Fálkinn - 03.09.1938, Blaðsíða 14
14
F Á L K I N N
Hovde ofnrstl stjórnar ársþlngi Hjálpræðishersins.
Ársl)ing HjálpræSishersins hefsl að
þessu sinni 5. september og stend-
ur átta daga og verða þá samkom-
ur daglega. Stjórnandi þingsins verS-
ur aS J^essu sinni O. Hovde, ofursti,
sem nú er aSalritari HjálpræSis-
hersins í Noregi. Hovde er Norð-
maSur, en hefir þó dvalið mikinn
hluta manndómsára sinna utan ætt-
jarðarinnar. Hann er fæddur í Viker-
sund austanfjalls í Noregi og ekki
langt frá Oslo og fyrsta starf hans
fyrir Hjálpræðisherinn var bundið
við þá bygð. Síðan dvaldist hann í
Englandi nokkur ár en fluttist þá
aftur til Noregs og starfaði með
ýmsum deildum Hjálpræðishersins
jiar. Næsl var hann kvaddur til
Finnlands og var þar á fimta ár,
sem næst æðsti yfirboðari Hersins
þar í landi, en hvarf svo aftur til
Noregs á siðastliðnu vori og tók við
aðalritarastarfi Hjálpræðishersins lsar
i Iandi.
Hovde ofursti hefir getið sjer mik-
inn orðstír, utan Hjálpræðishersins
og innan, sem ágætur stjórnandi og
mikill ræðumaður. Mun mörgum
verða ánægja að l)ví, að hlýða á
hann þau fáu kvöld, sem hanri dvel-
ur hjer. Viðstaðan verður nefnilega
ekki nema stutt, því að ofurstinn
er væntanlegur með ,,Lyru“ á mánu-
daginn — sama daginn sem ársþing-
ið hefst — og hverfur hjeðan aftur
með sama skipi, á fimtudagskvöld.
Frægustu
nálitandi Gyðingar.
Fjelag háskólanemenda í Chicago,
sem eru Gyðingar, hefir látið fara
fram atkvæðagreiðslu í flestum lörid-
um um hverjir 120 sjeu frægastir af
þeim Gyðingum, sem voru lifandi*
á nýársdag árið 5697 eftir tímatali
Gyðinga, en það var 26. sept 1936,
eftir okkar tímabili. En þessi nöfn
á að skrá í svonefndri Frægðarhöll
Gyðinga, til eftirbreytni fyrir þá,
sem yngri eru. Meðal jíeirra, sem
menn telja vist að hafi náð kosn-
ingu eru náttúrufræðingurinn frægi
Albert Einstein, höfundur viðmið-
unarkenningarlnnar, leikarinn Paul
Muni, Henry Morgénthau yngri, sem
er fjármálaráðherra í Bandaríkjunum
Louis Brandeis og Benjamín Card-
oso, sem báðir eru dómarar í hæsta-
rjetti Bandaríkjanna, Adolf Ochs,
blaðaútgefandi í New York, Percy
S. Strauss, fyrrum sendiherra Banda-
ríkjanna í Frakklandi, Meyer Dizen-
goff borgarstjóri í nýju Gyðinga-
borginni Tel Aviv við Miðjarðarhaf,
Leon Blum, fyrrum forsætisráðherra
Frakka, Maxim Litvinoff utanríkis-
málaráðherra Bússa, rithöfundarnir
Jacob de Ilaas, Leori Feuchtwanger,
Emil Ludwig, Arnold og Stefan
Zweig og tónskáldin O. Gabrielo-
witch, Jascha Heifetz, Maurice Ravel
og Oscar Strauss.
Fjelagið sem gekst fyrir atkvæða-
greiðslunni fjekk svar við jjriðja-
hverju brjefi er það seridi. Svör
lcomu úr öllum löndum sem sent
var til, nema frá Þýskalandi.
Á enskri rannsólcnarstofu hefir tek-
ist að búa lil rafmagnslampa, vatns-
kældan kvikasilfurslampa, sem er
aðeins örlílið stærri en eldspýta, en
framleiðir 3000 kerta birtu. Er það
sterkasta „vasaljós,“ sem menn
þekkja.
ÞJÓÐVERJAR FÁ EKKI HELIUM.
Þjóðverjar hafa farið lsess á leit
að fá keypt í Bandaríkjunum tíu
miljón rúmmetra af helium handa
loftskipinu, sem þeir hafa í smíðum
núna. En það hefir strandað á því
tvennu, að sjerfræðingar Bandaríkj-
anna hafa ráðið frá að selja svo
inikið af þessu dýrmæta lofti og svo
hinu, að Þjóðverjar hafa ekki viljað
skuldbinda sig til þess, að nota það
ekki til hernaðarþarfa. Stendur að
visu ennþá í samningajiófi um þetta,
en eins og nú horfir við, er ekki
búist við að Þjóðverjar fái þetta
óeldfima efni í nýja loftskipið sitt
og verði jiví að nota vatnsefni, þó
ilt sje, vegna brunaliættunnar.
Þorlákur 0. Johnsen
Aldartninning.
JARÐARFÖRIN FRÁ ÁSI.
Framh. af bls. 3.
gerði og sírá Friðrik Friðriks-
son, og töluðu þeir í þessari
röð. Milli ræðanna voru sungnir
sálmar. Aliar ræðurnar er
haldnar voru, bæði í Ási og í
kirkjunni voru lilýjar að hugg-
un og þrungnar af trúarkrafti
og trúaralvöru.
Það er talið að mannfjöld-
inn, sem fylgdi suður í kirkju-
garð liafi skift mörgum þús-
undum. Þegar komið var þang-
að spilaði Lúðrasveit Revkja-
vikur sorgarlag.
Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason
talar við gröfina.
Er kisturnar allar fjórar
liöfðu verið lagðar í söniu gröf
flutti eiginmaður Guðrúnar sál.
Sigurlrjörn Ástvaldur Gislason
cand. theol. ræðu. Dáðust allir
að karlmensku hans og trúar-
styrk, er liann lijelt ræðuna við
hina opnu gröf. Mun eldri of-
mælt, þó að sagt sje að hátíð-
leiki jarðarfararinnar hafi á
þessu augnabliki náð hámarki.
Með frú Guðrúnu Lárusdótt-
ur er i val linigin óvenju fjöl-
hæf, gáfuð, kraftmikil og kær-
leiksrík kona, sem öll þjóðin
stendur í þakkarskuld við, og
mun slrarð liennar iengi „opit
ok ófult standa“.
Síðastliðinn miðvikudag voru
lnindrað ár liðhr l'rá því hinn
merki verslunarfrömuður Þor-
lákur Ó. Johnsen fæddist. Hann
var fæddur á Breiðabólstað á
Skógarströnd, sonur liins þjöð-
kunna manns síra Ólafs Einars-
sonar. Ungur að aldri rjeðst
bann i utanför og dvaldi all
lengi í Englandi, þar sem hann
kyntist nýjum verslunarháttum
og vaknaði hjá honum við það
brennandi löngun tii þess að
bæta eittlivað úr því aumlega
verslunarástandi, er þá ríkti
hjer á landi. Versiun lands-
manna liafði að vísu verið gefin
frjáls 1854, en það var bún að-
eins að nafni til, því að fjötr-
um langvarandi áþjánar verður
ekki eytt nema á löngum tíma.
Hjer er ekki rúm til að ræða
um það nytjastarf, er Þorlákur
vann í þágu íslenskrar verslun-
ar, en verslunarsaga Islands
mun geyma nafn lians lengi og
það að verðieikum.
Þoriákur dó 25. júlí 1917. —
BRITANNIASTYTTAN
í BOULOIGNE,
sem reist var til minningar um land-
göngu fyrstu ensku hermannanna
|>ar, i heimsstyrjöldinni er nú full-
gerð. Afhjúpun líkneskisins var einn
liður hátíSahaldanna, sein fóru fram
meSan á heimsókn ensku konungs-
hjónanna í Frakklandi stóS.
Alll með Islenskum skrpnm1 »fi