Fálkinn - 12.03.1932, Blaðsíða 8
8
F Á L Ií I N N
Skíðaíþróttin ryður sjer rúms með
Iwerju árinu sem líður og sjest það
ekki lwað síst þar, sem fólk af ýmsum
þjóðum safnast saman sjer til heilsu-
bótar og skemtunar eins og l. d. á
háf jallagistihúsunum í Sviss. Áður fyr
gerðu gestirnir mest að f jallgöngum —
skíðalaust — eða þá að því að aka á
svokölluðum „hobsleighs“, en mí er
orðið minna um þá en áður en skíða-
göngfólkinu fjölgar. Skíðagöngur
þykja orðin besia íþrótt allra vetrar-
íþrótta. Samt standa engir Norðmönn-
um á sporði í þessari grein, en sldða-
iþróttin í þeirri mynd sem hún er iðk-
uð nú, er þeirra verk fremur en allra
annara. Þeir eru sóttir austur lil Jap-
an og vestur lil Ameríku og suður til
Ítalíu, Sviss og Frakldands til þess að
kenna, og þó að Ameríkumenn legðu
alt kapp á, að sigra í skíðagöngum á
Olympsleikjunum í Lake Placid nýlega
urðu Norðmenn hlutskarpari, þó litlu
munaði. Hjer er til vinstri óvenjulega
góð mynd af skíðamannahóp, sem
þeysir niður brekku á fleygiferð. Hún
er tekin suður í Sviss.
Tel Aviv í Gyðingalandi er mesti Gyðingabær heimsins og tel-
ur 40.000 íbúa, alt Gyðinga. Borgin er bygð með nýtísku sniði,
eins og myndin ber vott um.
Svona lítur amerískur dollaraseðill út, hinn almáttugi dollar,
sem hreykir sjer hátt á gullgildinu og kostar nú um sex krón
ur íslenskar í stað þess að rjettu lagi er hann ekki nema 372
aura virði. Dollarinn er án samanburðar sterkasti peningur
heimsins og ekki sambærilegur við suma aðra, þó að þeir lialdi
enn gullgildi, því að Bandaríkjamenn eiga meira gull en nokk-
ur önnur þjóð og því er tryggingin fyrir seðlunum i lagi. En
þrátt fyrir þetta hafa Bandaríkjamenn af eymd og atvinnu-
leysi að segja ekki síður en aðrar þjóðir, því jafnvel þeir eru
ekki sjálfum sjer nógir. Lamist heimsviðskiftin, þá lamast von
bráðar hagur allra þeirra þjóða, sem nokkra verslun hafa við
önnur lönd og enginn græðir en allir tapa.
I
Borgarstjórarnir í London eru viðurkendir fyrir glaðværð.
Myndin hjer að ofan er frá góðgerðaskemtun í Fulham og sýn-
ir borgarstjórann i Hammersmith setja hátíðina með því að aka
í rennibraut.
1 enslcum þorpum er það siður að steikja lieilan uxa á torg-
inu einu sinni á ári og jeta þorpsbúar hann í sameiningu.
Myndin sýnir þetta. Smiðurinn í þorpinu hefir tekið að sjer
að vera bryti.