Fálkinn


Fálkinn - 31.01.1931, Blaðsíða 5

Fálkinn - 31.01.1931, Blaðsíða 5
F A L K 1 N N 5 Sunnudags hugleiðing. ■■■■■ ■■■■■ Eftir Pjetur Sigurðsson. „En leitið fyrst ríkis Guðs og rjettlætis, og þá mun alt þetta veitast yður að auki“. Matt. 6, 33. Það er eftirtektarvert að því ineir sem þekking manna eykst út um allan lieim, því betur kem- ur það í ljós, að kenning Krists er liið eina af öllum trúarbrögð- um heimsins, sem líkleg er til þess að halda velli í framtiðinni. Hinn þekti kristniboði, Stanley Jones, segist eitt sinn liafa spurt Hindúa nokkurn um álit hans á Kristi. Þessi svaraði: Það er eng- inn annar, sem með neinni al- vöru keppir um hjarta lieimsins. Það er alls ekki um neinn annan að ræða“. Stanley Jones, sem í mörg ár liefir unnið að kristni- hoði í Indlandi, og sjerstaklega á meðal æðri stjettanna, segir víða frá því í bókum sínum, hvernig lærðir ménii þar liafi oft kannast við, að gömlu trúar- bragðakerfin þeirra væru að liðast i sundur; og liversu Ind- land, jafnhliða því, sem gömlu trúarbrögðin mistu gildi sitt, sneri sjer að heimsmeistaranum mikla og gleðiboðskap hans. Kirkjurnar í mentalöudum heimsins fara ekkert dult með það, að tíminn sje kominn, þá þær verði að sameinast um Krist og kenningu hans, og setja þær ofar öllum sjerskoðunum og kirkjusiðum. Hvers vegna er þá Kristur að vinna heiminn, og einmitt á þeim tíma, sem þekk- ingin fer mjög vaxandi? Vegna þess að kenning lians er sönn lífsspeki. Hún er liin raunveru- legu vísindi, Því meiri reynslu, scm mannkynið fær, því betur mun það sjá þetta. Það eru fjármálavandræði yf- irstandandi út um allan heim. Miljónir manna ganga atvinnu- lausir. Hæfustu menn þjóðanna liugsa mikið um, hvernig ráða inegi hót á vandræðunum. Vand- ræðin snúast um„«lí þetta“, sem menn þarfnast til lifsviðurhalds. Jesús segir: „Leitið fyrst ríkis Guðs og rjettlætis, svo mun alt þetta veitast yður“. Menn hljóta að skilja að þetta, að „leita rík- is Guðs“, er það að sjá um að hið góða ríki á meðal vor. Guðs ríkið er riki liins góða. Ef þá hið góða ríkir í heiminum en ekki liið illa,ef rjettlætið ríkir en ekki rangsleitni, er enginn vafi á því, að „alt þetta“, sem menn þarfnasl mun veitast þeim að auki. Rjettlætið eitt er grund- völlur friðar og alls velgengis. Aldrei munu þjóðirnar fá „alt þetta“, sem þær sækjast mest eftir, fyr en þær byrja á rjetta éndánum og hugsa f>Tst og fremst um andlega lífið, andleg- an þroska manna, um Guðs rík- ið og rjettlætið. Þegar alt annað hefir mishepnast, munu þjóðirn- ar neyðast til að sjá sannleikann. Þurkun suðursjávar. Til vinstri á myndinni sjest fyrsti spottinn af stiflugarðinum milii Wieringen og Norður-IIolIands. Er myndin tekin úr flugufél. Að neðan á myndinni sjest höfnin i Wieringen með fióðgáttnnum, sem gerðar hafa verið við hana. Það þótti tíðindum sæta, er Iíollendingar rjeðust í það stór- virki að þurka upp stóra spildu af liinum mikla flóa Zuidersee, eða Suðursjó, sém skérst inn i landið að norðan. Suðursjór liefir löiigum verið Hollendingum erfiður. Landið kringum liann er afarlágt og' þegar vindur hlæs af norðri og flóð er í sjó gengur sjórinn á land og flæðir yfir akra lands- manna, rífur sundur stíflugarða og skemmir hús. Eru Jiessi flóð alltíð í landinu, en misjafnlega skæð. Versta flóðið við Suðursjó, sem menn færa í sögur, varð á 15. öld. Þá gereyddust fjölda mörg þorp, en fólk druknaði svo tiigum þúsunda skifti. Eins og sjá má al' uppdrættin- um, sem hjer fylgir liggja nokkr- ar eyjar, mjóar og langar lyrir inynni flóans og liafa þær verið belsta vörn við því að sjórinn gcreyddi landinu í kring, því að þær liafa að vísu dregið mikið úr flóðunum. En eyjar þessar eru svo lágar, að þær veita ekki nægilegt viðnám og oft gengur 1 "■*" r1.. "■.1... efni mundi eflaust hafa verið tekiim sá kosturinn, að hyggja varnargarð á milli þeirra, með mjóum útrásum fyrir vatnið, ðiBSRlH 1 M Byrjun varnargarða kringum sjór yfir þær. En þær eru eins og lág sandrif og fremur ófrjóar. Hefðu þær verið úr haldbetra Hjer er loftmynd af bænum Medenblik (hann sjest á uppdrættinum) og fyrir handan bæinn þurkað laiid, sem áður lá iindir Suðursjó. þurkland við bæinn Iloorn. sem fellur í flóann fyrir innan. ' Hugsjónin, að girða fyrir sjáv- arflóð í Suðurflóa og þurka upp nokkurn liluta hans, er margra alda gömul. Flóinn er mjög grunnúr, — gamalt land, sem sokkið liefir í sjó. Og eins og nienn vita eru landþrengsli mikil í Hollandi. Var það því ekki nema eðlilegt, að menn freistuðu að ná aftur þvi, sem sjórinn hafði frá þeim tekið. En það var ekki fyr en með vaxandi verk- legri þekkingu manna á siðustu öld, að þessar fvrirætlanir og ráðagerðir komust í fast liorl'. Verkfræðingarnir fóru að gera á- ætlanir og uppdrætti, bændur, sem áttu land að flóanum fóru að mynda „þurkunarfjelög“ og árið 1894 var svo vel á veg kom- ið, að nefnd sem stjórnin hafði kosið til þess að rannsaka málið,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.