Fálkinn - 17.07.1937, Blaðsíða 15
F Á L K I N N
15
AMALIE EARHART FLUGKONA.
/>';■/). af blx. 2.
kona i Rauðakrossinum en lærði síð-
an læknisfræði við Columbia-háskól-
ann en lók jafnframt að leggja stund
á flug. Heimsfrægð sína hlaut hún
fyrir það, að hún flaug frá Nev;
Foundland til Wales 17.—18. júní
1928 og varð fyrsta konan, sem
flaug yfir þvert Atlantshaf. Öðru
sinni flaug hún yfir Atlantshaf frá
New Foundland til írlands 20.—21.
maí 1932 á aðeins 13V2 klukkustund
og setti lnin fjögur ný met í þvi flugi
Er það afrek talið með mestu flug-
afrekum sögunnar. Og mörg önnur
l'lugafrek hefir hún unnið, þó að
þau tvö sem nefnd voru, þyki mest.
Fram til ársins 1931 stýrði Ame-
lie Earhart stórri heilbrigðisstofnun
í Boston. Hún hafði aldrei flug
að aðalstarfi, en flaug aðeins sjer til
skemtunar. En í febrúar 1931 giftist
hún G. P. Putnam, hinum fræga
ameríkanska bókaforleggjara og síð-
an hefir hún-flogið mjög lítið. Þessi
ferð hennar átti að verða einskonar
sumarfrí frá húsmóðurstörfunum.
Myndin hjer að ofan er af Ameliu
Earhart, eins og hún var búin þegar
hún lagði upp i hina siðustu ferð
sína.
Fjársjóðurinn
frá Port Arthur.
Fimm liðsforingjar úr rússneska
keisarahernum vita hvar hersjóður-
inn frá Port Arthur er geymdur.
Þetla eru hvorki meira eða minna
en 50 miljón yen í gulli. Nú hafa
Japanar tekið sig til og ætla að
finna sjóðinn. Þeir eru þegar farn-
ir að leita. En sjóðurinn á sjer
þessa sögu:
Þegar Japanar höfðu setið um
Port Artliur í 210 daga i ófriðnum
við Rússa 1905 og Stözzei, foringi
borgariiðsins sá fram á, að honum
mundi ekki koma nein hjálp frá
rússneska flotanum, gafsl hánn upp.
Eftir að Anatol Michailovitsj Stözzei
hafði ráðfært sig við foringja sina
ákvað hann að hefja samninga við
Japana. Um miðjan ,dag 2. janúar
1905 koniu samningamennirnir að
MAUREEN O’SULLIVAN
hin írsk-ameríkanska kvikmynda-
leikkona, sjest hjer á myndinni i
slóru hlutverki í nýrri kvikmynd,
sem væntanleg er á markaðinn i
haust.
LÍTILL SKÁKSNILLINGUR.
Drengur ])essi á heima í Belgnul
og er tæpra sjö ára. En hann er þeg-
ar orðinn svo fær í skák, að hann
stendur fullorðnum skáksnillingum
á sporði. Hjer sjest hann vera að
glima við skákþraut.
SOLDÁNINN AF DJOKJARKARTA
á Java varð í vetur ástfanginn af
ungri rúmenskri stúlku og vill endi-
ltga fá að giftast lienni. Heitir stúlka
þessi Nadia Vaslov, og er 19 ára. En
Vilhelmina Hollandsdrotning, sem er
hæstráðandi á Java, þvertekur fyrir
að þau fái að giftast, því að soldán-
inn á stórt kvennabúr fyrir.
KVIKMYND af VICTORIU
ENGLANDSDROTNINGU.
Enskt kvikmyndafjelag er um það
bil að fullgera merkilega kvikmynd
af lifi Victoríu Englandsdrotningar.
Hjer á myndinni sjest drotningin
(sem leikin er af Anna Neagle) á-
samt erkibiskupnum af Kantaraborg
og Conyngham lávarði, sem báðir
koma mikið við sögu í myndinni.
PFIDTD5
RYKSUBfln
MIKIÐ SOGMAGN
SIEMENS-mótor með tiltölu-
lega litlum snúningshraða; því
lítið slit og góð ending.
HUNDRUÐ 1 NOTKUN HÉR
m
SIEMENS
Líftryggingarhlutafjelagið
NYE DANSKE AF 1864
Líftryggingar
allar tegundir. Lægst iðgjöld. Best kjör.
Aðalumboð :
V átry ggingarskrif stof a
Sigfúss Sighvatssonar.
Lækjargötu 2. Simi 3171.
»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
víglinum Japana. Þeir vissu vel að
það þýddi ekkert að biðja sjer griða
og að í borginni mundu óvinirnir
ná miklu herfangi, skipum, vögnum,
hergögnum, vopnum og — svo voru
þar 50 miljón yen í gulli.
Óvinirnir voru alt í kringum Port
Arthur og inni í borginni var ó-
mögulegt að fela fjársjóðinn því að
þar hefði hann fundist. Þessvegna
varð að koma honum gegnum víg-
linu fjandmannanna. Nú segir sag-
an að um miðja nótt hafi allir verð-
menn í viginu verið leystir af í einu.
Og þegar þeir voru farnir óku fimm
stórir sleðar út úr víginu og upp að
Drekafjalli, svonefndu. Þar fór fjár-
sjóðurinn. Enginn vissi hverjir
stýrðu sleðunum, en sagt er að það
hafi verið fimm foringjar, sern
Stözzel treysti vel. Þeim var trúað
fyrir að fela fjársjóðinn. —
Árin liðu og Stözzel var stefnl
fyrir herrjett og hann dæmdur til
dauða en náðaður. Hann sagði ekki
frá hvar fjársjóðurinn væri geymd-
ur og foringjarnir fimm ekki held-
ur. Rússa dreymdi um að ná Porl
Arthur aftur, og þessvegna 'var ekki
hugsað um fjársjóðinn. Svo kom
heimsstyrjöldin og þá mátti enginn
vera að hugsa um þessi 50 miljón
gull-yen. Stözzel dó 1915.
Árið 1933 kom rússneskur lier-
maður, sem tekið hafði þátt i styr-
jöldinni 1904—5, til japönsku stjórn-
arinnar, og baðst leyfis til að leila
að fjársjóðnum, gegn ákveðnum
fundarlaunum. Nokkru síðar gerði
maður vart við sig í París og kvaðst
vera einn þeirra fimm, sem fólgið
höfðu fjársjóðinn. Það var fullyrt
að hann segði satt, og að allir firnrn
foringjarnir væru enn á lífi.
En nú hefir japanska stjórnin á-
2 kr. 50 aur.
(aðeins) kostar hin ágæta
bók Blámenn og Villidýr, er
Ólafur Friðriksson hefir
safnað í sönnum sögum frá
Afríku og íslenzkað. Bókin
er með myndum; fæst hjá
bóksölum.
kveðið að bægja öllum þessum
mönnum frá og liefja sjálf leitina.
Hún gerir sjer góðar vonir um, að
finna þennan fjársjóð, sem legið
hefir í jörðu einhverssstaðar í
Drekafjallinu í 32 ár.
GYÐINGAR FLYTJA TIL LANDSINS
HELGA.
Gyðingastofnunin „The Jewish
Agency“ hefir nýlega sent Alþjóða-
sambandinu skýrslu um innflutning
gyðinga til Palestínu árið 1935.
Samkvæmt henni fluttust 61.800 gvð-
ingar til ættjarðar feðra sinna á ár-
inu. Flestir þeirra komu frá Pól-
landi: 27291, frá Þýskalandi komu
7747, frá Rúmeníu 3596, frá Grikk-
landi 2122, frá Lithauen 1967, frá
Bandaríkjunum 1638, frá Yemen
1425, Tjekkóslóvakíu 1397, Lettlandi
1042, Frakklandi 1020, Austurríki
961 og frá Tyrklandi 764. Talið er
að 16.240.000 gyðingar sjeu til i
veröldinni. Og af þeim eiga finun
miljónir eða um 30% heima i Am-
eriku.