Fálkinn


Fálkinn - 17.07.1937, Blaðsíða 9

Fálkinn - 17.07.1937, Blaðsíða 9
9 F Á L K I N N Bærinn Hastings í Englandi er nú sem óðasl að búa sig undir að verða mesti fyrirmyndarbaðstaður- inn í Englandi og hefir öflugur fjetagsskapur myndast um, að koma þar upp nauðsynlegum bygy- ingum til þessa, fyrs't og fremst gistiliúsi fyrir baðgesti, er taki fram ötlu því, sem Englendingar hafa sfe|ð! tit þe'ssa. Myndin til hægri sýnir, hvernig húsameistar- inn hugsar sjer að þetta gistihús líti úl. Er það vegleg bygging og í tiskustíl og lwert einasta gisti- herbergi hefir aðgang að svölum til þess að gestirnir geti baðað sig í sólinni, milli þess að þeir svamla í sjónum. Myndin hjer að neðan er af ein- um af kafbátum Dana, en þeim hefir fjölgað mikið síðustu árin og þykja tiltækilegustu vopnin iil að varna óvinaskipum að komasi inn í hafhir bæja. í vor fór kaf- bátaflotinn í einskonar húsvitjun til fjölda danskra hafnarbæja, til þess að kynna sjer staðhættina. 1 baksýn er Refshaleöen í Kaup- mannahöfn. Drengirnir hjer að ofan urðu dansk ir meistarar, hver í sínum þyngd- arflokki, í hnefaleik í Danmörku i vor. Þeir heita (frá vinstri): Poul Jensen frá Aarlius, Gerhard Peter- sen frá Aarhus og Jörgen Jörgen- sen frá Esbjerg, Gunnar Andrea- sen frá Odense. Það er víst vissara að ybbast ekki við þá, ef svo færi að þeir yrðu á götu múnns. Enski herinn leggur mikla dhersln á, að hafa gott riddaralið, og þó að vjeltæknin hafi nú rutt sjer lil rúms í hernaði, og notaðar sjeu i stórum stíl bifreiðar, brynreíðar, hjólatikur og önnur nýtískuviðrini þykir hesturinn ekki mega missa sig fyrir þvi. Myndin er tekin af riddaraliðsæfingu og sýnir m. a. að hestarnir kunna að sétjast á dausinn eins og hundar. En falleg- ar eru þær stellingar ekki.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.