Fálkinn - 27.02.1937, Page 1
Reykjavík, laugardaginn 27. febrúar 1937.
X.
Frá Oræfajökli.
Mynd þessi er tekin af Virkisáraurum, milli Sandfells og Svínafells í Öræfum. Þaðan blasir hæsta fjall íslands við og sjer hjer
á myndinni á undirjökla þess. Til hægri á myndinni sjest í austurendann á SvínafeltsfjaUi, en þaðan gengur fjallsröðull langt
upp í jökul og endar í 1911 metra háum klettastabba, sem sjest vel á myndinni og ber við loft í beina stefnu á Hvannadals-
hnúk, hæsta tindinn á Öræfajökli. Til vinstri við stabbann er dálítill slakki í jökulbrúnina. Þaðan kemur Virkisjökull í tveim-
ur bröttum jökulfossum niður á láglendið. Að framan er Virkisjökull mjög brattur og kolsvaitur af sandi og aur. Myndina
tók Ján Eyþórsson.