Fálkinn - 11.06.1938, Síða 8
8
F Á L K I N N
*—10 —x— 8 —*—10
Smábarnaföt. SS6 “ sl6“n v“'leg'"',r
Efni:
350 gr. mjúkt ullargarn hvítt, ljós-
blátt eða ljósgrænt. Prjónar eftir
stærð garnsins. 4 hnappar.
Myndirnar sýna:
Nr. 1 og 2 Boðangur.
3 Bak.
4 Ermi.
5 Skálm.
Pr jón:
Sljett, en því er snúið inn sem
rjetta er kölluð — en 5 1. hreiður
kantur framan á treyjunni er prjón-
aður öfugt.
Þar sem um misjafna stærð getur
verið að ræða á fötunum er ein-
faldast að búa sjer til snið eftir
myndum og fara eftir þeim.
Skálmar:
Fitjað upp að ofan, prjónað (i—8
cm. breiður kantur 2 1. r. 2 1. sn. Gala
röðin: 8 1 r, slegið um prjóninn 2 1
teknar saman o. s. frv. Sljett prjón
alia skálmina, aukið út eftir sniðinu,
þegar komið er að mjóalegg er
prjónað í hring og þá aftur prjónuð
Bak:
Fitjað upp að neðan 6—8 cm.
breiður kantur 2 I. r. 2 1. sn. síðan
sljett. Upp að handveg er prjónað
beint, þá feldar 5 1. af í einu og svo
1 1. i byrjun hvers prjóns 9 næstu.
Þar næst prjónað upp að öxl og
lykkjufjölda skift i þrent — hver öxl
feld af í þrennu lagi og hálsmál í
einu.
Boðangur:
Fitjað upp að neðan, kantur eins
og á bakinu. Á hægra boðang eru
prjónuð hnappagöt (sjá mynd 1) í
5 1. breiðum kant (s. 1.) eru feldar
af 3 1. og fitjaðar aftur upp á
næsta prjón. — Enginn úrtaka upp
að handveg, þá feldar af 5 1. í einu,
síðan 1 1. feld af á næstu 8 prjónum.
Þegar hjer er komið, eykur maður
út 1 1. á hv. prjón við innri rönd
kantsins, þegar axlarhæð er náð er
hún feld af í þrennu lagi — en síð-
an prjónaður kantur á barm treyj-
unnar (sjá mynd 1) og feld af í einu.
Vinstri boðangur prjónaður alveg
eins; að undanskildum hnappagöt-
um.
Ermi:
Fitjuð upp að framan, kantur eins
og á treyjunni, þá aukin út 1 1. á
3ja hverjum prjón upp að handveg,
þá feldar af 5 1. í einu báðu megin,
síðan 1 I. í byrjun hvers prjóns, þar
til eftir eru 12—15 1. feldar af í
einu.
Öll stykkin eru nú strokin nieð
mátulega heitu járni. Skálmarnar eru
saumaðar saman hver l'yrir sig á
líkan hátt og sýnt er á mynd 5,
siðan er hægri og vinstri skálm
saumuð saman, og band eða snúra,
sem snúin er úr garninu dregin í
götin. Treyjan saumuð saman, el'
vill má prýða hornin með „doppu-
saum“ þau brotin niður og hnappar
festir i.
SKEMTILEGUR HATTUR.
Þessi hattur er úr gljáandi svörtu
strái, prýddur með ribsrauðu bandi
og litskrúðugum fjólum að framan.
SKIÍÍTINN
er fljettaður úr grófu gulu strái og
ber það með sjer, að hann er snið-
inn eftir austurlenskum höfuðbúnaði.
SPORTSHETTA MEÐ HÖKUBANDI.
Þessi hetta er mjög hentug til að
halda hárinu í skorðum þegar mað-
ur er á skíðum, og hlýjar líka vel
eyrunum, þó hún sje Íítil. Og það
er fljótiegt að búa hana til.
KRAGI
úr „beige“-litu georgette.