Fálkinn


Fálkinn - 22.01.1938, Blaðsíða 3

Fálkinn - 22.01.1938, Blaðsíða 3
F A L K 1 N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórcir: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvœmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavik. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10-—12 og 1—6. Skrifstofa i Óslo: A n 1 o n S c li j ö thsgadf 1 4. Blaðiö kemur út hvern laugardag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á mánuði: kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglfisingaverð: 20 aura millimeter Herbertsprent. Skraddaratiankar. „Það er nú et'tir því hvernig á það 'er litið“, segja karlarnir þegar þeir eru að rökræða. Og svo segja þjlír ekki meira. Enda er það svo oft, sem ekki þarf að- segja meira. Alt breytir um viðliorf eftir þvi hvernig á það er litið. Við lítum upp til minnisvarða Jóns Sigurðsson- ar á Austurveili, en þeir á Útvarpinu og Veðurstöfunni líta njður á liann og myndin er ekki sú sama. Áður fyr hjeldu menn þvi fram statt og stöðugt að jörðin væri kyr og sólin væri á sífeldum þeytingi kringum hana. Svo koniu nýir vísindamenn og sönnuðu að jörðin snerist kring- um sólina og að vísu væri ekki sól- ip kyr. Og við lærðum af þessum riýju vísindamönnum, en hlógum að gamla fólkinu sem var svo vitlaus! að halda að jörðin slæði kyr. Svo kemur Albert Einstein og segir: „Jörðin snýst krlnguni sólina! Eða jörðin stendur kyr og sólin og allur himingeimurinn snýst kring- um iiana. Það er alveg, eftir þvi hý^rnig á það er iitið! — Við getum hugsað okkur að skopparakringlan hefði sál og þá mundi hún kanski hugsa þegar hún skoppar: Ekki er það jeg sem snýst, heldur snúast hlutirnir kringum mig. Jég stend grafkyr! M.aður sem taiinn er hálfgerður misindis'gripur í mánnfjelaginu get- ur komist í hóp svo illra bófa að hann þyki mesta ljúfmenni. Og góði maðurinn gelur komist í slíkan úr- valsmanna hóp, að hann þyki hrotti og fúlmenni. Keflvíkingnum þykir Reykjavik stór en Lundúnabúanum jiýkir lnin lítil. Selnum er funheitt i sjónum þegar sundmanninum er kalt. Það er hæg't að leggja svo marga mælikvarða á hlutina o'g sjónarmið- in eru svo mörg. Þessvegna er ekki vert að skopast að þeim sem segja: „Eftir þvi hvernig á það er litið“. Það er fyrirvari sem öllum er holt að laka. Og það er miklu sjaldnar en menn gera sjer í hugarlund, að hægt er að segja: „Þetla er nú svona hvcrnig sem á það er litið“. Það er svo fált í heiminum, sem ekki er hægt að leggja mis'munandi mæli- kvarða á. Og þeir eru svo fáir sem geta haldið því fram, að einmitt þeirra mælikvaði sje rjettur. Þvi er sá vitrari sem hefir fyrirvarann á. Hann hefir lærl einföld sannindi, sem nauðsynlegt er að kunna, hvei'nig sem á það er litið! Um Eyjólf sterka á Litla-Hrauni og sagnir um glímu við blámenn. 1 Huld 1, 45—46, hefir Brynjólfur Jónsson frá Minna-Núpi skráð eftir munnmælum eystra frásögn af viður- cign Eyjólfs á Litla-Hrauni við blá- mann einn ferlegan, er skipstjóri á Éyrarbakkaskipi flutti hingað út með með sjer, til þess að bera af ísleiidingi, er fenginn væri á móti honum. Sagan er svo stutt og vel sögð, að rjett er að taka hana hjer upp í heilu lagi: „Eyjólfur hjet maður, er uppi var um miðja 18. öld. Hann bjó á Litla- Hrauni i Stokkseyrarhreppi. Hann var orðlagður fyrir afl og hreysti, og þar að auki var hann fyrh'taks glímumaður. Kaupmaðurinn, sem þá var á Eyrarbakka, átti eitthvert sinn tal við skipherrann á skipi sinu um íslendinga. Gerði skipherra litið úr þeim, og sagðist skyldii koma með þann mann frá útlöndum, sem cng- inn íslendingur stæði fyrir, cn kaup- maður hjelt íslendingum fram, sagð- ist skyldu koma með þailn íslend- ing, sem enginn útlendingur bæri aí. Þeir veðjuðu um þetta. Sumarið eftir kom skipherra með blámann, viltan og tröllslegan. Kaupmaður fekk Eyjólf lil að glima við hann. Var Eyjóifur þó tregur til, því að liann var við aldur, en bjóst við vægðarlausum viðskiptum. Áður en hann gekk til glímunnar, sivafði hann sig með snæri um kropp og útlimi undir ytri klæðunum. Gat blámaður því hvergi klipið hann til meiðsla. Lengi gerði Eyjólfur ekki annað en verjast, og þóttist full- reyndur; svo ólmur var blámaður- inn. Loks kom Éyjólfur þó bragði á hann og feldi hann. Ljet liann þá knje fylgja kviði og þjappaði svo að bringspölum blámannsins, að blóð gekk af munni hans. Voru þeir þá skildir, og blámaðurinn leiddur fram á skip. Eyjólfur var aldrei samur eftir viðureignina. Sagt er, að kaupmaður hafi gefið Eyjólfi veðfjeð og meira til fyrir þennan sigur“. Um Eyjólf á Litla-Hrauni er að vísu fátt kunnugt, en engit að síður er hann þó söguleg persóna. Hann var sonur Símonar i Simbakoti á Eyrarbakka (f. 1681) Björnssonar á Háeyri (f. 1649) Jónssonar. Frá Eyj- ólfi er komin fjölmenn ætt. Er kunn- ugt um þrjá syni hans er ættir eru Irá komnar: 1) Gísli bóndi á Kalastöðum við Stokkseyri, faðir a) Magnúsar á Kotleysu, b) Margrjetar, konu Þor- gils Jónssonar á Kalastöðum, c) Guðríðar, konu Jóns ríka i Vestri- Móhúsum og d) Önnu, konu Þor- steins í Hól við Stokkseyri. Dætur Magnúsar Gíslasonar á Kotleysu voru Katrín, — móðir Magnúsar Krist- jánssonar mormóna, sem allmiklar sögur fóru af á sinni tið (sbr. t. d. ísl. sagnaþættir eftir Br. J. II, 32— 64), — og Guðrún, kona Þórðar silfursmiðs í Brattsholti Pálssonar. Börn Margrjetar Gísladótlur og Þor- gils á Kalastöðum voru Gísli merk- isbóndi á Kalastöðum, — faðir Jóns hreppstjóra i Austur-Meðalholtum, Gísla hreppstjóra á Stóra-Hrauni, Gríms hreppstjóra í Óseyrarnesi, Margrjetar, konu Páls Jónssonar hreppstjóra á Syðra-Seli, og Þor- gerðar, konu Páls Eyjólfssonar í Eystra-íragerði,.-— Elín, móðir Þórð- ar í Traðarholti,. Gróu á Skriðufelli og þeirra systkina, og Guðmundur á Litla-Hrauni, faðir Guðmundar, er fór til Ameríku og lifir þar enn á tíræðisaldri. Dætur Guðríðar Gisla- dóttur og Jóns í Móhúsum.voru Sig- ríðar þrjár. Átti hin elsla þeirra Jón Jónsson óðalsbónda á Vestri- Loftsstö'ðum og mörg börn; önnur átti Svein á Læk i Krýsuvík og börn, en Sigríður yngsta giftisl Adolf Pet- ersen hreppstjóra á Stokkseyri, og eiga þau marga afkomendur. Anna Gísladóttir var móðir Jóns í Hól og Gísla á Asgautsstöðum, föður Önnu, fyrri konu Sturlaugs Jónsson- ar í Starkaðarhúsum á Stokkseyri. 2) Guðmundur, sonur Eyjólfs á Litla-Hrauni, var faðir Halldóru, konu Brynjólfs Björnssonar i Litlu- Sandvik. ðleðal barna þeirra var Guðmundur Brynjólfsson í Litlu- Sandvík, faðir Þorvarðar hrepp- stjóra í Litlu-Sandvík, föður Guð- mundar hreppstjóra og systkina hans. En systkini Þorvarðar voru Bjartii í Geirakoti og Þóra, kona Jóns Símonarsonar í Litlu-Sandvik, 3) Símon Eyjólfsson sterka bjó í Litlu-Sandvík. Sonur hans var Jón bóndi i Óseyrarnesi og á Sclfossi, sem fjöldi fólks er frá konlinn. Með- al bárna Jóns voru a) Einar á Sel- l'ossi, faðir Gunnars á Selfossi og Eyleifs á Árbæ í Mosfellssveit, b) Ingimundur i Norðurkoti í Grims- nesi, faðir Jóns í Hólakoti á Álfta- nesi og Eijiars uánboðsmanns í Kaldaðarnesi, c) Snorri á Selfossi. d) Sesselja, kona Simonar Þorkels- sonar á Gamlahrauni. Meðal barna þeirra voru Jón í Litlu-Sandvík, faðir Simonar á Selfossi, Þóra, kona Guðmundar Þorkelssonar á Garnla- hrauni, og Elín, kona Jóhanns Þor- kels'sonar í Mundakoti. Af þessu ágripi mun vera ljóst, að niðjar Eyjólfs sterka á Litla-Hrauni, þeir sem nú lifa, skipta mörgum hundruðum, og verður því ekki sagt, að hann hafi látið sjálfan sig án vitnisburðar. En ef vikið er aftur að sögunni um viðureign hans við hiámánninn, þá skortir þar vitan- lega allar sannanir, svo sem eðlilegt ei. Þó er ljóst að Brynjólfur frá Minna-Núpi hefir tekið söguna eftir niðjum Eyjólfs, því að i sögulokin bætir hann við: „Eyjólfur var faðir Gisla, föður Margrjetar, móður Gisla Þorgilssonar, föður Gríms óðalsbónda í Óseyrarnesi“. Má því ætla, að þarna sje heimild hans fyrir sögunni. Grímur í Óseýrarnesi var fjórði mað- ur frá Eyjólfi og sagnir slíkar sem þessar þurfa skemri tíma en hjer er um að ræða til þess að taka á sig kynjalegan svip. Hjer virðist nefnilega vera um flökkusögn að ræða, sem tengd hefir verið við ýmsa menn með nokkuð mismunandi atvikum, en aðalefni hinu sama. Einna líkust er sagan af Jóni sterka (Þjóðs. J. Á. I, 323 o. áfr.), er menn munu hafa gaman af að lesa til samanburðar. Jón sá á heima á Eyrarbakka, en hjer er það kaup- maðurinn, en ekki skipstjórinn, sem sendir blámanninn á móti Jóni. Jón sivefur sig með snærum, áður en hann gengur á inóti blámanninum, eins og Eyjólfur gerði, en frá við- ureign þeirra er sagt með meira ýkjublæ en í sögunni af Eyjólfi. Er sagan af Jóni eftir eyfirskri frá- sögn. Missögn af þessari sömu sögu eftir borgfiskri frásögn er einnig til (Þjóðs. J. Á. I, 574). Eftir þeirri sögu var Jón vinnumaður kaup- manns i Keflavik. Eitt sinn fór hann með húsbónda sínum tit Reykjavíkur og varð hann þá mis- sáttur við skipherra einn, og þar glímdi hann svo við blámann vorið eftir og rjeð niðurlögum hans. Þá er s'agan af Jóni Ásmundssyni (Þjóðs. J. Á. I, 327 o. áfr.), sem svipar mjög lil hinnar fyrri. Sá Jón er ættaður úr Borgarfirði og glímir við blámanu í Reykjavík, er kaup- Magnús tíuðmundsson skipa- smiður, verður 50 ára 2't. þ. m. Frú Ingibjörg Blöndal, Nýlendu- götu 6, verður A0 ára 21. þ. m. í Lundúnaborg er nú verið að skíra upp að nýju meira en 1300 götur, stræti og torg. Orsökin 1 iI þess er sú, að mjög margar götur heita sama nafninu, algengt að 5 eða jafnvel 10 götur, sín i hverjum borg- arhluta, heiti hið sama, og hefir þetta oft valdið miklum villum og glundroða. maður sendir á hann, sem hann hafði orðið missáttur við. Illífir hon- um svört úlpa í stað snæranna í hin- um sögunum. Loks er svipuð frá- sögn af viðureign við blámann í sögunni af Magnúsi sterka (Huld VI, 25 o. áfr.). Sú saga gerist austur á Reyðarfirði, og enn sem fyrr er það kaupmaður, sem hefir blámanninn með sjer til þess að hefna sín á Magnúsi, og giíman endar eins og ella með ósigri blámannsins. Sagnir þessar mæ.tti rekja miklu ýlarlegar ef rúm væri til, og benda á nánari tengsl þeirra sin i milli. Það sýnir best, að hjer er um flökku- sögn að ræða, að sögnin er að fcngin úr ýmsum landshlutum, og mismunurinn ekki meiri en svo, að auðsjáanlega er um eina og sömu sögu að ræða. En af þeim sögnum. um glímu við blámann, sem hjer hefir verið getið, er sagan af Eyj- ólfi á Litla-Hrauni miklu liófsam- legusl. í öllum hinum afbrigðunum ei íslendingurinn 1. d. látinn drepa blámanninn. Sagan af Eyjólfi virðisl því einna frumlegust og standa veru- leikánum næst, hvað sem kann ann- ars að vera hæft i henni eða hafa gefið tilefni til hennar. Þvi má og bæta við, að söguhetjurnar i hinum blámannasögunum virðast vera hrein- ar þjóðsagnapersónur. Guðni Jónsson.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.