd í Ábyrgðartryggingu ökutækis
Frir bílaleigubíll meðan gert er við bíl vegna kaskótjóns
Tjónaþjónusta allan sólarhringinn
Lægri kostnaður af bílalánum
Áskrift að fréttablaðinu Bót í máli
Persónuleg ráðgjöf
STOFN er án efa skynsamleg lausn enda sameinar hann
hámarksöryggi og lágmarkskostnað. Starfsfólk Sjóvá-Almennra
er boðið og búið að laga hann að þörfum þínum og óskum.
Nýjung frá Sj óvá-Almennum