Stúdentablaðið - 01.09.1995, Page 30
30
STUDENTAR
Dagskrá
háskólalífsins
2. október KRISTILEGT STÚDENTAFÉLAG. Daglegt líf með GuSi.
HvaS get ég gert og hvaS er mér gefið. Dr. Sigurður Arni Eyjólfsson
flytur erindi. Lögberg 101. Kl. 20.
VERKFRÆÐIDEILD. Um náttúru íslands og náttúruvernd. Arnþór
Garðarsson prófessor og formaöur Náttúruverndarróðs flytur erindi.
VR II 158, kl. 17.
6. október ORATOR. Verkleg réttarsaga í árlegri Þingvallaferð
laganema.
7. október Fróði, félag sagnfræðinema. Þingvellir fá engan frið.
Sagnfræðinemar fara í árlega haustferð.
9. október VERKFRÆÐIDEILD. Sjálfbær þróun. Magnús
Jóhannesson ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis flytur erindi. VR II
158, kl. 17.
12. október ORATOR. Kennslumálafundur í Lögbergi.
16. október VERKFRÆÐIDEILD. Þróun umhverfismála. Trausti
Valsson flytur erindi. VR II 158, kl. 17.
19. október ORATOR. Aðalfundur Orators, félags laganema.
Setið að sumbli og saklausir menn kosnir í stjórn og nefndir.
21.-27. október SHI. Jafnréttisdagar; Málfundir og fyrirlestrar
um jafnréttismál í Háskólanum, Sólon Islandus og Loftkastalanum.
Þeir sem vilja auglýsa fundi og mannfagnaði í Háskóla íslands í
þessum dálki eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar á
skrifstofu Stúdentablaðsins, Stúdentaheimilinu við Hringbraut. Fax:
562-1040. Netfang: thormund@rhi.bi.is.
Sopið seySi
-bálkur um vínmenningu og drykkjusiði
1. þáttur
höndum meðan drykkjumenningin
er troðin í skít og drullu. Ætlun
undirritaðra í þessum smámódegu
pistlum er því að leggja lóð okkar á
vogarskálar aukinnar visku og
ánægjulegri áfengismenningar
íslendinga. Auk þess munum við
ausa úr skálum reiði okkar yfir
hinni aumu kokkteila- eða
limstélamenningarnefnu sem um
sig hefur grafið hér á skerinu rneðal
Dean Martin-sleikja og annarra
boðbera úrkynjaðrar flatneskju-
lágmenningar. Hlutverk pistlahöf-
unda verður e.k. sjálfskipuð aug-
lýsingamennska fyrir áfengar
mixtúrur sem við teljum geta orðið
landanum til framdráttar og yndis-
auka. Eingöngu verða teknar fyrir
þrautprófaðar blöndur sem við
hjartarætur á rómantískum haust-
kvöldum.
Uppskriftin er:
1 sjúss Jim Beam viskí
vænn slurkur af Tabasco-sósu
Viljum við benda lesendum á að
sýna endilega engan nirfilshátt með
sósuna ef þeir vilja njóta
drykkjarins til hins ýtrasta. Enn
fremur mælum við eindregið með
því við lesendur að þeir hristi
höfuðið hressilega eftir
innbyrðingu drykkjarins en þó
áður en þeir kyngja eins og verið sé
með líkamstáknmáli að segja nei
sem virkilega þýðir nei.
„Neitandinn“ er með það sama
borinn til hinna sjóðheitu Olymps
Allt frá því eðalmennið Egill
Skallagrímsson vó mann í ölæði hið
fyrsta sinn barn að aldri hefur
drykkjuvenjum hinnar íslensku
þjóðar farið hrakandi. Eftir
aldalanga einokun, fýrst hins
danska og síðar hins íslenska
kerfisbúlags, á veitingu
guðaveiganna er nú svo komið að
ekki verður lengur setíð auðum
höfum lagað að eigin smekk.
Fyrstan kveðum við tíl leiks hana-
stélsdrykk sem mun víst vera hæp
eitt ógurlegt úti í Grikklandi. Hið
gríska nafn drykkjarins er okkur
ókunnugt og höfum við því gefið
drykknum nafnið „Babe Illusion“
af ástæðum sem ekki verða raktar
hér til fullnægjandi hlítar en þar
spilar inn í hve hann yljar um
heilögu hlíða og tryggjum við að
gjörvallt kvöldið mun markast á
afgerandi hátt af þessum
athygliverða drykk. Að lokum
viljum við óska lesendum
velfarnaðar og ánægjulegrar
áfengisneyslu.
Magnús Teitsson
Hjörvar Pétursson
Þjóðfélagið
Útvarp
SVR
Forðist fyrir alla muni þau
hryllilegu örlög að þurfa að ferðast
með Strætisvögnum Reykjavíkur.
Leggið hart að ykkur við að safna
fyrir bíl og ef það er vonlaust,
reynið þá að næla í
kærustu/kærasta sem á heima
nálægt ykkur og á bíl (ef það er
ómögulegt ættuð þið að minnsta
kosti að verða ykkur út um vin).
Eað er mannfræöilegt og
verkfræðilegt athugunarefni
hvernig „skipuleggjendum“
strætisvagnanna nefur tekist að
haga málum þahnig aó það er
nánast sama hvert maður ætlar að
fara um bæinn og þarf að skipta
um vagn, alltaf standast
strætisvagnarnir þannig á að
maður rétt missir af þeim sem
maóur vill taka.
X-ið: Með sítt að aftan
Laugardaga 13-15
Missið alls ekki af þessum þætti.
Fetta cr langbesti fjölmiðlavið-
burðurinn síðan Listapopp var og
hét cða Unglingarnir I frums-
kóginum. Spiluð cru lög eftir
snillinga eins og Limahl og Kaja-
googoo, Ultravox, Nik Kershaw,
Frankie goes to Hollywood, Dead
or Alive, King, Nenu, Europe,
Duran Duran, Falco, Paul Young og
alla hina. Um daginn var til dæmis
„I like Chopin" spilað sem
kynnirinn minnti okkur á að væri
„sorglegasta lag I heimi“. Eins var
gaman að heyra gamla smelli eins og
„Rock me Amadeus,“ „A View to a
Kill,“ „Electric Dreams,“ og „Final
Countdown." Nostalgían nær svo
hámarki í titillagi þáttarins sem er I
flutningi Yellow Magic Orchestra en
það var líka titillag Listapopps.
Helsti lösturinn á þáttunum er að
Rikshaw og Hcrberti Guðmunds-
syni er ekki gert nógu hátt undir
höfbi. Sem jaðrar við guðlast. Fví er
hér með komið á framfæri. Lesi
stjórnandi þáttarins þetta er beðið
um óskalögin Ghostbusters með
Ray Parkcr jr. og This is the Night
með Mezzoforte í næsta þætti.
Fimmtudagsdagskrá Stöðvar 2
Reynið fyrir alla muni að halda
ykkur frá Stöð 2 á fimmtu-
dagskvöldum. Fað hefur myndast
einkennileg hefð fyrir því að hafa
einstaklega subbulega dagskrá á
þessum tíma, með púkalegum
ofbeldismyndum af síðustu sort.
Viðkvæmar sálir fá martröð af því
að lesa dagskrána eina saman. Til
dæmis var fimmtudagsdagskráin
14. sept. þannig: Mynd #1: Með
augum morðingja. Sálfrðitryllir
um konu sem verður fýrir von-
brigðum með karlmennina I lífi
sínu, sérstaklega þegar þeir taka
upp á því að reyna að drepa hana.
Mynd #2: I hefndarhug. Litli
bróðir Truman Gates er drepinn
en þá verður Truman voða reiður
og kallar á vini sína sem búa í
fjöllunum og eru líka voða reiðir.
Mynd #3: Vafasöm viðskipti. Tveir
menn stofna fýrirtæki en annar
þeira er ógurlega vafasamur og
kallar hina skelfilegu hefnd mafí-
unnar. I’að væri gaman að sjá
manninn sem setti saman
dagskrána og enn skemmtilegra að
finna e-n sem nennti að horfa.
The Xenophobe’s Guide to
the Icelanders, e. Richard Sale
Nældu þér í eintak af bók
Richards um íslendinga. I fýrsta
lagi er hún ágætis áminning um að
líkjast einhverjum af þeim lúðum
sem hann lýsir. Auk þess er hún
skemmtileg lesning, uppfull af
ágætis punktum eins og til dæmis
þessum: „Islendingar hlæja að
Norðmönnum fýrir áhuga þeirra á
útivistaríþróttum sem er álitin
sönnun þess sem íslendingar vissu
þó fýrir, að Norðmenn séu bæði
vitlausir og leiðinlegir. Spurðu
Islending um Grieg eða Munk og
hann mun ábyggilega halda því
fram að þeir væru afkomendur
íslenskra víkinga sem fóru í
helgarfrí og strönduðu óvart I
Noregi I ofviðri. Eftir að
Norðmenn fundu olíuna I
Norðursjó og urðu ríkir, hefur
viðhorf Islendinga til þeirra breyst.
Nú eru Norðmenn álitnir
leiðinlegir, vitlausir og ógeðslega
heppnir.“
Strandferð til Mururoaeyja
Fú skalt forðast að fara í
sólarlandaferð til Mururoaeyja þar
sem kjarnorkutilraunir Frakka fara
fram. Sérstaklega gæti verið
óskynsamlegt að fara í fótabað á
ströndum eyjunnar - fæturnir
gætu orðið eftir. Miklu
skynsamlegra væri að fara til
Frakklands enda hinum megin á
hnettínum. Fá gætir skroppið til
Montpelier vegna þess að hálft
þriðja árið í frönsku I Háskólanum
hefur flúið þangað yfir veturinn.
Frátt fýrir óneitanlegt aðdráttarafl
ræður Stúdentablaðið þér líka
eindregið frá því að leggja í
sundferð yfir Eystrasaltið þar sem
sannanir hafa verið færðar á að það
sé enn mengaðra en hafið sem
umlykur Mururoa-skerin.