Fálkinn - 10.10.1936, Page 7
F Á L K I N N
7
Myndin er tekin í Kastalaniun í Kaupmannahöfn og sýnir innköllun
hermanna til haustæfinga. Að ofan sjást þeir koma með herskyldubók
sína til að láta innrita sig, en að neðan taka þeir vð skipunum, eftir að
vera konuiir í einkennisbúninginn.
Myndin er af Atlantshafsflugmönnunum Harry Richman og Dick Merrill,
sem nýlega flugu fram og aftur yfir Atlantshaf á mjög skömmum tíma.
Sjest Richmann, hinn frœgi gamanvisnasöngvari til hægri.
Kgl. leikhúsið
,,Vore Damer“.
ur eitt stærsta
í Kaupmannahöfn er nýfarið að leika leik, sem heitir
Hefir Booil Ipsen sjeð um leikstjórnina og leikur sjálf-
hlutverkið. Á myndinni sjást Ctara Pontoppidan í miðju
en frú Bodil til hægri.
Kosningar til Landsþingsins fóru ný-
lega fram i Danmörku. Urðu úr-
slitin þau, að nú hafa stjórnarflokk-
arnir eins atkvœðis meirihluta í
Landsþinginu og rjeði hlutkesti úr-
stitasætinu. Er nú talið líklegt, að
Landsþingið verði lagt niður, en
um það hefir staðið löng barátta.
Hjer á myndinni t. v. sjest gömul
kona vera að greiða atkvæði.
Hjer á neðstu myndinni t. v. sjest
hvernig nýju hausthattarnir líta úl.
Þeir eru eftirliking af Tyrolarhött-
unum, keilumyndaðir í laginu. Hatt-
urinn t. v. er úr svörtu velour eu
sá til hægri úr rauðu. Og vitanlega
eru fjaðrir í báðum höttunum, þvi
annars liktust þeir ekki Tyrolar-
höttum.
Stórslúka hinnar óháðu Oddfellow-
reglu fyrir ísland og Danmörku hef-
ir nýlcga fengið nýjan yfirmaun
eða ,,stórsire“, sem kallað er. Fyrri
yfirmaður liennar, Skeel kunmer-
junker Ijest skömmu eftir nýárið í
vetur ,og nú hefir Valdemar Madscn
verksmiðjueigandi verið kosinn i
hans stað. Birtist mynd af honum
hjer til hægri. Er hann þriðji „stór-
sire" reglunnar, en sá fyrsti var
Petrus Beyer, sá sem beitti sjer fyr■
ir stofnun Holdsveikraspítalans í
Lauganesi um siðustu aldamót.