Fálkinn


Fálkinn - 11.06.1938, Síða 14

Fálkinn - 11.06.1938, Síða 14
ÍSLANDSGLIMAN 1938 SVÍAKONUNGUR ÁTTRÆÐUR. Framh. frá 5. síðu. Gustaf konimgur er veiði- maður mikill og góð skytla. Mesta yndið liefir hann af elgs- veiðum og bíður þá oft til sín öðrum þjóðhöfðingjum á þær veiðar, t. d. Kristjáni X. Hann er lítill reiðmaður og sjest sjald- an á liestbaki nema þegar hann þarf þess með við hersýningar. Og hpnum er ilia við að sýna sig á almannafæri. Þegar hann fer í óperuna kemur hann ekki inn í stúkuna fyr en Ijósin hafa verið slökt i salnum. Og iiann sjest aldrei á gangi á göt- unum í Stokkhólmi. „Til livers er það? Maður verður að ganga með hattinn í hendinni og sí- heilsandi.“ Hann tekur hifreið- ina og ekur hart þegar hann þarf að skreppa húsa á milli eða hæjarleið. Hann er tígu- legur í framgöngu og prúður í klæðahurði. Og ef liann sjest hlæja, þá er það af því. að hann hefir lieyrl góða fyndni.— Þau 30 ár sem Gustaf hefir verið konungur Svía liafa verið mikil framfaraöld hjá þjóð- inni. Fyrir aldamótin voru Svi- ar fyrst og fremst hændaþjóð, sem lifði á frægðinni um „forn- stora dar“ er Svíar rjeðu mestu kringum alt Eystrasalt En nú hefir þjóðin unnið það inn á við sem hún tapaði út á við, Svíar eru orðnir stóriðnaðar- þjóð og framfarir miklar með- al allra stjetta þjóðfjelagsins, ekki sist þeirra, sem áður áttu við hágust kjör að búa. Svíar hafa upplifað ameríkanskan hraða í iðnaði sínum og þeir hafa auðgast stórlega. Ríkis- skuldirnar eru aðeins 100 mil— jónir og Svíar hafa fje aflögum lianda öðrum þjóðum og hafa stofnað vþldug alþjóða-kaup- sýslufyrirtæki. Þegar Gustaf var kronprins var hann einn af stofnendum „Sveriges All- mánna Exportförening“, sem hefir lyft þjóðinni mjög og út- flutningsverslun hennar. Og á fyrstu stjórnarárum hans var stofnað „Svenska Kullager“ (S. K. F.) sem nú er mesta út- flutningsfyrirtæki í Sviþjóð. Svíar liafa löngum verið há- reistir í framkomu og liafl yndi af að lála bera hátt á sjer og sýna á sjer stíl og prýði. En þetta var öðrum fyrirmunað en yfirstjettunum. Nú er jöfn- uðurinn orðinn meiri. Og Sví- ar eru í dag háreisl fyrirmynd- arþjóð, sem í mörgu gela gefið nágrönnum sínum fordæmi til fyrirmyndar. Þeir eru gagn- þroskaðasta og sterkasta jjjóð norðurlanda. Leon Trotski er talinn með tekju- mestu rithöfundum heimsins. Am- eríkönsku hlöðin morga honum 10.- 000 krónur fyrir þúsund orða grein og er það miklu hærri laun en Lloyd George og Mussolini fá. Milli blaðagreinanna er Trotski að skrifa æfisögu Lenins. Islandsglíman hefir löngum verið álitinn einn merkasti íþróttaviðburður ársins, þó að hún allra síðustu árin hafi ekki dregið að sjer athygli manna, sem vera ber. Lítil þátttaka í glimunni hefir eflaust átt sinn þátt i því. Að þessu sinni var þátttakan góð, 13 keppendur. Af þeim voru 5 Ármenningar, 7 Vest- manneyingar o,g 1 Árnesingur. Glíman fór vel fram og drengi- lega, undantekningarlítið. Þátt- takendur voru mjög misjafnir kappglímumenn eins og ætla Láirus Salómonsson. rná. Ánnarsvegar úrvalskappar Armanns, sem liafa lagt rækt við glímuna í meira en áratug og lekið þátt í fiestum kapp- glímum, sem hjer liafa verið liáðar á því tímabili, og hins- vegar óharðnaðir unglingar frá Vestmannaeyjum með tiltölu- lega skamma æfingu að balci. Annars er það um Vesl- manneyingana að segja, að þeirra framkoma öll var hin hesta, þó að fæstir þeira sjeu ennþá skæðir kappglímumenn, en eflaust eiga þeir góða fram- tíð sem glímumenn, ef þeir lialda áfram að æfa sig undir stjórn svo góðs kennara sem Þorsteins Einarssonar. Einrí Vestmanneyingur, Sig- urður Guðjónsson, vakti á sjer mikla athygli. Hann er harð- frískur giímumaður, sterkur, mjúkur og snarpur. Hann feldi alla keppinauta sína nema Ár- menningana þrjá: Lárus Saló- monsson, Ágúst Kristjánsson og Skúla Þorleifsson. Það er skoðun mín, að Sig- urður sje efnilegasti glímumað- urinn, sem fram hefir komið hjer síðan 1930. Vagn Jóhannsson, sem var vinsæll og vel kunnur glímu- maður hjer um skeið glímdi að þessu sinni, mörgum til ánægju. Hann var að visu ekki eins sigursæll og oft áður, en stóð sig þó vel, m. a. í þvi að fella fyrverandi glímukong, Skúla Þoxdeifsson. Úrslit glímunnar urðu ann- ars þau, að Lárus Salómonsson vann Gi-ettisbeltið með öllum vinningum, og glímukonungs- titilinn fyrir árið 1938. Lái’us var rnjög vel að sigrinum kom- inn. Það er vafamál livort Lárus hefir uokkru sinni staðið sig hetur. Lárusi liefir stundum verið fundið það til foráttu að hann glímdi illa, en að þessu sinni glímdi hann rnjög vel. Næstur Lárusi varð Ágúst Krist- jánsson með 10 vinninga. Ilann hlaut glímusnillingsnafnbótina svo sem oft áður, enda afbragðs glímumaður. Að þessu sinni gat það að vísu veiiið álitamál, livort honum eða Lárusi hæri hún fremur. Næstir Ágústi voru Skúli Þorleifsson og Sigurður Guðjónsson með 8 vinninga hvor. Áffúst Kristjánsson. Skúla Þorleifssyni, er var glímukonungur Islands i fyrra, mistókst í þessari glímu. Hann glímdi ekki vel. — Eftir fram- komu lians að dæma mátti ætla að hann hafi verið illa undir glímuna huinn. 1 heild var gliman skemtileg. Meiri fjölbreytni í brögðum en vanalega er á kappglímum. Áhorfendur að glímunni voi’u með allra flesta móti, enda ágætt veður. — Þessi Islandsglima hendir til vaxandi áhuga fyrir glimunni, enda þess full þörf, þar sem að glíman hefir mjög verið vanrækl síðustu ixrin. Sjerhver þjóð, sem á slika þjóð- aríþrótt, sem glíman er, verður að leggja metnað sinn í, ekki aðeins að halda glímunni við, heldur að efla liana. — Vest- mannevingar eiga miklar þakk- SJÖMANNADAGURINN. Frcunh. frá 3. síffu. manna liafði sungið: „Þrútið var loft“, hjeldu þeir Ólafur Tlioi’s alþingismaður og at- vinnumálaráðherra ræður og mæltist báðum mjög vel. Ólafur afhendi fyrir hönd íslenskra hotnvörpuskipaeiganda sjómönn- um að gjöf vandaðan hikar til þess að keppa um í björgunar- sundi. Næstu liðir á dagskrá sjó- mannadagsins fóru fram niður við liöfn. Fyrst var kappróður. Tóku þátt í honum ellefu skips- hafnir. I þessari kepni var hlut- skarpastur „Hilmir“ næstur „Egiil Skallagrimsson" og þá „Garðar“. Síðan var kept í stakkasundi. Sigurvegari varð Jóliann Guðmundsson af tog- aranum „Hilmir“. Seint um daginn var safnast saman á íþróttavellinum. Sýndi K. R. leikfimi karla og kvenna. Því næst fór fram reipdráttur milli sjómanna frá Reykjavík og Hafnarfirði. Voru það engin væskilmenni, er þarna áttust við. Var atgangur harður, en endaði með sigri Reykvíkinga. Loks keptu hafnfirskir og reyk- vískir sjómenn í knattspyrnu. Skoruðu Reykvíkingar 2 mörk, en Hafnfirðingar 1. Um kvöldið var lialdið lióf að Hótel Borg. Fór það fram með prýði. Margar ræður voru haldnar, en sungið og spilað milli þeirra. Að lokum var stig- in dans alllengi nætur. Engum skugga hrá á þenna fyrsta hátíðisdag íslenskra sjó- manna. Eigi hann á komandi timum marga sína líka, þá þari' ekki 'að efast um, að liagsmuna- málum sjómanna verður veitt meiri athygli en áður og þeirra störf metin að fullum verðleik- um. General Motors {<reiðir forstjór- um sínum hærri laun en nokkurt annað fjelag í. Bandaríkjunum. Stjórnarformaðurinn, Al'fred P. Sloan hafði síðasta ár 561.311 doll- ara en forstjórinn, Daninil William S. Knudsen 459.878 dollara. Allir hæstsettu starfsmenn jiessa i'yrir- tækrs hafa yfir 300,000 dollara árs- laun. Walther P. Crysler, æðsti maður Crysler-bifreiðafjelagsins liafði „ekki nema“ 200.000 dollara og Edsel Ford 137.564 dollara. Stál- kongur Bandaríkjanna, Charles M. Schap, forstjóri Betlehem Steel Works, var lengi hæstlaunaði fram- kvæmdarstjóri í Bandaríkjunum, með miljón doliara Iaun en fær nú 150.000.Alfred Smith, andstæðingur Boosevelts fær 43.000 dollara fyrir að stjórna stærstu byggingu lieims- ins, Empire State Building, sem undanfarin ár hefir verið kölluð „The Empty (tóma) State Building" en er nú bráðum útleigð. ir skilið fyrir að seuda meira en helming þátttakenda til ís- landsglímunnar. Hvað líðnr glímunni á Norð- urlandi, Vestfjörðum og Aust- fjörðum? Hversvegna sjest al- drei neinn þátttakandi þaðan? •S’. G.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.