Fálkinn


Fálkinn - 27.02.1937, Side 4

Fálkinn - 27.02.1937, Side 4
4 F Á L K I N N Elsltt trjeh i Reykjavik. Rornhólms-silfurreynir í Bæjarfógetagarðinum við Aðalstræti. TRJÁRÆKT í REYKJAVÍK EFTIR VIGFLJS GUÐMUNDSSON FLESTIR MUNU HAFA VEITT EFTIRTEKT HINNl MIKLU FRAMFÖR, SEM TRJÁRÆKT OG GARÐRÆKT HAFA TEKIÐ í HÖFUÐSSTAÐNUM Á SÍÐUSTU ÁRA- TUGUM, OG FLESTIR ÞEKKJA ELSTU TRJÁGARÐANA í REYKJAVÍK. EN HVERNIG ERU ÞEIR TIL ORÐN- IR HVERIR VORU BRAUTRYÐJENDUR í TRJÁ- RÆKTINNI OG HVERNIG TÓKST ÞEIM. HVAÐAN ERU TRJEN KOMIN OG HVAR ERU HELSTU TRJEN í BÆNUM? ÞESSUM SPURNINGUM OG MÖRGUM FLEIRI SVARAR HINN GAGNFRÓÐI RITHÖFUNDUR VIGFÚS GUÐMUNDSSON í EFTIRFARANDI GREIN. TRJÁRÆKT HEFIR VERIÐ EITT AF MESTU ÁHUGA- MÁLUM HANS SÍÐAN HANN FLUTTIST I HÖFUÐ- STAÐINN OG ENG-INN MUN VERA KUNNUGRI I GÖRÐUM REYKVÍKINGA EN HANN. Trjáræktin er að vísn aukaatriði enn í búnaði hjer á landi alment. Samt er hún nú þegar orðin svo mikill þáttur í áhuga, prýði og holl- ustu Reykjavíkurbúa, að forsaga henn ar þar og braulryðjendur mega ekki falla í gleymskui. Eigi er kunnugt, að Skúli fógeti hafi látið gera tilraun með trjárækt i Reykjavík. En í Viðey drap sæ- rokið trjáplönturnar hans á 3. ári, þær allar, sem svo lengi lifðu. Eftir hjerumbil heila öld þar á eft- ir, verður fyrst vart við trje, sern lifðu lijer i hænum. Það var nálægt miðri 19. öid, að garðræktarkonan, hiskupsfrú Sigríður Bogaclóttir, ljet 'trka tvær reyniplöntur í Reykjanes- hraunum og gróðursetja þær í garði sínum við hús nr. 16 í Austurstræti. Þrifust trjen svo vel, að þau náðu liátt upp í þekjuna á húsinu, einlyftu meÖ háu risi. Frúin kom til Reykja- vikur 1848. Hún vann sjálf í garði sínum og ræktaði matjurtir, herja- runna og blóm og viðaði víða að, t. d. fjekk hún eyrarrósir ofan úr Ivj’ós, þær fyrslu, er hjer voru gróðursett- ar. En er hún flulti til dætra sinna í Danmörku árið 1892 og Godthaabs- vérslun settist þarna að (sem nú er stórhýsið með lyfjabúðinni), þá var Úr Gróðrarstöðinni i Reykjavík. Á myndinni sjest Einar heitinn Helga- son, „skapari“ gróðrarstöðvarinnar. hlómgarðurinn eyðilagður með öllu. — Þó er í mæli, að annað trjeð hafi verið flutt til Agústar kaupmanns Flygenring í Hafnarfirði. Þessu næst verður vart við eitt reynitrje hjá Hilmari Finsen, er hjer var stiftamtmaður og svo landshöfð- ingi, 1865—1883. Kálgarður var þá þar, sem líkneski Kristjáns IX. stend- ur nú, og trjeð þar ofan við, undir grjótgarðinum að norðanverðu á Stjórnarráðsblettinum, skamt frá fjóshaugnum, sem þar var þá lika til þess að prýða landsliöðingjabústað- inn'). Trjeð var svo stórt, að hörn gátu klifrað upp í það, en er horfið fyrir tugum ára. Með komu Schierbecks landlæknis 1883 kom nýtt líf í trjárækt eins og garðyrkju lijer. Flutti liann hingað þegar á fyrstu árum óteljandi út- lendar trjátegundir og gróðursetti i garði sínum. Hafa fáein þeirra lifað og þrífast vel og eru elstu trjen, sem nú lifa í hænum. Húsið nr. 11 við Aðalstræti (nú hakhús) Ijet landlæknir hyggja 1. ár- ið. Reynitrjen tvö (Bornholms silfur- eða gráreynir) hefir liann því að lík- indum sett sunnan við húsið 1884, og væru þau nú 52 ára hjer, en tveggja, þriggja eða fleiri ára þá, er óvíst. Nú eru þau 7 m. og 6,15 m. á hæð, og liið hærra 78 sm. (30 þuml.) ummáls, á hálfs metra hæð (sjá myndina). Stærsta og fegursta trjeð er í norður- horni garðsins, viðitegund, skógarpíll borgarar. Hingað komin fyrir dáð og dug hjónanna frú Þórunnar ög sýslu- manns Frans Siemsen. Sendu þau eftir trjáplöntum upp í liraun langt fyrir sunnan Hafnarfjörð. Plönturnar voru alt að alin á hæð, og gróður- settu hjónin nokkrar þeirra í garði sínum í Hafnarfirði (sýslumanns- garði þar). En fimin þeirra aðminsta kosti sendu þau til Reykjavíkur, 3 til E. Th. Jonassens .amtmanns, og voru þær settar fyrst við hús þeirra hjóna, Ingólfsstræti 9. Eftir andlát amt- manns (29. sept. 1891) flutti ekkjan í Þingholtsstræti 14, og trjen með sjer, líklega vorið 1892. Þar eru þau enn að norðanverðu í trjágarði dr. Bjarna Sæmundssonar, og eru með liæstu trjám í bænum: 7,32—6,23 og 5,31 m. á hæð. Mörg önnur yngri og fögur trje eru í garði dr. B. Sæmunds- sonar. Þar á meðal hlynur 6,48 m. og 78 sm. við rót, en 58 sm. á 1 m. hæð. Hæsta trje i bænum er þar líka, fögur björk 7,79 m. (24,8 fet) og 98 sm. ummáls við rótina, en skiftist þar þegar í tvo stofna. Óvíst hvaðan komið. Hin tvö reynitrjen, er frú Þórunn sendi foreldrum sínum, Árna Th. og frú Thorsteinson, eru enn með góðu lífi i gamla Landfógetagarðinum í Austurstræti 20 (nú Hressingarskál- inn). Standa þau suður frá húsinu að austanverðu og eru ekki ýkja liá, hæði neðan við 5 m. — Er helst kent um sjávarseltu með raka fyrr- Úr Bæjarfógeta- garðinum við Að- alstræti. (Salix caprea) fágætur hjer, með mjög stórri blaðakrónu, 6,5 á hæð og stofninn 108 sm. við rótina. Mörg eru þar og fögur yngri trjen, þ. ó. m. ein fegursta björkin í hænum, tví- slofna, 6,07 m. á hæð, annar stofninn 45 sm. á 1% metra hæð, hinn 38 sm. á 2 metra liæð. Þar nærri er út- lendur reynir, 6 m., 87 sin. á hólfs metra hæð og 78 á 1 m. hæð. Mjög mikið dó af trjáplöntum hjá Schierbeck lækni eins og hjá öðr- um tilraunamönnum, líka hjá Árna Thorsteinson landfógeta, sem var mjög samhentur landlækni við garð- yrkjuna.--------- Elslu innlendu trjen hjer eru reynitrje. Þau eru líka vel hálfrar aldar gömul, fædd í sveit, en 48 ára ‘) Fjóshaugarnir eiga sína búnað- arsögu og lika sem bæjarprýði í Rvík. Þannig er getið um það 1852, að „Mykjuliaugar í fjörunni Verði vall- grónir af elli“. (Ný tíðindi). Hinsvegar er kært yfir ]iví 1854, að fjóshaugur renni fram í stakkstæði, þar sem fiskur var breiddur. — Þá er og árið eftir kvartað um mykju- haug á Austurstræti, á þessa leið: „Haugur þessi hefir legið svona op- inn og oltið fram á ræsisbarminn, framan i öllum, meira en viku .... lítil hvítasunnuprýði". (Þjóðólfur 1855, 96). — Og enn gerist það til hátíðabragðs á 100 ára afmæli kaup- staðarins, að Þórður Zoega hyggði fjós án leyfis og svo nærri hrunni, að lögurinn frá mykjunni spilti drykkjarvatninu. Fógeta barst kæra út af þessu. (Fógetabók 1886). um, er náð hafi til rótanna. Gerðar- legur stofn er á öðru þeirra, 64 cm. á 1 m. liæð. Vestar með liúsinu eru tvö innlendrar tegundar reynitrje yngri, 6,78 og 6,58 m., með 69 og 59 sm. stofnum V2 m. frá rót. Þar mun vera elsta og stærsta liegglrje hjeriReykja- vík, frá 1898, tæpir sex metrar. Göm- ul girðiviðarlrje (4 pílviðir, sem nú cru að verða algengir hjer), altað 6 m. á hæð. Margstofna eru þau og liggjándi, sökum vöntunar stuðnings og uppbindingar á æskuárunum. Eitt þeirra er svo rúmfrekt, að greinarn- ar taka yfir 11x5,5 metra. Jafnaldra þessum innlendu reyni- trjám, eða þvi sem næst, eru tvö út- lend trje, álmur og hlynur við húsið nr. 5 við Laufásveg') Þar bjó dr. Þorvaldur Thoroddsen 1887 og gift- ist sama árið Þóru Pétursdóttur biskups. Er því líklegast, að hún hafi þá þegar eða um vorið 1888 sett þar sunnan við húsgaflinn þéssar trjáplöntur. En hve stórar þá eða gamlar og hvaðan komnar, er óvíst. Álmurinn er jafnhár húsinu 7,5 m. (72 sm. á V-2 m. hæð) og faðmur þess jafn hæðinni, svo mikil er laufkrón- an. Hún hylur megin húsgaflsins og tcygir arma sína fram fyrir hlyninn (7,15—41 sm.). Verið getur, að lítið sje yngra píltrjeð, sem nú er hak við stjórnar- skrifstofurnar, 5,48 m. hátt, þrístofna (78, 76 og 60 sm. við rótina). Flutt liangað fyrir mörgum árum frá Srtijör ') Steinhús þetta hafði Jón Árna- son hókavörður látið hyggja sköminu áður.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.