Fálkinn - 31.03.1928, Síða 6
6
F Á L K I N N
Haraldur Níelsson, prófessor, dáinn.
íslensk þjóð hefir nýlega orðið að sjá á bak einum sinna glæsileg-
ustu kennimanna og fræðimanna. Síra Haraldur Níelsson, sem and-
aðist hinn 11. þ. m. eftir uppskurð við gallsteinum á sjúkrahús-
inu í Hafnarfirði, varð þegar á unga aldri þjóðkunnur maður
fyrir vísindastarfsemi sína og hið mikla þrekvirki er hann leysti
af hendi með þýðingu sinni á gamla testamentnu. Yngri kynslóð
presta vorra þekkir hann sem hinn ágætasta kennara og þjóðin
öll sem hinn ágætasta kennimann, sumpart af eigin heyrn og suin-
part af hinu ágæta prjedikanasafni hans „Árin og eilífðin“. Þá
var hann frægur um land alt og eigi siður með öðrum þjóðum
fyrir starf sitt i þágu sálnarannsóknanna og hefir aðalrit hans um
það mál „Kirkjan og ódauðleikasannanirnar“ verið þýtt á erlend
tungumál. Yoru sálnarannsóknirnar honum hið hjartfólgnasta
mál, enda að hans áliti besta leiðin til að glæða trúarlíf og auka
trúarvissu manna. Nafn síra Haraldar mun lengi lifa með þjóðinni.
Dr.med. Helgi Tómasson
er nýlega kominn hingað til
lands og sestur að í Reykjavík.
Er hann ráðinn geðveikralæknir
hjer, enda hefir geðveiki verið
sjerfræðigrein hans í mörg ár.
Hefir hann starfað við erlend
sjúkrahús í allmörg ár síðan
hann lauk prófi og hlotið meira
lof fyrir dugnað sinn, en títt er
um svo unga menn. Á síðast-
liðnu hausti ávann hann sjer
doklorsnafnbót í læknisfræði og
hafa sjerfræðingar farið aðdá-
unarorðuin um ritgerð hans. Er
gott til þess að vita að hann
skuli nú vera sestur hjer að,
svo ættjörðin megi njóta hinna
ágætu hæfileika hans. — í fyrra-
vetur vakti dr. Helgi mikla at-
hygli og umtal fyrir tilraunir sín-
ar i þá átt að nota dáleiðslu í
stað svæfingar við sjúklinga, sem
holskurðir voru gerðir á. Var
afar mikið rætt um þessa nýju
aðferð, og var ekki laust við að
hrollur færi um sumt gamla
fólkið, sein álítur dáleiðslu litið
betri en galdra.
Tækifærisgjafir
í stærsta úrvali.
Leðurvörudeild
Mjóðfærahússins.
R E Y N I Ð
Svo framarlega sem þjer getiö ekki lesiö
þessar smástöfuöu línur, í um 30 cm. fjar-
Íægö, hafiö þjer lengi haft þörf fyrir gler-
augu. Snúiö yöur þessvegna sem fyrst beint
til gleraugna-sjerfræöingsins, Laugaveg 2.
Hann er elsti og þektasti á Islandi á þessu
sviöi. Meö fullu trausti getiö þjer látið hann
máta og slípa gleraugu yöar.
Laugaveg 2-gleraugu skýra mest, hvíla
best og vernda sjönina fyrir skaölegum
geislum.
Gleraugnabúðin Laugaveg 2.
Sími 2222.
Ólafur F. Davíðsson, kaupmaöur,
varö sjötugur 25. þ. m.
'ÉÆ
Magnús Matthíasson, stórkaupmaður,
veröur fertugur 3. apríl.
100 ára minning.
í dag eru 100 ár liðin frá fæð-
ingu Magnúsar Jónssonar prests
í Laufási. Gegndi hann prests-
embætti i 44 ár, þaraf síðuslu
18 árin í Laufási og dó þar 1901.
Hann var kunnur uin land all fyr-
ir starf sitt fyrir bindindismálið
og hjelt út riti þvi til eflingar.
Meðal barna hans voru Jón heit-
inn forsætisráðherra, Ingibjörg
kona síra Björns heitins i Lauf-
ási og Sigurður læknir á Vifils-
stöðum.
HINN viðfrægi landi
vor, Pjetur Á. Jónsson
söngvari, hefir í vetur
bætt ýmsum nýjum
hlutverkum á hina
löngu og margbreyttu
verkefnaskrá sína. M.
a. hefir hann sungið
„Samson" í leiknum
„Samspn og Dalila", og
lilotið afar lofsamlega
dóma. Pjetur var ráð-
inn til að syngja „Ot-
hello“ á kgl. leikhúsinu
i Khöfn i fehrúar, en
vegna anna hans dregst
þetta þangað til í apríl
eða maí. Er þetta í
fyrsta sinni sem Pjetur
syngur á þessu leik-
húsi, en í Þýskalandi
og Sviss hefir hann
sungið á um nærfelt 20
söngleikhúsum. Pjetur
hefir náð sjer að fullu
eftir sjúkdóminn i fyrra
og eftir þýskum blöð-
um að dæina hefir list
hans aldrei verið full-
komnari en nú.
Pjctur Jónsson sem Wnlter von Stolzini}
i „Meistarasöngvnrarnir frá Niirnberg“.