Fálkinn - 24.02.1934, Page 2
2
F Á L K I N N
----- GAMLA BÍÓ --------
AAalframkvæmda-
stjórinn.
Þýskur gamanleikur og tal-
mynd í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
FELIX BRESSART
CHARLOTTE SUSA
ROLF VON GOTTE
ALBERT PAULIG
Myndin verður sýnd um helgina
■
9
■
■
■
■
3
:
*
3
EGILS
PILSNER
BJÓR
MALTÖL
HVÍTÖL.
SIRIUS
SÓDAVATN
GOSDRYKKIR,
9 tegundir.
SAFT
LÍKÖRAR, 5 teg.
Nöfnin ,EGILL‘ og ,SIRIUS‘
tryggja gæðin.
| H.f. ölgeróin
| Egiil Skallagrimsson
Sími 1C90.
] Reykjavík.
Lillu-súkkulaði
með vanilju í stórum pökkum, er gott, kraftmikið
og ljúffengt suðusúkkulaði. Er nú mest notað lijer
á landi.
Fjallkonu-súkkulaði
með vanilju er í %-punds pökkum, sem kosta kr.
1,25. Því er mikið liælt og hefir náð mikilli út-
breiðslu.
Bella-suðusúkkulaði
Með vanilju er ný sýkkulaðitegund, sjerlega fín í
litlum pökkum, er kosta kr. 0,85.
Primula-suðusúkkulaði
með vanilju er ódýrasta súkkulaði lijer á landi sjer-
sttaklega ef tillit er tekið til gæða þess, %-punds
pakki kostar aðeins kr. 1,00. Er drjúgt og gott til
heimilisnotkunar, og hefir þegar í byrjun náð mikl-
um vinsældum.
SÚKKULAÐI-VERKSMIÐJA
H.f. Efnagerð Reykjavíkur.
0'"H|' O "Iji. O "lii.- O O ... 0 "Ui* O "Mí. 0 "<u. O 0'">k.'0'"H<. O •"•U. O ■*%*-- O O '"•i.' O O •"•*“■ ® O 0 '“IU. o -"k*' O -"Hw O -"Ih'- O •"*••• O ••*h»
o
l DREKKIÐ EQ1L5-ÖL e==?- |
o
O <1|--O•*•«..• O "IL-O "k—O "II.. O -M|,..O •'O...O •‘^•O ■•'U-Oo •rtö.-c "<u. « •••«■ O "fc-O -’»•-• O"Hk-oO-'liu-O^nwO."llwO•*%."00''VOJ)fc'0
NÝJA Bí O
Zigaunakonungurinn.
Gullfalleg söng- og talmynd um
zigaunalíf og zigauna-ástir tek-
in af Fox Film undir stjórn
Frank Streyer. Aðalhlutverkið
leikur hinn lieimsfrægi spánski
söngvari JOSÉ MOJICA.
Ennfremur ROSITA MORENO,
JULIO VILLARREAL og ADA
LOZANO.
Sýnd bráðlega!
SVANA-VITANIN
smjorlíki
Ier eina íslenska
smjörlíkið, sem
jafngildir sumar-
smjöri að A-fjör-
efnamagni.
Fálkinn er besta heimilisblaðið.
Hljóm- og
AÐALFRAMKVÆMDASTJÓRINN.
Felix Bressart er á ferðinni og
skemtir áhorfendum fram eftir vik-
unni í GAMLA BIO. Kemur hann
fram í ýmsum gerfum eins og hann
á vanda til. Hann er bæði bilstjóri
og leikari og þó að kvenfólkinu
þyki mikið til beggja þessara
manntegunda koma þá afræður
hann þó að gerast eða látast vera
framkvæmdastjóri þegar haiín fer
að biðla til stúlku, enda eru fram-
kvæmdastjórar útgengilegir menn,
ekki síst á krepputímum.
Felix er með umrenningsleikara-
flokki Krause leikara og í Weiss-
enfeld, sem er einskonar Súðavík
þarna suður í Þýskalandi. Ber svo
við að skáldkonan Thea von Die-
men horfir á leiksýninguna, sem í
tilefni af þvi er seld áhorfendum
fyrir 20 aurum hærra verð en ella.
Endar leiksýningin með skelfingu,
að því er Felix snertir, meðfram
vegna þess að hann hefir jetið upp
lakkskóna sína. En þá vill svo til
að bílstjóri skáldkonunnar týnist og
hún tekur Felix í staðinn, og fer
með hann til Berlín.
Þar kemst hún í kynni við ungan
rafvirkja, sem liefir skrifað henni
og fundið að bókum hennar. En
þau kynnast án þess að hann viti
hver hún er og þau eru sainan dag-
lega. En meðan þau eru að skemta
sjer á mótorhjóli rafvirkjans ekur
Felix út i skrautbíl skáldkonunnar
með Ölmu, skrifstofustúlku er hann
hefir kynst, og sagt að hann væri
forstjóri og ríkur maður. En raf-
virkjanum miðar svo vel áfram, að
talmyndir.
einn góðan veðurdag segir hann
skáldkonunni, að hann ætli að gift-
ast henni, og býður Ölmu, sem
hann þekkir og þessum „forstjóra",
sem altaf er með henni, í trúlofun-
argildið. En í þessu gildi fer alt
út um þúfur fyrir Felix. Og nokkru
síðar er skáldkonan les upp á góð-
gerðaskemtun sögukorn um kunn-
ingsskap sinn við rafvirkjann, kemur
hann öllu í uppnám og skáldkonan
flýr. En fyrst heldur liún þó vin-
um sínum skilnaðarsamsæti. Og
hve mundi það vera nema hinn
ráðagóði ráðleysingi Felix, sem
kippir öllu í samt lag, svo að mynd-
in endar í algerðri fullsælu og trú-
lofunum.
Úr því að Felix hefir verið nefnd-
ur þarf ekki að taka fram, að mynd
in er sprenghlægileg, en elcki eins
alvarleg og Felix. Hún verður sýnd
um helgina.
ZIGA UNA KONG URINN.
Myndir af lífi og ástum zigauna
hafa heillandi áhrif á flesta Bio-
gesti. En þegar myndin í ofanálag
hefir einn allra vinsælasta söngvara
nútímans i aðalhlutverkinu, þá
eykur það enn á vinsældirnar. í
þessari zigaunamynd er það spán-
verski söngvarinn José Mojica, sem
leikur og syngur aðalhlutverkið af
aðdáanlegri snild, en kvenhlutverk-
ið á móti honum leikur Rosita
Moreno.
Efni leiksins er það, að Carol
zigaunakongur hefir sest að i skógi
einum með allan flokk sinn og far-
angur og ætlar að halda þar kyrru
fyrir um sinn. En bráðlega kemur
sendimaður frá hirðinni til að reka
hann burt — hann er í landareign
Maríu prinsessu, sem nýlega hefir
tekið við stjórn landsins. Og nú
vikur sögunni til hennar. Henni
leiðist mikið við liirðina og ekki
leiðst henni hvað síst Alexander
stórfursti, sem henni er ætlað að
giftast. Eini vinurinn, sem hún á er
herbergisþerna hennar, René (Ada
Lozano) sem hún hefir kynst að
fornu. René liefir farið á skemtun
hjá zigaununum og orðið hugfang-
in af skemtunum þeirra og þeim
sjálfum og segir prinsessunni frá.
Afræður hún að klæðast sveita-
stúlkubúningi og fara á skemtun
zigaunanna um; kvöldið. Þar kynn-
ist hún vitanlega Karol zigauna-
kongi og verður hugfangin af hon-
um og hann af henni. En svo illa
tekst til, að Alexander stórfursti
sjer þau kyssast í skóginum. Verður
hann hræddur um konuefni sitt og
til þess að koma Karol í bölvun
felur liann hálsmen, sem prinsessan
á og sakar Iíarol um að hafa stolið
því. Ivarol er kallaður fyrir rjett
og dæmdur í sjö daga fangelsi, og
heldur liann að það, sje refsing fyr-
ir að hafa kyst stúlkuna, þvi að
þjófnaðinum veit hann sig saklaus-
an af.
Hann afplánar refsinguna í höll-
inni sjálfri, en þessi vist hans þar
verður stórfurstanum til mikils
ama. Hann er sísyngjandi og notar
hvert tækifæri lil að hrella furst-
ann og gera hann hlægilegan og
klykkir loks út með því að strjúka
og stela með sjer prinsessunni.
Verður fögnuður mikill þegar hann
kemur í herbúðir sínar með stúlk-
una, því að jafn fagra konu hafa
zigaunarnir aldrei sjeð. En nú kem-
ur Alexander með her manns og
vill drepa Karol fyrir konuránið.
Það verður samt úr, að þeir sætt-
asl á að heyja einvígi — þar sær-
ist hvorugur en Alexander biður ó-
sigur. Prinsessan getur ekki dulið
ást sína lil Karols lengur. En hann
er flakkari, sem ekki getur unað
lengi á sama stað, jafnvel ]jó prins-
essa sje i boði. Og þessu ástaræfin-
týri endar með því, að hann hverf-
ur með flokk sinn út í buskann —
syngjandi hin töfrandi ástarljóð
sín.
Þetta er undurfögur mynd og
söngurinn eins og áður er getið
prýðilegur. Hún verður sýnd í
NÝJA BIO á næstunni.
Það hefir vakið mikið umtal, að
fyrsti kýenpresturin í Skotlandi,
Vera Kenmore, hefir eignast son.
Aðrir kvenprestar í landinu hafa
krafist þess, að henni verði vikið
frá embætli, en kirkjustjórnin hefir
svarað, að við þessu hafi altaf mátt
búast. Hefir þessi barneign orðið
til þess að umræður hafa risið upp
um, hvort konur eigi að verða
prestar.
----x-----
Nýlega hefir verið birtur reikn-
ingur yfir tekjur og gjöld Banda-
ríkjanna í einu einstöku smyglara-
máli. IJafði það verið höfðað gegn
smyglaranum Bert Delandey sem var
einn af vikadrengjum A1 Capone,
og nítján hans nótum. Kostnaður
af málsókninni varð 400.000 krónur.
En úrslitin urðu þau, að bófarnir
fengu aðeins 100 kr. hver í sekt,
eða 2000 krónur alls. Beinn kostn-
aður ríkisins varð því 398.000 kr.
í þessu eina máli!