Fálkinn


Fálkinn - 19.05.1928, Blaðsíða 4

Fálkinn - 19.05.1928, Blaðsíða 4
4 F A L K I N N Skemliróður innfeéddra manna. Guineu. Óljósar sagnir herma, aö árið 1512 hal'i tveir Portú- galar, Antoio d’Alren og Fran- cisco Serrao komið lil norður- strandar eyjunnar. Og áreiðan- legt er talið, að Jorge de Memses hafi komið ti! Nýju Guineu árið 1526 og dvalið þar þangað til vorið eftir. Eftir það komu portugalskir og spánskir sjófarendur oft til Nýju Guineu og árið 1605 sigldi Torres fyrst- ur manna fyrir sunnan eyjuna: Er sundið milli Nýju Guineu og Ástralíu kallað eftir honum. Á 17. öld fóru Hollendingar að sigla til vesturstrandarinnar og eignuðust þeir allan vesturhluta eyjunnar, þó að ekkert væri gert til þess að koma þar upp bólfestu hvítra manna. Og að fráteknum fáeinum höfnuin hjer og livar meðfram ströndinni, þektu hvítir rnenn ekkert landfræði þessa mikla lands, fyr en á síðari helmingi 19. aldar. En þó mikið hafi verið unnið að rannsóknum þarna síðan, eru miklir landflák- ar enn ókannaðir með öllu. Bretar og Þjóðverjar skiftu austurhluta eyjunnar á milli sin. En á fyrstu árum heims- styrjaldarinnar lögðu Ástralíu- menn skika Þjóðverja undir sig, svo að nú eiga Þjóðverjar þar ekkert land framar. Viygirlar hcrbúiiir innfwtldra manna. 1 Beuthen í Þýskalandi fœddi kona ein nýlega fjórbura, alt stúlkubörn. Það hefir vakið mikla eftirtekt um alla Ameríku, að hinn vellauðugi steinolíukongur í Oklahama, Ernest Marland, hefir gengið að eiga stjúp- dóttur sína 30 ára gamla. Hún heitir Lydia og er eineygð. Lögreglan i Parisarborg handsam- aði nýlega italskan mann, sem hefir 9 morð og 40 innbrotsþjófnaði á sam- viskunni. Mussoliní hafði lofað há- um verðlaunum þeim, sem næðu horí-' um lifandi og kæmi honum til ftalíu. f Moskva voru tveir njósnarar dænidir til dauða um daginn. Þeir voru staðnir að ]>ví að reyna að stela leyniskjölum rauða hersins. Sjötiu manns drápu sig á einum mánuði i Bandarík junum á því að drekka eitraðan vínanda. Frægasti kricket-leikari Breta dó nýlega skyndilega, að eins 37 ára gam- all. Maður fær hugmynd um hve geð- þekkir íjiróttamenn eru bersku þjóð- inni er maður heyrir, að 100,000 manns fylgdu honum til grafar og voru margir komnir langar leiðir að til þess að vera viðstaddir sorgarathöfnina. 6 lögregluyfirmenn og fjöldi lög- regluþjóna í borginni Chuguieff i Ukraine hafa verið teknir faslir fyr- ir pyndingar á föngum i fangelsum bæjarins. Er sagt að þeir hafi kyrkt hundruð manna og pint fólkið með þvi að rífa hárin af höfðinu á því. Alþýðubókasafnið i Chicago kostar liæinn 1,600,000 dollara á ári. Sú upp- liæð fer tii launa starfsmannanna og hókakaupa. Safnið hefir 42 útliú. I því eru 22,000 liindi ,um söng og hljóm- list og 50,000 bækur á framandi mál- um, þar á meðal margar islenskar. f Sleepy Ege, Minnesota var James •lensen skotinn í Lillian, þrettán ára dóttur núbúans. Hún vildi ekki líta við honum. Svo fór hann heim tii hennar, skaut fyrst föður hcnnar, svo liana og ioks sjálfan sig. f dýragarðinum i Basei rjeðist fíll nýlega á dýravörðinn og drap iiann á einu augnabliki. Beinagrind mannsins vegur um 5 kílógrömm. Frfgn frá Basra i Irak lierinir, að Anglo Pcrsian-oliufjelagið hafi fund- ið nýjar steinolíulindir við Naft Khanck, sem er innan landamæra Persiu en undir yfirráðum olíufje- iagsins. Streymir um % miljón gall- óna al' olíu upp úr lindinni á sólar- hring. Gloria Swanson, hin nal'ntogaða kvikmyndadís Bandarikjanna, er um þessar mundir i vanda stödd. Það eru sem sje horfur á, að ef hún vill sjá manninn sinn i næstu fjiigur ár, þá verði hún að flytja búferlum til Evrópu. Maðurinn er nefnilega franskur greit'i, sem fjekk svona rjett fyrir náð, a'ð koma scm geslur til Bandaríkjanna með konunni sinni, eftir að þau gift- ust. Þegar vfirvöldunum fanst hann hafa verið þar nógu lengi tilkyntu þau honum, að nú yrði hann að fara heim lil sín, og liann þorði ekki annað. Nú er hann i Paris, að stríða við að fá að flytjast til Bandarikjanna sem hver annar innflytjandi. En það er liægra orkt en gcrt, því svo margir Frakkar liafa sótt uin inngönguleyfi i Banda- ríkin, að fieiri fá ekki að flytja þang- að næstu fjögur ár. Svolátandi saga er sögð frá borgara- styrjöldinni i Ivina: Herdeild liafði liandtekið hershöfðingja úr óvinahern- um og nú hófust samningar um að skila honum aftur. Menn hershöfð- ingjans liuðust lil að skila fjórum ofurstum gegn j>vi að fá hersliöfð- ingjanri aftur, en þvi var hafnað. Þá liuðu þeir fjóra ofursta og fjóra kapteina, en því var lika hafnað. Hvað heimtið þið mikið fyrir hers- höfðingjanna okkar? spurðu samninga- mennirnir. IJn þegar þeir heyrðu að kaupgjaldið væri 2 flösliur af whisky og fjórar dósir af niðursoðinni mjólk fjell þeim allur ketill í eld, og ljetu óvinina eiga hersliöfðingjann, heldur en að ieysa liann út svo miklu rán- verði. Nýlega var járnbrautarleiðin milli London og Glasgow, sem er C43 kíló- inetrar á lengd, farin á 8 klukku- stundum. Er það talið heimsmet í járnbrautarhraða á langri ieið. Lest- in nam livergi staðar á leiðínni. H)P7 rXiT W ' PALCO1 * * * * * * * 9 besti farfi sem hægt er að fá á járn, trje og stein. Ver ryði betur en nokkur annar farfi. Sparar menju. Einkasalar á íslandi: L „MÁLARINN", Reykjavík. mmaotiotiQotioomoaomotioo o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o OOOQOOOOOOOQOOOOOOOOOOOOO Húsgagnaverslun Kristjáns Siggeirssonar Laugaveg 13 hefir á v a 11 fyrirliggjandi vönduð og smekkleg hús- gögn. Spyrjist fyrir um verð. Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem óskað er. Virðingarfylst Kristján Siggeirsson. o o o o o o o o o o o o o o o o o o o o Smákorn, Þó lifið sje í rauninni fremur ljc- legur sjónleikur, vill þó enginn að tjaldið falli of snemma. Það er miklu erfiðara að halda orð sín en langar ræður. Einn finnur það i svefni, sem liinn eklci finnur um margar svefnlausar nætur. Sá sem talar með fyrirlitningu um kvenfóik, annaðhvort þekkir það ekki — eða þá alt of vel. Margur maðurinn hcfir farið út i lífið með þeim ásetningi að sigra heiminn. Og svo hefir hann sjálfur látið sigrast —- af konu. — Veröur spaði framvegis GULUR? 1 Bretlandi hefir verið gerð ný teg- und spila. Sjálf spilin eru svört og iitirnir öðruvísi en menn hafa átt að venjast hingað til. Spaði er gulur, ligul) hvítur, hjarta rautt og iauf grænt. Menn ætla, að hin nýja tegund spila eigi mikla framtíð fyrir sjer, einkuiu við spilaborð kvcnfólksins. Spiliu verða nefnilega, auk litanna seiu nefndir voru, einnig gerð í öðruiu. nýtisku iitum, svo frúin, sem býður vinkonum sínum upp á spil, getur val' ið litinn eftir litnum á þeim kjól, seni hún ber í hverl skifti. Og þegar kveU' fólkið berst fyrir einhverri tisku, hvað stoðar þá, þó við hinir helst viljuu1 hafa spaðaásinn svartann, ef kjóll fru' arinnar máske er grænn?

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.