Fálkinn - 29.09.1934, Side 8
8
F Á L K I N N
Myndin hjer að ofan sýnir part af
brúnni, sem verið er að leggja yfir
Storströmmen í Danmörku. Verður
það lengsta hrúin í Evrópu, og er
gerð í því skyni að flýta fyrir sam-
göngunum við Mið-Evrópu og
draga þær þannig að Danmörku
frá sænsku leiðinni yfir Eystrasatt.
Eins og kunnugt er voru afar mikl-
ar óeirðir í San Francisco í sumar,
svo að til vandræða horfði. Verk-
fötl voru þar víðtæk og yfirgrips-
mikil og náðu m. a. til þeirra, sem
annast daglegan starfrekstur, sem
borgarbúar mega ekki vera án, t. d.
matvælaflutninga. Lá því við svelti
í borginni. Óeirðirnar kostuðu
mörg mannslíf og bökuðu afar
mikið tjón. Á myndinni sjest lög-
reglan vera að dreifa táragasi á
verkfallsmenn í útjaðri borgar-
innar.
16. her-íþróttamót Dana var nýlega
háð í Kaupmannaliöfn. Sýnir
myndin lengst t. v. brynreið vera
að komast yfir torfæru, en sú sem
nær er sýnir hvar verið er að koma
fyrir byssu til þess að skjóta niður
flugvjelar.
Á myndinni hjer að neðan sjást
þátttakendur alþjóðakirkjuþingsins
sem nýlega var haldið á Fanö við
Esbjærg. Aðalumræðuefni þar var
afstaða kirkjunnar til viðburðanna
í Þýsklandi.