Fálkinn


Fálkinn - 18.10.1930, Blaðsíða 3

Fálkinn - 18.10.1930, Blaðsíða 3
F A L K I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. rtitsljórnr: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdasti.: Svavar Hjaltested. AOalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa l Oslo: Anton Schjöthsgade 14. Blaðið kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði: kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. AuglýsingaverO: 20 aura millimeter Herbertsprent, Bankastrœti 3. Ásbjörn Ólufsson trjesmiður, Þingholtsstr. 22, varð sjötugur 15. þ. m. Halldór Skaftason fgrv. simstj. verður fimtugur 20. þ. m. Kristinn Brynjólfsson skipstjóri varð fimtugur 15. þ. m. Skraðdaraþankar. „Hugur ræður hálfum sigri“. Hug- ur stýrir hönd og ef höndin er eltki lömuð getur hún unnið stórvirki, þó hún sje ekki sterk, ef aðeins ein- beittur vilji er við stýrið. Með vaxandi menningu færist verk svið mannanna af hendinni yfir á hugann. Fullkomnun sú, sem mann- kynið stefnir fyrst og fremst að nú, er i því fólgin að „vinna með höfð- >nu“ en draga úr líkamlegri orku- heiting einstaklingsins. Og eftir því sem gengi þessarar stefnu vex, eykst einnig gildi máls- háttarins. Hugur ræður þeim mun frekar hálfum sigri, sem starfið fær- ist meir yfir á sálina. Sá tími er þeg- ar liðinn, að mennirnir og mann- gildið var metið eftir líkamskröftum. Stefna alheims er sú, að gera lík- omann sem þýðingarminstan aðila þeirrar heildar sem kölluð er mað- Ur. Svo hefir það ætíð verið, en á- rangurinn hefir aldrei verið jafn mikill og fljótfenginn og á síðustu áratugum. En þessi stefna er ekki nema þáttur úr því hlutverki, sem sköpunarsagan segir, að manninum hafi verið fengið i öndverðu: að gera Jörðina sjer undirgefna. En í leitinni að því að koma sem mestu til leiðar í þessu efni hefir mörgum farið eins og stráknum sem keypti buddu fyrir einu krónuna sem hann átti — til þess að geyma i henni sömu krónuna. Menn hugsa oft svo mikið um að gera jörðina sjer undirgefna, hugsa svo mikið um að koma erfiðinu af líkamanuin, að þeir gleyma að leggja rækt við það, sem var takmark aljs: að veita and- anum ný lífsgildi. — Verða betri inaður og meiri. Og í hverju er það fólgið nema því, að samræma sjálfan sig sem best þvi umhverfi, sem maðurinn lifir i. Sú samræming er undirstaða allra lifsvísinda. Að „una glaður við sitt“, hvort sem liað er mikið eða litið, er hollasta heilræðið, sem maðurinn getur tekið sjer. Því ef hann gerir það þá á hann meiri auð og lifir sælli en sá, sem altaf er að vinna sigra á efninu. Lífsgleðin er í þvi fólginn að hafa unnið sigur á sjálf- Uin sjer. Nýjasta skip Eimskipafjelags íslands. Nýjasta skip Eimskipafjelags íslands kom til landsins fyrir rúmri viku og byrjar nú sigl- ingar lijeðan til Hamborgar og Englands. Eins og þau skip, sem fjelagið hefir látið gera á síð- ari árum — Goðafoss og Brúar- foss, er Dettifoss einkum ætlaður til vöruflutninga, en hefir þó far- þegarými fyrir 36 manns alls og er mjög vel til þess vandað. Skip- ið er 235 fet á lengd og að lögun mjög ámóta Brúarfossi, en þrátt fyrir það, hefir það miklu meira lestarrúm. Athyglisvert um skip þetta er ekki síst það, að vjelin (Lenz-vjel) er með ýmsum um- bótum, sem spara stórum elds- neyti en gefur þó meiri orku en jafnmörg hestöfl í skipi eins og t. d. Goðafoss. Samanhurður á vjelum þessara tveggja skipa verður þannig, að með 1100 hest- afla orkunotkun á báðum eyðir Goðafoss 15 smálestum kolaásól- arhring en Dettifoss ekki nema þrettán og gefur þóskipinukvart- mílu meiri hraða á klukkustund Umbætur og nýjungar eru þarna í ýmsum fleiri greinum, t. d. i stýrisútbúnaði. Er hægt að stýra skipinu frá þremur mis- munandi stöðum, og getur þetta oft komið að haldi. — Dettifoss er smíðaður í Frederilcshavn og hefir Emil Nielsen fyrv. fram- kvæmdarstjóri sjeð um smíðina og ráðið mestu um tilhögun skipsins. Mun mega telja Detti- foss fullkomnasta og hraðskreið- asta skip íslenska flotans. Áteiknaðar hannyrðir fyrir hálfvirði. Til þess að auglýsa verslun vora ot? gcra áteiknaðar vörur vorar kunnar um alt fsland á scm skjót- astan hátt bjóðum vjer öllu is- lcnsku kvcnfólki eftirtaldarvörur 1 áteikn. kaffidúk .. 130xl30cm. 1 — ljósadúk .. 05 x 65 — 1 — „löber“ ... 35x100 — 1 — pyntehandkl. G5x 100 — 1 — ,.toiletgnrniturc“ (5 stk.) fyrir danskar kr. 6,85 auk burð- arjfjalds. Við ábyrgjumst að hannyrðirnar sjeu úr 1. fl. Ijerepti og með feg- urstu nýtisku munstrum. Aðeins vegna mikillar frnmleiðslu getum við gert lietla tilboð, sem er liafið yfir alla samkepni. Sjerstök trggging vor: Ef þjer eruð óánægð sendum við pen- ingnnn 1 i 1 hnka. Pöntunarseðill: Fálkinn 19. okt. Nafn ........................... b’eimili ....................... Póststöð ....................... Undirriluð pantar hjermeð gcgn eftirkröfu og burðargjaldi .......... sctt hannyrðaefni á danskar kr. 0,85 settið, 3 sett send burðargjaldsfritt. Skandinavisk Broderifabrik, Herluf TroIIesgade 6, Köbenhnvn K. Hjer að ofan er mynd af nýja skipinu og skipstjóranum, Einari Stefánssyni. ...............................»j 1 Hellbrigði og litsgleði! . . ■ krefst heilbrigðs líkama,—Þreyta, . ■ vöntun starfsgleði, svefnleysi o. s. S 5 frv. eru ljós merki um ófullkomna S S næringu og veiklaðar taugar. Ef S 5 þjer viljið halda líkama yðar heil- S S brigðum og í fullu lífsfjöri ættuð S 3 þjer i mánaðartíma að nota hið 5 3 alkunna styrktar- og tauganæringarlyf 5 s sem hefir blóðbætandi og tauga- 5 S styrkjandi áhirf vegna eggjahvít- 3 S unnar og glycerofosfatsins sem i S 3 því er. 3 Yfir 25000 læknar hafa tilkynt 3 3 skriflega um áhrif Sanatogens. Þannig skrifar kunnur læknir: 3 „Sanatogen er ómetanlegt og ■ áreiðanlegt i ölluin þeim til- ■ fellum sem inarkmiðið er það, ■ að veita veikum likama nýja . orku“. Fæst í öllum lyfjabúðum. Sje ítarlegri upplýsinga óskað . . þá útfyllið miðann og sendið til: S S A/S Wulfing Co., Kbhvn V. Sct. S S Jörgensalle 7. S Sendið mjer ókeypis og burðar- S S gjaldsfritt: 3 Sanatogen sýnishorn og bækling. S S Nafn ........................... S S Staða............................■ S Heimili........................ B ■________ _______ .

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.