Fálkinn - 12.03.1932, Side 9
F Á L K I N N
9
Hver skyldi trúa, að maðurinn, sem er að tala við knattspyrnu-
manninn þarna á myndinni, sje hinn alræmdi bófi Al Caporie.
Þetta er nú svona samt, en nú horfir Al ekki á knattspyrnu,
því að hann er í steininum. Knattspyrnumaðurinn er að skrifa
nafnið sitt í bók sonar Al Capone.
Brjefdúfurnar eru enn mikið notaðar í ófriði, þrált fyrir loft-
skeyti og flugvjelar. Hjer á myndinni sjást þýskir hermenn
vera að sleppa brjefdúfum á flug. Varðmaðurinn er tilbúinn
að skjóta, ef ránfugl ræðst á dúfurnar.
Þarna á myndinni er verið að reyna nýja tegund af gleri,
sem á að þola að skotið sjer á það. Rúður úr þessu gleri á
einkum að nota í bönkum, til þess að verja starfsmenn árás-
um bófa.
Þessi mynd er af víðkunnustu turnklukku heimsins, Big Ben,
sem eins og kunnugt er, er í turninum á þinghúsinu í Lonndon.
Myndin er tekin um nótt og þá heyrist einna best til klukk-
unnar, ve.gna kyrðarinnar.
Hinn ungi frárekni keisari í Kína, Hsuan Tung, sem menn kann-
ast betur við undir nafninu Henry Pu-Yi, sjest hjer vera að
heilsa enskum liðsforingja áður en hann fór frá Tientsin i
vetur. Japanar hafa tekið að sjer að „vernda“ keisarann og
það eru japanskir hermenn, sem eru kringum hann.