Fálkinn


Fálkinn - 17.07.1937, Blaðsíða 8

Fálkinn - 17.07.1937, Blaðsíða 8
8 F Á L K I N N ÚR LÍFI ROCKEFELLERS 3. SJÁLFSTÆÐUR KAUPSÝSLUMAÐUR - NÍTJÁN ÁRA. Eftir JOHN D. ROCKEFELLER. í þú daga sem þetta gerðist þektu nálega allir í Cleveland hverir aðra. Meðal kaupsýslumannanna í bænuin var ungur Englendingur, M. B. Clark að nafni, sem var um það bii tíu árum eldri en jeg. Hann langaði tii íið koma sjer upp sjálfstæðu versi- unarfyrirtæki og leitaði sjer að fje- laga i það. Hann átti 2000 dollara sem hann gat iagt í fyrirtækið og vildi ná í fjelaga, sem gæti lágt til álíka upphæð. Þetta virtist vera gott tækifæri fyrir mig. Jeg hafði nurlað saman 700—800 dollurum. Og ná var viðfangsefnið þetta: Hvernig átli jeg að fara að því að ná í það, sem á vantaði? Jeg ræddi þetta mál við föður minn, og sagði hann mjer j)á, að hann hefði fyrir löngu einsett sjer að gefa okkur börnunum 1000 doll- ara hverju, þegar við yrðum 21 árs. Og ef mig langaði til að fá þessa peninga undir eins, gæti hann vel látið mig fá þá sem fyrirfram- greiðslu, þannig að jeg greiddi vexli af þeim þangað til jeg væri 21 árs. — En þú verður að ljorga 10 af hundraði í vexti, Jolin! Um þær mundir var 10% rent i mjög algeng, á þesskonar lánum. í bönkunum voru vextirnir máske ekki alveg svo háir, en bankarnir gátu ekki fullnægt öllum, og þessvegna var mikill hluti peningaverslunar- innar gerður utan þeirra og með háum vöxtum. Jeg þurfti á pening- unum að halda til þess að verða meðeigandi í fyrirtæki Clarks og þessvegna tók jeg tilboði föður míns fúslega. Og svo byrjaði jeg sem yngri meðeigandinn, i nýja versl- unarfyrirtækinu, sem við kölluðum Clark & Rockefeller. Mjer fanst það ljómandi, að vera vinnuveitandi sjálfs sín. Jeg bólgn- aði af hreykni — meðeigandi ,i firma með 4000 dolíára höfuðstój! Clark hafði forustuna. uin kaup og sölur firmans, en jeg átti að annast fjárhagsmálin og bókfærsluna. Áður en varði lentum við í veltumiklum kaupum og rákum víðtæka um- boðssölu með landbúnaðarafurðir. Auðvitað þurftum við brátt á meiru veltufje að halda, og þá var ekki um annað að gera en að fara í hankann og biðja um lán. En var nokkur sá banki til, sem þyrði að lána okkur peninga? Jeg fór til bankastjóra sem jeg þekti, og sem þekti mig. Jeg man það greinilega, hve óstyrkur jeg var í taugunum þegar jeg ætlaði að fara að biðja um lánið, og var áð reyna að koma bankastjóranum vel fyrir sjónir. Hann hjet T. P. Handy, ljúf- ur og aðlaðandi gamall maður, al- kunnur fyrir það, hve göfuglyndur hann var og laus við smámunaskap. Hann hafði. þekt mig síðan jeg gekk í skólann í Cleveland. Jeg lýsti fyr- ir honum fyrirlækinu okkar út í æsar og dró enga dul á, að víð þyrftum á peningum að halda xil þessa og þessa. Það lá við að jeg skylfi meðan jeg var að bíða eftir dóminum. — Hvað vanlar yður mikla pen- inga núna? spurði hann. — Tvö þúsund dollara! — Golt og vel, Rockefeller, þjer skuluð fá ])á. Þjer þurfið aðeins að gefa mjer skrá urn birgðirnar, sem þið eigið núna — það er mjer nóg. Það hlýtur að vera erfitt að gera sjer grein fyrir fögnuðinum, sem i brjósti mjer bjó, þegar jeg fór út úr bankanum. Jeg bar höfuðið hátt - að hugsa sjer þetta: að banki skyldi trúa mjer fyrir 2000 dollur- umf Jeg fann þá, að jeg var orðinn maður, sem ekki var alveg þ.ýðing- arlaus í þjóðfjelaginu. Þau árin sem á eftir konm var þessi. bankastjóri sannur vinur minn. Hann lánaði mje'r peninga, hvenær sem jeg þurfti á þeifn að halda, og jeg þurfti næstum altaf á peningum að halda. Altaf lánaði hann mjer það fje, sem hann hafði. handbært þá stundiná'. Eftir á er mjer það sönn gleði að minnast þess, að jeg gat siðar gefið honum það ráð, að festa ákveðna fjárupphæð í hluta- brjefum i Standard Oil. Hann svar- aði mjer því, að liann langáði til þess, en eins og stæði hefði hann ekki handbært fje til þess. Þá stakk jeg upp á þvi, að nú skyldi jeg, aldrei þessu vant, gerast lánardrott- inn hans, og afleiðingin varð sú, að hann græddi allverulega fjárupp- hæð. Mjer er það mikil gleði, jafn- vel nú i ellinni, að lýsa yfir þakk- læti mínu fyrir alúð hans og trausf það, sem liann bar lil mín. Handy treysti mjer af því að hann þóttist viss um, að við rækjum lyrirtæki okkar með gætni og varúð og í sambandi við þettá minnist jeg atviks, sem.er dæmi upp á, hve erf- itt er að lifa eftir þvi, sem maður telur vera rjettar verslunaraðferðir. Ekki löngu efti'r að við höfðum byrj- að fyrirtækið bað besti viðskiftri- vinur okkar -— sá sem sehli okkur mest - um að fá vörur sinar greidd- ar fyrirfram að nokkru leyti, áður cn við höfðum tekið við vöríinum. Auðvitað vildum við sýna þessunx mikla áhrifamanni ftilla lipurð. F.n jcg sem bar ábyrgð á fjármálaráð- stöfunum fyrirtækisins, andmælti þessu eigi að síður, þó að jeg víssi, tið það gæti kostað okkur að missa ]>ennan stóra skiftavin. Aðstaða min var mjög erfið.. Fje- lagi minn. var óánægður við mig út af því að jeg vildi ekki láta undan, og i vandræðum mínum afrjeð jeg að fara á fund skiftúvinarins og reyna, hvort jeg gæti ekki fengið hann til að falla frá þessu. Jeg hafði áður verið einkar heppinn er jeg var að reyna að afla mjer vináttu aniiara manna og gat haft tal af þeim undir fjögur augu og óánægja fjelaga míns gaf mjer nýtt þor. Jeg þóttist viss um, að ef jeg kæmist i persónulegt samhand við þennan viðskiftavin mundi jcg geta gerf honum skiljan- legt, að hann væri að innleiða vai- hugaverða reglu, ef hann fjelli ekki frá kröfu sinni. Að sjálfs míns áliti var röksemdafærsla min rjett og . sannfærandi. Jeg náði fundi manns- ins og hjelt frám öllumþeim rökuiil, sem jeg hafði hugsað mjer. En hann var þrár og ósveigjanlegur og jeg sárkveið fyrir þeirri niðurlægingu að verða að segja fjelaga mínum, að jeg hefði farið erindisleysu. Mjer hafði ekki orðið nejtt ágengt. Auðvitað komst hann allur í upp- nám við tilhiigsunina'um að eiga að missa þennan skiftavin, en'jeg hjélt ])ví fast til streytú, að við mættum ekki brjóta viðskiftareglur 'okkar. Skiftavinur okkar fjekk þannig ekki kröfu sinni framgengt. En okkur til ómetanlegrar gleði hjelt hann áfram ■skiftunurn Við okkur, eins og ekkert hefði i skorist og mintist ekki einu onði . á ijiálifj f|r<*kf»r.. Siðar heyrði jeg, að gamall og reyndur bankamað- ur, John Gardener i Norwalk, hefði fylgt þessu máli með áhuga, meðan ]>að var á döfinni. Og jeg hefi jafn- an síðan haft grun um, að það hali verið hann, sem átti upptökin að þessu máli, til þess að þrófa og sja, livort við breyttum í raun og veru, eins og við þóttustum breyta. Siðar meir sagði hann öðrum þessa sögu og fyrirtæki okkar óx verulega í á- liti við það. Það var um þetta leyti, sem hijer datt í hug að fara í ferðalag lil þess að afla okkur nýrra viðskiftasam- banda, en það starf hafði jeg aldrei fengist yið áður. Jeg tók að mjer að heinísækjá hvern einasta mann í þessum landsfjórðungi, sem á ein- hvern liátt væri viðríðin líka kaup- sýslu og þá, sem við rákum, og nú ferðaðist jeg um Ohio og Indiana, þvert og endilangt. Jeg hafði kom- ist að ])eirri niðurstöðu, að besta ráðið væri blátt áfram það að kynna öðrum firma okkar, án ])ess að fara fram á kaup eða sölu þegar í stað. Jeg kom til manna og sagði þeim, að jeg kæmi fram fyrir hönd firmans Clark & Rockefeller og kærði nug ekki iim, að sletta mjer fram í þau viðskiftasambönd sem fyrir væru. En ef ástæða yrði til þætti mjer kærl að mega liafa viðskifti við viðkom- andi, o. s. frv. Mjer kom það mjög á óvart, að eftir þetta fengum við svo mikið af nýjum viðskiftavinum, að við sáum ekki út úr þvi, sem við höfðum að gera. Fyrsta árið seldum við vörur fyrir meira en hálfa miljón dollara. Hvorki ])á eða síðar virtust vera nein takmörk fyrir því, hve miklum peningum við þurftum á að halda lil þess að reka yerslun okkar og stækka hana. Þegar hepnin var farin að verða með okkur hallaði jeg sjaldan höfðinu á koddann án þess að tala nokkur orð við sjálfan mig: „Já, nú gengur alt vel, en bráðum slær í baksegl og verslunin fer i hundana. Þú ímyndar þjer að þú sjert kaupmaður, aðeins vegna þess að þú héfir verið heppinn í fyrst- unni. En líttn nú i kringum þig, þvi að annars ofmetnast þú — farðu liægt og gætilega“. Jeg var viss um að þetta eintal sálarinnar við sjálf- an mig hefir haft inikla þýðingu f.yrir mig bæði fyr og síðar. Jeg var hræddur um að jeg mundi ekki þola meðlætið og reyndi að verjast því að fyllast oftrausti á mjer og hje- gómagirnd. Jeg varð þrásinnis að lána fje hjá föður mínum. Mjer var talsvert á- hyggjuefni að þurfa að vera svo upp á hann kominn og þessi viðskifti okkar voru alls ekki eins skemtileg fyrir mínum sjónum þá, eins og síðar varð. Stundum hafði liann það til að koma til mín og segja, að ef jeg þyrfti á meiri peningum að lialda i verslunina, þá gæti hann lánað mjer dálítið. Og af því að mig vantaði altaf peninga ])á var jeg þessum böðúm glaðúr, jafnvel þó að jeg yrði að greiða 10 af hundraði í vexti. Einmitt þegar jeg þurfti mest á pen- ingum að halda, hafði liann til að segja: — Jeg ér hræddur um að jeg þurfi á peningunum að halda núna, drengur minn. —r- Það er sjálfsagt að jeg borgi þjer þá undir eins, svaraði jeg. En jeg vissi, að hann var aðeins að reyna mig. Þegar jeg borgaði hon- um, undir þessum kringumstæðum, hjelt hann peningunum stutta stund og bauð mjer þá svo til láns aftur. Jeg játa, að þessi agi hefði átt að gera mjer gagn og muii'kanske hafa gert það. En að jeg leyndi ])essu kom af því, að mjer þótti ekkert gaman að þvi, að láta gera svona tilrauni.r á skilvísi minni. Þessar tilraunir föður mins minna mig á deilurnar sem einu sinni voru háðar urn rentu af lánum. Margir lijeldu því fram, að tíu af hundraði í vexti væri hreinn og beinn þjófn- aðu og að slíkar rentur heimtuðu ekki nema vondir menn. Jeg var vanur að halda því fram, að pen- ingarnir væru virði þess, sem mað- ur gæti haft upp úr þeinr — enginn mundi vilja borga 10%, nei, ekki 5 eða 3%, ef maður álili ekki sjálfur, að maður hefði hag af peningunum samt og gæti grætt á að velta þeim. En af því að jeg var í sífeldum pen- ingavandræðum, þá hjelt jeg því fram, að maður mætti ekki greiða hærri rentu en nauðsynlegt væri. Eina áköfustu og harðskeyttustu deiluna, sem jeg hefi nokkurntíma háð, átti jeg við blessaða gömlu koniuia, sem átti gistihúsið, cr William bróðir minn og jeg dvöld- um í, þegar við gengum á skólann i Cleveland. Jeg hafði mikla ánægju af ])essum kaj)præðum, því að gamla konan var allra duglegasta manu- eskja og rnjög slyng í kappræðum. Og af því að hún tók aðeins dollar fyrir fæði og húsnæði um vikuna og lilynti ágætlega að okkúr, var jeg einl'ægur vinur hennar, Þessi borgun var annars hið venjulega verðlag í gistihúsum í þá daga í smábæjunum, þar sem fólk lifði nær eingöngu á framleiðslu unihverfisins. Þessi ágæta kona var svarinn ó- vinur allra þeirra, sem lánuðu fje með háum. vöxtum og bar þetta efni ofl á góma hjá okkur. Hún vissi, að jeg hafði þann si?) að fá lánað fje hjá föður niínum, og einnig vissi hún að hann heimtaði háa vexti. En allar rökfærslur veraldar gátu ekki þokað vöxtununi niður — það varð ekki fyr en framboðið varð méira á lánsfje. Annars er lífsskoðun min sú, að allar breytingar á skoðun almenn- ings á fjármálum orsakist af jafnri og vissri þróun, eftir viðurkendum fjárhagslögmálum. En sjaldan liafa hreytingarnar komið af fljótfærnis legum löggjafarróðstöfunum. Það hlýtur að vera erfitt að gera sjer í hugarlund nú, hve érfitt var að fá lánsfje til atvinnureksturs i þá daga. Vestar í Bandaríkjunum voru vextirnir enn hærri en hjá okkur. Það sýnir, hve aðstaða kauj)- sýslumanna í þá daga var gjörólík því, sem nú gerist. í sámbandi við lántökurnar minn- isl jeg erfiðustu fjármálafram- kvæmdanna, sem jeg hefi nokkurn- tíma haft með höndum. Við urðum að ná i peninga til þess að geta not- fært okkur tilboð frá stórri verk- smiðju. Það kostaði okkur mörg hundruð þúsund dollara út í hönd. Jeg fjekk tilkynninguna um hádegið og varð að fara með lestinni klukk- an þrjú. Jeg ók banka úr banka, talaði við bankastjórana eða gjald- lxerana og bað þá um að lóta mig hafa eins mikið og þeir gætu. Eftir Frh. ú l)ls. 1.i.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.