Fálkinn


Fálkinn - 16.02.1935, Síða 3

Fálkinn - 16.02.1935, Síða 3
F Á L K I N N ú Nýr íslenskur iðnaður. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: BanKastræti 3, Reykjavik. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—(3. Skrifstofa l Oslo: Anton Schjöthsgade 14. Blaðið kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.50 á mánuði; kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. Auglfisinf/averfí: 20 aura millimeter Rerbertsprent, Bankastræti 3. Skraddaraþaakar. í gær. I. Jeg er gærdagurinn og jeg hefi yfirgefið þig fyrir fult og alt. Jeg er siðastur í langri röð af dögum, sem liggja að baki þjer, sem hverfa frá þjer, inn í þokuna og hið ókunna, og drukna að lokum í hafi gleymskunnar. Ilver um sig al' okkur hel'ir hafl sína byrði, sigurhrós, ósigur, hlát- ur og gremju. Við berum byrðar þínar á'burt frá þjer, inn í gleymsk- una. En þegar við förum skiljum við ýmislegt eftir i undirvitund þinni. Við fyllum kjallara sálar þinnar. Jeg fer burt en er þó jafnan hjá þjer. Einu sinni var jeg kallaður á morgun og var h.reinn eins og jóm- frú. Svo varð jeg brúður þín og var kölluð í dag, nú er jeg i gær, og ber eilíf merki eftir faðmlög þín. Jeg er eitt blaðið i bók, sem altaf er að stækka og það eru mörg óskrifuð blöð, sem eiga eftir að koma í bókina. Og sá tími mun koma, að ])ú lest alla bókina og lærir að þekkja sjálfan þig, eins og þú ert. Jeg er fölur, af því að jeg á enga von. Aðeins endurminningu. Jeg er rikur, af því að jeg hefi visku. Jeg ól þjer barn og fjekk þjer það. Barnið heitir reynsla. Þjer þykir ekki gaman að skoða mig. Jeg er ekki fallegur. Jeg er höfðinglegur, afdrifaríkur og al- varlegur. Þú kant ekki við röddina mína. Hún skjallar þig ekki og' fer í bága við óskir þinar. Hún er köld, ró- leg og varkár. Jeg er í gær og þó sá sami sem í ilag og eilíflega. Því a.ð jeg er þú og enginn getur flúið sjálfan sig. Við bókarblöðin erum að ræða um þig. Sum okkar bera merki grimdar þinnar, önnur örvæntandi vegna skítmensku þinnar en svo eru enn önnnur sem geyma fegurð eftir mannkosti þina. Við elskum þig ekkil Við dæm- um þig ekki! Við höturn þig ekki ! Við liöfum ekkert umburðarlyndi. Það hefir dagurinn í dag. Við gef- um þjer ekki undir fótinn. Það gerir dagurinn á morgun. Frank Crane. Sje það rjettmæli, að vjer íslend- ingar nú á dögum höfum af littu að státa, hvað verksmiðjuiðnað snertir, þá er hitt að minsta kosti engu siður satt, að kynslóðin næsta á undan hinni núverandi hafi ekk- ert haft að hrósa sjer af í þeirri grein. Þó verksmiðjuiðnaður vor sje smávaxinn, hefir honum engu að síður fleygt fram á fám árum og á eftir að gera betur bráðum. Má það vera öllum góðum íslend- ingum fagnaðarefni, hvenær sem ný iðngrein flytst inn í landið, að einhverju eða öilu leyti. Hjer skai þeirrar nýjustu lítillega minst. H.F. HAMPIÐJAN heitir fjelag, sem stofnað var hjer í Reykjavík á síðastliðnu ári. Nafn- ið gefur nokkuð til kynna starfs- svið þess, en það er að framleiða hjer vörpugarn og bindigarn handa útgerð landsmanna, en hingað til hafa farið stórupphæðir út úr landinu á hverju ári fyrir þessar tvær tegundir af útgerðarvörum. í fjelaginu eru alls tólf menn og i stjórn þess eru Guðmundur S. Guð- mundsson, formaður, og jafnframt framkvæmdastjóri, Guðmann Hró- bjarlsson og Bergþór Teitsson. Varamaður í stjórninni er Jón Guð- laugsson, sem einnig er verkstjóri í verksmiðjunni. Hefir hann áður dvalið um liríð i Canada, en ann- ars hafa þeir Guðmundur báðir unnið alllengi í vjelsmiðjunni Hjeðni, og var Guðmundur þar verkstjóri nokkur ár. Verksmiðjuhúsið er all-reisuleg bygging, einlyft og með risi, og stendur inni í Rauðarárholti skamt frá Málleysingjaskólanum. Gólfflöt- urinn er 450 fermetrar. Vitanlega taka vjelarnar þarna mest rúmið, en niðri í húsinu er þú einnig hra- efnageymsla, skrifstofur, þvottaher- bergi og þh. og uppi yfir þeím enda hússins eru geymslur fyrir franileiðsluna. Þarna vinna auk forstjóra og verkstjóra, 1 piltur og 7 stúlkur. Vörpugarnið er unnið úr Manila- hampi en bindigarnið úr svokölluð- um Sisalhampi, sem vex i Austur- Afríku. Vjelarnar eru þarna bæði marg- brotnar og mikilvirkar. Til dæmis er hampurinn vættur í olíu og kembdur átta sinnum áður en hann er spunninn. Er talið, að þræðirnir í hampinum sjeu lagðir saman og dregnir út á víxl 440.000 siiinum. í spunavjelinni eru 18 snældur, sem snúast 2300 snúninga á mínútu. Þá taka við aðrar vjelar, sem snúa garnið — þrí- eða fjórþætt, eftir því, sem við á. Síðan fer garnið gegn um vjel, sem sker af þvi alla ló og loks tekur sú síðasta við, sem vindur það í hnotir. Verksmiðjan telur sig geta fram- leitt um hálfa smálest af vörpú- garni og bindigarni á dag. Hefir styrkleiki garnsins verið prófaður og er það talið fullkomlega sam- kepnisfært við erlent garn af bestu tegundum. Ekki er vafi á því, að hjer er um stórmerka nýung að ræða í iðnaði okkar íslendinga. Allir vita, að mestur hluti verðs á mörgum vörutegundum liggur i vinnunni en ekki efninu, sem i þær fer, og er því ekki ónýtt í atvinnuleysinu að fá sem flesta vinnu inn í landið. Hráefnin til þessarar iðju munu auk þess að mestu keypt af þeim þjóðum, sem mest kaupa af oss í Suðurlöndum, og fer vel á því að vörukaup frá þeim aukist. Er von- andi, að fyrirtæki þetta beri gæfu til að framleiða góða og samkepnis- færa vöru og landsmenn til að kaupa hana. Aldaraímæli. Hinn 9. þ. m. voru liðin 100 ár frá fæðingu frú Augustu Svendsen, fyrstu konu, sem stofnað hefir og rekið verzlun hjer á landi. Árið 1888 setti hún á stofn hjer í Reykja- vík, verslun þá, sem enn ber nafn hennar og nú lengi hefir verið til húsa i Aðalstræti 12. Sjera Arnór Árnason í Hvammi verðar 75 ára í dag. Franz Hákansson varð 55 ára 13. þ. m. Gleraugnabúðin á Lauga- veg 2 selur lindarpenna með fullri ábyrgð. Nafn grafið ó- keypis á. Ný tegund af skrúf- blýöntum komin. Skoðið þá Lindarpennar teknir til viðgerð- ar á Laugaveg 2.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.