Fálkinn - 11.04.1931, Blaðsíða 9
FÁLKINN
9
Einn af þeim íþrótaviðburðum sem ávalt er tekið eftir í Eng-
landi er víðavangshlaup það, sem skólinn í Eton heldur á liverju
ári. Það er alls ekki við lambið að leika sjer, að renna þetta
skeið, því að bæði verður að hlaupa yfir girðingar, gegnum
skógarkjarr og vaða læki. Á myndinni sjást þátttakendur vera
að vaða yfir lœk, en aragrúi af skólafólki horfir á.
Alfons Spánarkonungur hefir ekki átt sjö dagana sæla í vetur,
því að öflugur flokkur landsmanna vill óður og uppvægur koma
honum frá og gera landið að lýðveldi. Iíonungurinn lætur þetta
ekki á sig fá og sækir skemtanir og stundar veiðar eins og áður.
Myndin sýnir hann í veiðiför ásamf tveimur herforingum sínum,
og virðist liggja vel á honum.
Hubertus Wilkins er nú um það bil að leggja upp i hinn nýstár-
lega leiðangur sinn til norðurheimsskautsins í kafbáti. f allan
vetur hefir verið unnið ósleitilega að undirbúningi fararinnar og
nú er sagt að alt sje til reiðu. Hjer á myndinni sjest Wilkins vera
að brölta niður úr kafbátnum, frá því að líta eftir viðgerðinni
á honum. Hafa verið gerðar gagngerða breytingar á bátnum.
Hvergi í heimi er jafnmikið um bifreiðar og í Bandaríkjunum.
Þar eru bifreiðarnar orðnar að plágu í stórborgunum, því að
göturnar rúma alls ekki umferðina. Hvergi er ástandið eins
slæml eins og í New York, en þar eru umferðarvandræðin orð-
in svo mikil, að á sumum götum er farið að byggja palla yfir
endilöngum slrætunum miðjum og eru þeir bygðir sem akbraut
ir handa bifreiðum. Myndin hjer að ofan sýnir svona veg. .