Fálkinn - 06.05.1933, Side 12
12
F A L K I N N
CL'
Oíympsleikarnir næstu
vevða að öllu forfallalausu haldn-
ir í Berlin árið 1930 og er þýska
Olympsleikjanefndin, undir forusUi
dr. I.ewald tekin að undirbúa þá.
iíefir leikvangurinn verið valinn,
gerðar ráðstafanir til þess að sjá
borgið fjárhagsblið niálsins og farið
að ræða um hvernig eigi að sjá
gestunum fyrir samastað og að-
hiynningu. — Berlínarbúar fengu
fyrir skpnnnu að finna, að nefndin
var fárin að athuga fjárhagshlið-
ina. Þeir sem koinu á reiðmanna-
inót eitt, sem haldið var í Berlín
nýlega urðu ])ess varir, að auka-
skattur, sem nam tíu pfenningum
var lagður á aðgöngumiðana, til á-
góða fyrir leikina. Verður sami
skattur, svonefnt Olympia-Groschen,
lagður á aðgöngumiða að öllum
meiri háttar íþróttasýningum i
Þýskalandi til 1930. Ennfremur
verður stofnað happdrætti lil ágóða
fyrir leikina.
Olympsléikirnir í Berlín eru vel
settir að því leyti. að allar íþrótta-
greinar, nema kappsiglingar og
kappróður, geta farið fram svo að
segja á sama staðnum, nfl. á hinuin
fagra leikvangi í Griinéwald. Verð-
ur bætt við sætum á leikvanginn,
svo að þar geta setið 80.000 marins.
Þarna verður einnig háð knatt-
spyrna og tennis, sem á ný er lög-
tekið sem olymþsiþróttir. Hnef-
leikar og grísk-rómversk glíma verð-
ur háð í stórhýsi einu, kappsigl-
ingar og róður er ekki hægt að
halda í vestur-Berlín og þessvegna
verður að hafa það austan við
borgina í Griinau og Miiggelsee.
Formaður Olympsleikjanefndar-
inna-r sem var dr. Lewald gerði ráð
fyrir, að nálægt 4000 þátttakendur
verði i leikjunum en að 35—40 þús-
und gestir komi þangað frá öðr-
um löndum. Og sem áhorfendur
bætast við allir áhugamenn frá Ber-
lín. sem telur yfir 4 miljónir íbúa,
með úthvei'funum, og innan 300
km. fjarlægðar frá borginni eru yfir
tíu borgir, með íbúatölu frá 100.000
til 1.500.000 íbúa. Er því reiknað
með hálfri annári miljón áhorfenda
alls. é*
Þjóðskáldið Gerhardt Hauptmaun
ætlar að yrkja Odympsdrápu fyrir
tækifærið og líkneski sigurgyðjunn-
ar verður lánað frá Pergamonsafn-
inu og sett upp við leikvanginn og
fyrir framan ]iað á að afhenda sig-
urvegurunum verðlaunin.
Stóra •nijtidin, sem hjer fijlgir er af
opnun siöustu Olympsleikja í Lo.>
Angelés, en sú litla af dr. Lewald.
Hvernig prinsessan kom drekanum til að gráta.
Það var einu sinni konungur,
sem átti yndislega fallega dóttur,
og á hverju ári hauð konungur lil
sín hinum allra tignustu gestum,
til ]jess að halda upp á afmælisdag
hennar.
Svo skeði það einmitt þegar
kóngdóttirin varð tuttugu ára, að
hinn ungi Volmer kóngssonur frá
nágrannaríkinu kom, og varla höfðu
þau, hann og Rósa kóngsdóttir sjest
fyr en þau vissu, að þau vildu ekki
giftast, nema þau fengju hvort ann-
að.
„En hvað það er skemtilegt,
börnin góð“, sagði konungurinn, „að
Til daglegrar notkunar:
„Sirius“ stjörriukakó.
3 Gætið vörumerkisins.
DansUar og erlendar bækur
BÆKUR
Fagrar bókmentir og
kenslubækur
fást fljótast frá
EINAR HARCK
Dönsk og erlend bókaverslun
Fiolstræde 3. Köbenhavn K.
ykkur skuli þykja svo vænt hvort
um annað, að þið viljið giftast. Þá
höfum við trúlofuriarveizluna núna
og höldum svo brúðkaupið næsta
ár“.
Það varð mikil gleði, þegar þetta
var tilkynt, aðeins einn varð reið-
ur - það var "aldrakarlinn Svartur.
„Þetta verður að kallast aftur“,
sagði hann. „Prinsessan á að giftast
injer — það hefi jeg ákveðið“‘.
,,.lá, en jeg vil ekki eiga galdra-
karlinn", sagði Rósa , kóngsdóttir.
„Þá skaltu að minsta kosti ekki
fá Volmer prins“, sagði hinn vondi
galdrakarl. Ilann sagði nokkur
leyndardómsfull orð — og sama
bili breyttist hinn ungi, fallegi
kóngssonur í hræðilegan dreka. Eu
hvað kvenfólkið æpti, þegar það
sá drekann. Allir riddárarnir og
kóngssynirnir þrifu sverð síii til
þess að verja kvenfólkið, en Rósa
kóngsdóttir hrópaði hátt: „Gerið
kóngssyninum ekkert mein, hreyfið
hann ekki. Hvort sem hann er prins
eða dreki, þá á hann að vera hjer
hjá mjer, og jeg ætla að sjá fyrir
lionum“.
Galdrakarlinn var horfinn, og
gestirnir flýttu sjer nú einnig burþ
Prinsessan og drekinn urðu eiu
eftir.
„Jeg ætla að sjá fyrir þjer, ves-
lings Vohner“, sagði hún vingjarn-
lega, hún var alls ekki hrædd, cn
hún fór með hann út i marmara-
hesthús, þar sem uppáhaldshestar
kóngsins voru. Hún ljet leiða hest-
ana burtu, og ljet drekann búa þar;
sjálf fór hún þrisvar á dag til hans
með mat frá eiginborði kóngsins,
því að enginn annar þorði að
koma nálægt þessari ófreskju.
Kóngurinn ljet senda boð um allt
ríkið, hvort enginn gæti fundið
galdrakarlinn og fengið hann til
að leysa álögin, af því að það var
svo leiðinlegt, að veslings prinsinn
ætti að halda áfram að vera dreki.
Loks var það einhver djarfur
unglingur, sem hitti galdrakarlinn.
Pilturinn reyndi á margan hátt að
leysa álögin, en galdrakarlinn hló
bara, og sagði: „Reynið að koma
drekanum til að gráta, þá verð-
ur hann prins aftur“.
„Ekki annað en það“, hugsaði
konungurinn. Hann sagði dóttur
sinni það, og hún fór til drekans
og sagði: „Góði Volmer, geturðu ekki
grátið, því að þá eru álögin leyst.
En drekinn leit bara hryggur á
hana, hristi höfuðið og stundi.
Nú tók prinsessan gígju, og fór
að synga alla sorglegustu söngvana
sem hún kunni, sjálf grjet hún sárt,
en dreki andvarpaði bara. Hún
sagði drekanum allar sorglegustu
sögurnar sínar, hann stundi svo
þunglega, að það hveiri i, en ekkerl
tár kom í augu hans. Nú ljet kóng-
urinn kunngjöra, að sá sem gæli
komið drekanum til að gráta, skyldi
verða ríkulega launaður, en eng-
inn gat það, þótt hinir og þessir
reyndu. Flestir voru of hræddir,
til þess að koma nálægt honum,
þeir fáu, sem þorðu að fara, og
sögðu eilthvað sorglegt, fen«u eng-
an annan árangur, en að drekinn
stundi þungt, og var mjög hrygg-
ur á svipinn.
Þá fór kóngsdóttirin dag nokk-
urn út í skóginn, þar sem gamla
barnfóstra hennar bjó. Hún vissi
jafnlarigt nefi sinu og Rósa heim-
sótti hana oft.
„Skelfing er slæint hvernig fór
fyrir vesalings Volmer kóngssyni",
stigði konan.
, Já“, sagði Rósa kongsdóttir, og
fór að gráta.
„Það ert þú, sem átt að gráta",
sagði konan. „Geymdu tárin þín
þangað til einhverntíma seinna.
i’ó skal jeg hjálpa þjer“.
„Getur þú hjálpað?“ sagði kóngs-
dóttirin frá sjer numin, og .s^tökk
HPp. „Ó, segðu mjer þá hvað' jeg
á að gjöra“.
„Þú hefðir bara átt að hugsa þig
dálitið um“, sagði gamla bgrnfóstr-
an, „heyrðu nú ----------“, svo.hvísl-
aði hún einhverju að kóngsdóttur-
inni, og rjett á eftir fór Rósa að
brosa, hún fór að skellihlæja og
loksins vafði hún örmum um háls
gömlu konunnar og kysti hana.
„Þakka þjer fyrir, nú veit jeg hvað
jeg á að gera“, sagði kongsdóttirin
og flýtti sjer heim.
„Gjörið svo vel að láta mig fá
nokkra lauka og stóra piparrót",
sagði hún þegar hún kom inn í eld-
Inisið. Það fjekk hún og flýtti sjer
niður í garðinn lil drekans.
„Sjáðu nú hjerria, góði Volmer,
reyndu að hýða þessa lauka og skera
smátt, og svo þessi piparrót —
reyndu að rífa hana“, sagði hún og
rjetti drekanum það allt saman.
Og varla var drekinn farinn
að rífa piparrótina og hýða lauk-
ana, fyr en stór tár runnu niður
kinnar hans og hann grjet svo mik-
ið að Rósa varð að lána honum
vasaklútinn sinn. Og hægt og hægl
breyttist hin.n Ijóti hreystraði dreki
i hinn fallega kóngsson, Volmer, sem
var nú levstur úr álögunum.
R. l'.
í Svisslandi er nýlega búið að
byggja stórt ferðamannagistihús langl
uppi í fjöllum. Það einkénnilega við
húsið er það, að það er bygt eins
og turn eða stór vindmylla.
---x------
Kvikmyndaleikarinn Duncan Ren-
ald, sem m. a. ljek í „Trader IIorn“,
var nýlega dæmdur í tveggja ára
fangelsi fyrir sviksamlegt atliæfi.