Fálkinn - 11.06.1938, Blaðsíða 9
F Á L Ií I N N
9
Þó að fjárhagur ítala sje bágbor-
inn varði Mussolini miklu meira
fje til þess að taka á móti Hitler
er hann heimsótti hann snemma i
maí, en Bretgr vörðu til konungs-
krgningarinnar í fyrra. Til skrauts
á götunum hafði verið varið ó-
grynnum fjár og flotasýningin i
Neapel var sú stærsta, sem hald-
in hefir verið í veröldihni og var
gamalt skip skotið þar í kaf, Hitl-
er til heiðurs. Mussolini lagði kapp
á að sýna bandamanni sínum, hve
mikið stórveldi Italía væri orðið
og hvers virði það væri að hafa
hana á móti sjer og hve öflugur
styrkur væri að hafa hana með
sjer. En víst er talið, að þeir ein-
valdsherrarnir hafi ekki gert neina
nýja samninga í þessari heim-
sókn og jafnvel talið, að hún muni
hafa valdið Hitler talsverðum
vonbrigðum.
K
tljer eru nokkrar myndir frá heim-
sókninni. Efst sjást brynreiðarnar
ítolsku, sem voru einn þátturinn í
hersý'ningunnf, sem haldh'n var
Hitler til heiðurs. Höfðu margar
þeirra verið í styrjöldinni í Abess-
iníu. Á myndinni á miðri síðu til
vinstri sjest Hitler vera að kveðja
kunningjaná í Berlín, áður en hann
leggur af stað suður. Á myndinni á
miðri síðu til hægri sjest Hitler
vera að heilsa Mussolini í Róm en
bak við hann stendur þýski sendi-
herrann í Róm, Bulow Schwante
en til vinstri eru Victor Emanuel
konungur og Ciano greifi, utan-
ríkisráðherra. Loks sjest á neðstu
myndinni Via del Imperio, hin
nýja gata, sem MuSsolini hefir lát-
ið gera í Róm og öll var upplýst,
er Hitler ók um hana frá járn-
brautarstöðinni og til bústaðar
síns í konungshöllinni. í fylgd
með Hitler voru ýmsir hæstsettu
menn úr stjórn Þýskalands og
sterkur lífvörður frá Þýskalandi.