Fálkinn - 28.07.1928, Side 9
F A L K I N N
9
Úlafur rikiserfingi Norðmanna,
scm 2. júli varð 2ö ára, er svo
sem mcnn vita, iþróttamaður
ágætur. Hann er duglegur skíða-
maðnr, hefir jafnvel tvisvar tek-
ið þátt i hinum heimsfrægu
Holmenkol-skiðaþrautum, bæði i
þol-hlaupi og stölck-hlaupi og er
skot- og veiðimaður ágætur. En
samt er talið að hann sje lærð-
astur i siglingum, allra iþrótta.
Að öllum likindum verður hann
fulltrúi Norðmanna á kappsigl-
ingunum á Olgmpiuleikunum i
sumar. Fara þær fram 2.—9.
ágást. Norðmenn telja sjer sig-
urinn vísan.
Mgndin er af Locbe forseta
þgska þingsins. Honum hafði
staðið tii boða að verða i þýsku
stjórninni nýsiofnuðu, en kaus
heldur að vcra þingforseti.
Mgndin er frá Peking, ickin um það Icgti sem Chang Tso Lin flýði þaðan en borgin komst i
heiidur suðurhersins. Hefir verið tiltölulega kgrt í Kína siðgn norðurherinn var gfirunninn.
Kaupsýslumenn i borginni New fíedford i Bandarikjunum mgnduðu fgrir nokkrum árum með sjer
fjtlagsskap í þeim tilgangi að hjálpa fátæklingum. I>eir gera það á þann hátt að dag hvern á á-
kveðnum stað og stundn úthluta þeir 1900 brauðum og 300 litrum af kjötsúpu, jafnt sumar sem
vetnr, hvcrnig sem viðrar. Og þcgar mötunartíminn nálgast, þgrpast fátæklingar bæjarins á vett-
vang. I>að er eftirtektarvert hve vel búið þetta fólk er, þó alt sje það blásnautt fólk.
í marsmánuði 1920 brann hið gamla leikhús, sem staðið hefir um langan aldur, i Stratford on
Avon, fæðingarbæ Shakespeare, og var þá þcgar ákveðið að reisa nýtt og stærra Shakespeareleik-
lnis á brunarústunum. Tcikningar að húsinu komu frá 72 húsmeisturum og bar sigurinn af hólmi
ung stúlka, miss Elisabet Scott. Bar dómnefndinni saman um, að teikningar hennar bæri langt af
öllum hinum. A mgndinni sjest nýja leikhúsið og i horninu mgnd af ungfrúnni.