Fálkinn - 26.11.1932, Blaðsíða 3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjávík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
BlaSið kemur úl hvern laugardag.
Askrit'larverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftanir greiðist fyrirfram.
Augiýsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddaraþankar.
Sælla er að gefa en þiggja, segir
máltækið. Og hjer er eigi aðeins um
að ræða gjafir í venjulegri merkingu
þess orðs, heldur svo margl og
margt annað. Manninum er það eðli-
legt að vera fremur veitandi en
þiggjandi alveg á sama hátt og hann
vill heldur iáta kalla sig stóran
IVemur en iitinn. Hann vili vera yf-
ir meðaltalinu, I hverju sem er og
livar sem er.
En þetta kemur fram í svo ótal
mörguin myndum, eftir innræti þess
sem í hlut á. Hjá sumum er það alls
ekki manngæskan, sem stjórnar
hvötinni til þess að vera gefandi eða
veitandi, heldur miklu fremur for-
dildin, löngunin til þess að lála aðra
luka eftir sjer. Og það eru ekki altai'
gjafir, sem þessir menn gefa. Þaö
eru eigi sjaidnar ráð — bendingar,
sem þessi og þessi gefur almenningi,
þeim sem hann telur fátækari að
vitsmunúm en sjálfan sig. En ti!
þess að þessar gjafir verði ekki
hermdargjafir, verður sá, sem gef-
ur, ekki aðeins að’ þykjast heldur
einnig að vera betri þekkingu bú-
inn í þeirri grein sem hann gefur
ráðin, því annars er ver farið en
heima setið. Ráðin hans verða til
óláns og gjöfin verður skaðsamlegt
launráð, sem villir í stað' þess að
leiðbeina. Og gefandinn, sem ef til
vill nýtur gjafarinnar um stund,
fær liana endurgoldna síðar, þeg-
ar öllum er orðið ljóst að hún var
hermdargjöf.
Það er sagt, að æ sjái gjöf til
gjalda. Að jafnaði gerir liún það
en þegar dæmt er um gjaldið,
verður fyrst kleift að meta hvers
virði gefandinn er. Það virðist eng-
in góðmenska eða göfuglyndi, að
gefa gjafir ef aðrar venjulegar eiga
að koma i staðinn. En gjaldið get-
ur líka verið það eilt, að viðtak-
andi hafi gleði og gagn af gjöfinni
það sje gefandanum nóg. Og þá
kemur fram hið fagra við gjöfina.
Af slíkum gjöfum verður aldrei of
mikið því að þær auka á gleðina
samlyndið og velvildina í veröld-
inni, og af þvi er aldrei of mikið.
Og það er ekki stærð gjafarinnar
heldur hugur sá, sem henni fylgir,
sem ræður hinu sanna veðmæti
hcnnar. Gamla sagan um périing
ekkjunnar er enn i fullu gildi og
verður það ætíð.
Það verður sannleikurinn i þessu
máli, að því aðeins er sælt að gefa,
að einnig sje sælt að þiggja sömu
gjöfina. Þetta verður aðalatriðið
um allar góðar gjafir og segir til
um huginn, sem gjöfinni fýlgir.
Hinum gjöfunum, sem erfill er að
taka á móti, fylgir ætíð baggi, sem
dregur úr gildi gjafarinnar og á-
nægju þess, sem gelur.
RÁLKINN 3
Síðastliðið sumar skeði nú ný-
ung að tekin var lil afnota í Bol-
ungarvík sundlaug, sem hituð er
með kolum. Hefir U. M. F. Bolung-
arvikur gersf brautryðjandi i þessu
efni, er jiað hefir sýnt fram á, að
hverju bygðarlagi er mögulegt að
koma upp sundlaug, þó ekki sje
jarðhiti fyrir hendi. Það er ekki
altaf, að jarðhitinn er þar, sem þörf-
in er mest fyrir sundlaugina og
nægir þar að minnast á ísafjarðar-
djúp. Þar er jarðhiti og laug á
Reykjarnesi, sem fullnægir almenn-
um kröfum að öðru leyti en því,
hve úrieiðis hann er fyrir allan
þorra sjómanna við Djúpið, sem þó
öðrum fremur þurfa að læra að
synda án þess að slökkva niður
vinnu. Kostnaðaraukinn sem leiddi
af kolahituninni yrði ekki nema
hverfandi hjá uppihaklskostnaði að
heiman og vinnutapi.
Bolungarvík á all sitt undir sjón-
um og því glæfralegt að hugsa til
jjess, að sjómenn væri ósyndir.
Enda sýndi það sig, að menn kunnu
vel að meta laugina undir eins og
hún tók til starfa. Eftir fyrsta sum-
arið eru 200 manns, karlar og kon-
ui orðin synd i kaúptúninu. Og
eftir þeirri stuttu reynslu sem fengin
er, verður það ljóst, hve mikils
virði er að því, að sundkenslan
geti farið lram í kauptúnunum sjálf-
um eða mjög jiiálægl þeim.
Það var áræðisverk að byggja
sundlaugina, þar sem ekki var áður
fengin innlend reynsla um, hve
mikið upphitunin kostaði og hvort
hún yrði ekki svo dýr, að ver væri
farið en heima setið. en nú er
reynsla fengin um þetta og þarf
þvi eklci að vera í vafa um það
framar, að svona laugar koma að
fullum notum í kuptúnum, upphit-
unarinnar vegna.
Alls kostar sundlaugin ca.13.500
kr. ,eins og hún stendur nú (er þó
eftir að sljetta hana að miklu leyti).
Þar af nemur opinber styrkur ca.
3000 kr. samtals, en hitt liefir ung-
mennafjelagið lagt til. í sambandi
við laugina hefir verið ákveðið að
reisa vandaðan íþróttaskóla og hirl-
ist hjer að ofan teikning af framhlið
lians. Eiga Bolvíkingar þakkir skil-
ið fyrir framtakssemina iOg væri ilt
lil þess að vita, ef næsta Alþing
sæi sjer ekki l'ært að ljetta undir
með Bolvíkingum, að fullgera laug-
ina og koma upp skólanum. En frá
rikinu hefir l’yrirtækið ekki fengið
nema 1200 króna styrk. — Vest-
mannaeyingar hafa þegar fengið all-
ar upplýsingar um laug þessa og
mun það tilætlun þeirra að koma upp
annari svipaðri. Og U. M. F. Bol-
ungarvíkur er ánægja að því, að
veita öðrum fjeiögum sem óska
kynnu, allar upplýsingar um fyr-
irkomulag og rekstur sundlaugar
sin nar.
II. F.
Ilannes Jónsson hafnsögumUður í
Vestmannaeyjum varð áttræður 21.
þ. m. Hann hefir haft náin kynni
við Ægi síðan hann var 11 ára og
17 ára varð hann formaður, en hafn
sögumaður Eyja hefir hcmn verið
í 45 ár og er það enn. Munu engir
Vestmanneyingcir lelja sjer það til
miska þó að Hannes sje talinn
mestu prýði hinnar djörfu sjósókn-
arasveilar, sem Vestmannaeyjar hafa
á að skipa, og sem hafnsöffumaður
hefir hann leyst starf sitt þannig
af hendi, að liann hefir hlotið allra
lof fyrir. —- .4 afmælisdaginn hjeldu
Eyjarskeggjar Hannesi samsæti og
kusii hann fyrir heiðursborgara.
Gunnltiugur Stefánsson kaupm.
Hafnarf. varð hO ára 17. þ. m.
Útvarpsnotendur
munu sjerstaklega fagna út-
komu þessarar bó.kar, því að
höf. hefir nú að undanförnu
lesið nokkra af köflum henn-
ar upp í Útvarpið. — Sá er
vill eignast skemtilega og
jafnframt fróðlega bók kaupir:
BORGIN ,
EILIFA
OO AÐRAR PEKOA.MINNINOAR
Fni Margrethe Kaldalóns,
Gritidavík, vrrður 50 ára i dag.
Gísli IIelgason frá Egilsstöðum
/ Vopnafirði, nú á Þingeyri,
varð 70 ára 21 þ. m.
Eyjólfur Guðmundsson i Hvanuni,
dbrm. og riddari fálkaorðunnar
verður 75 ára 3. des. n. k. — Þessi
nafnkunni hjeraðshöfðingi hefir
gegnl fjölda mörgum störfum inn-
an sveitar og sýslu um tangan ald-
ur. — Munu margir hugsa hlýtt til
Eyjólfs á þessúm tímamótum æfi
hans.
fí. S.
BÓKAVBRSLUN SIGURDAR KRISTJANSSONAR
Fæst hjá bóksölum.