Fálkinn - 23.11.1929, Side 5
F A L K I N N
5
N ú
er loksins komið hið langþráða
Veggfóöur
Margbreytt munstur og litir.
Allir geta fengið það sem smekkurinn þráir. Hver og
einn getur fengið Veggfóður fyrir það verð sem
hann hefir ráð á að borga.
Hvergi í borginni úr eins margbreyttum tegundum
að velja. — Allir hljóta að verða ánægðir.
Þá má ekki gleyma:
Loftrósettunum, Loftlistunum og
Veggpappanum.
Þar er hægt að gera öllum til hæfis, jafnvel þeim
allra vandlátustu. Það er því ekki um að villast
fyrir þá, sem vantar:
Veggfóður, Loftrósettur, Loftlista, Veggpappa.
Þeir eiga allir að koma í
Kirkjustræti 8 B
Veggfóðurverslun
Sveins lónssonar.
Petter^ons MnsiUkorrespondanMeisbole,
B e r e O n .
Tíu stór hefti. Nótnakensla. Fingrasetning. Æfingar. Söngvar. Hljóöfall o. fl. —
Meðmæli bestu tónlistarmanna. Kr. 16.— fyrir nemanda. Kensluskrá ókeypis.
Skólinn hefir nemendur í Noregi, Ameríku, Þýskalandi og fleiri Iöndum.
Sunnudagshugleiðing.
„Meistari, huert er hið mikla
hocíorS í lögmálinu? En hann
sagöi viS hanri: Þú skalt elska
Drottin Guð ]>inn af öllu hjarta
l>inn, og af allri sálu þinni og
af öllum huga þinum. Þetta er
hið mikla og fgrsta bodorð. En
hið annað er likt, þetta: Þú
skalt elska náunga þinn eins og
sjálfan þig. Á þessgm tveimur
hoðorðum hyggist alt lögmálið
og spámennirnir“.
Matt. 22, 34—40.
í guðspjallinu eru lagðar fyr-
ir tvær spurningar. Aðra þeirra
leggur lögvitringurinn fyrir Jesú :
Meistari! hvert er hið mikla boð-
orð i lögmálinu? Hina leggur
Jesús fyrir Faríseana: „Hvað
virðist yður um Krist?“
Milli þessara tveggja spurn-
inga er djúpt innra samhengi,
sem áríðandi er að gera sjer á-
valt ljóst.
Jesús segir, að kærleiksboð-
orðið sje stærsta boðorðið i öll-
um lögum. Alt lögmálið sam-
einast í raun og veru í þessu: að
clska Guð af öllu hjarta og ná-
ungann eins og sjálfan sig.
En hver uppfyllir þetta boð-
< rð? Hver getur uppfylt það. En
einmitt hjer keinur hin spurn-
ingin til athugunar: Hvað virð-
ist yður um Krist? Því þeíta, að
geta fullnægt kærleiksboðorðinu
er að mestu leyti undir því kom-
ið, hvað manni virðist um Krist.
Án þess að opna hjarta sitt
fyrir Kristi getur inaður aldrei
orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að
eignast kærleikann, eins og hann
í raun og veru er, og eins og
Jesús gerir ráð i'yrir honum. En
eftir því, sem þú kemst i nánara
samband við hann, því hægra
verður þjer um uppfylling kær-
ieiksboðorðsins. Hvað er Krist-
ur þjer? Finnur þú til þess, að
hann sje endurlausnari þinn.
Ertu þess meðvitandi hvað hann
hefir sýnt þjer mikinn kæileika?
Fyr en þjer skilst þetta, þýðir
ekki að reyna að gera sjer grein
fyrir hvað kærleiksboðorðið er.
Um tíma og eilífð er öll vel-
ferð mannsins undir þvi komin,
að hann muni ávalt hið mesta
boðorð. Og vorkunnarlaust á það
að vera að hafa boðorðið i
minni, því öll hjervistarsaga
frelsarans var ein samfeld boð-
un kærleikans og með dæmi sínu
sýndi hann oss svo þráfaldlega,
hvað kærleikurinn er.
Afstaða hjartnanna til Jesú er
í raun og veru mest komin und-
ir afstöðu einstaldingsins til
kærleiksboðorðsins. Þeir sein
náð hafa samvistum við Guð í
orði hans, þeir verða ósjálfrátt
fyrir þeim áhrifum, að ltærleiks-
boðorðið verður ekki aðeins
hugtak heldur ináttarstoð í öllu
lífi þeirra og stýrir gjörðum
þeirra til góðs vegar.
UM V(Ð A
V E R Ö L D .
SÍÐASTA FERÐ „KEISARANS“
Bretar hafa nýlega látið lyfta af
mararbotni þýska lierskipinu „Kaiser"
sem hjóðverjar söktu sjálfir, er þeir
afhentu Bretum herskip sín í Scapa
Flow. Skipið var auðvitað gersamlega
eyðilagt og ekki til annars nothæft en
láta höggva það upp og selja stálið
og járnið sem rusl. — Myndin er tek-
in úr lofti.
MEÐAL VIÐ TANNPÍNU
Á nýafstaðinni auglýsingasýningu í
Bedlín var margt nýstárlegt cg ekki
siður skemtilegt á auglýsingasviðinu.
T. d. var þessi mynd á stóru spjaldi
— sem augiýsing á meðali við tann-
pínu.
VIÐ KVEFI
og sjerstaklega þegar smitandi kvef
og sóttir ganga, reyna menn að verj-
ast þessum kvillum eftir megni. Eru
ýms ráð og lyf til þessa. Margir
læknar ráðleggja kvefmeðalið „Forma-
mint“, enda er það afar mikið notað,
bæði til þess að verjast kvefi og hæsi
og eins til þses að ráða bót á þvi,
hafi maður fengið það. Sem varnarlyf
er það örugt því það drepur smitun-
argerlana.
Formamint fæst í flestum lyfja-
búðum.
Samkvæint þýskum hagskýrslum
hefir miljónamæringum þar i landi
fjölgað um 130 á siðasta ári og eru
þeir nú taldir 2465 alls. En eigi hefir
almenn velmegun batnað að sama
skapi, livorki meðal bænda, iðju-
hölda nje kaupsýslumanna. Af þeim
62 miljónum manna, sem teljast
þýskir þegnar eru aðeins 2% miljón,
sem telja fram meira en 5000 inarka
skuldlausa eign.
Budy Climinio hjet maður, sem
hafði það að atvinnu að framkvæma
ýms áliættuverk i kvikmyndum, svo
sem að kasta sjer ur einni flugvjel i
aðra, klifra ofan húsveggi og þvi um
líkt. Nýlega var hann að leika listir
sinar í Chicago, fyrir kvikmyndafje-
lag eitt og átti að lesa sig i kaðli
ofan frá 44. hæð i liúsi og niður á
götu. í miðju kafi fataðist honum og
hrapaði liann niður á strætið og beið
bana. F’jöldi áliorfenda var staddur
fyrir neðan og einn þcirra varð fyrir
Climinio og beið bana. Og vitanlega
urðu örlög Climinio sjálfs hin sömu.
„... Jeg nota að staðaldri
Sanatogen handa siúklingum mín-
um og ætla mjer framvegis að
ráðteggja yðar ágæta, já ein-
stæða, lyf“, skrifar kunnur dansk-
ur læknir um lyfið, sem hefir
yfiv 25 000 vottorð í læknaheim-
inum og hefir verið þaulreynt, nfl.
Styrktar- og taugalyfið
ByrjiD strax í dag meö Sanatogenkúr, ef yöur
finst þér vera slitinn og þreyttur.
Fæst í öllum lyfjabúðum á d. kr. 1.85.
Óskist frekari upplýsingar, þá notiö meö-
fylgjandi miða. A/S Wúlfing Co.t Afd.
Sanatogen. Sct. Jörgens Alle 7, Kbh. V.
Sendiö mjer ókeypis og buröargjaldsfrítt:
Sanatogen sýmshorn og ritling.
Nafti______1_____________________________
Staða___
Heimili_