Fálkinn - 31.12.1938, Blaðsíða 10
10
FÁLKINN
BÓKMENTAVERÐLAUN NÓBELS.
fyrir árið 1938 hlaut skáldkonau
Pearl S. Buck. Er hún kunn lijer á
landi fyrir söguna „Gott land,“
prjónatreyjA skreytt
HEKLUÐUM SNÚRUM.
Hjerna er ágæt aðferð til að gera
einlita sljettprjónaða treyju upplífg-
andi. Heklið snúru í ljósum lit og
saumið á treyjuna með óreglulegu
munstri og sjáið s'vo til hvort á-
rangurinn verður ekki góður.
Bodil Ipsen frjmsta leikkona i
Danmörku, hefir ekki leikið í kvik-
mynd siðan i „Det gyldne Smil“,
sem hefir verið mikið lesin. Sag-
an hefir verið kvikmynduð og hafði
Gamla Bió sýningu á henni fyrir
skömmu.
MÖNDLUGRÆNT BLÚSUVESTI
MEÐ GULUM REIMUM.
Skemtileg lítil blúsa með vestis-
sniði. Vasarnir eru reimaðir á og
sömuleiðis eru reimar i stað axla- og
ldiðarsauma.
þar sem hún ljek ásamt Carl Al-
strup. Sú mynd var tekin undir
stjórn Paul Fejos, og þó að þau
ðr kvikmpdalieimimiin.
Shirley fær tilsögn í söng.
Shirley Temple og Gloria Stuart.
Shirley Temple hefir nú leikið i
tveimur alvörumyndum: — „NVee
Willie Winkle“ og „Heidu“. En
allra siðasta myndin hennar er
gamanmynd og heitir: „Miss Amer-
ika.“ Það er fullyrt að þetta sje
besta söngvakvikmyndin, sem Shir-
ley Temple hefir sjest i. í mynd
þessari leikur hún útvarpsstjörnu
og leika þau Gloria Stuart og Rand-
olpli Scott móti henni. Efnið er
þetta i stuttu máli: Útvarpsfrömuð-
urinn Mr. Kent þarf að ná í barn
til að syngja í auglýsingasamkepni.
Eftir mikla leit finnur hann það
rjetta þar sem Rebekka á Sunny-
brook er. Hún hefir mist móður
sina og lifir aurnu lífi hjá konu-
lausum stjúpföður sinum, Harry
Kipper. Rebekka litla er dugleg
stúlka, sem mætir á útvarpinu al-
veg ókvíðin. En fyrir mistök er
henni vísað frá af einum af full-
trúum Mr. Kent. Þegar Kent heyrir
þetta, verður hann æfareiður, en
hættan er engin, þar sem utana-
skrift telpunnar er til.
En á meðan hefir stjúpfaðirinn
sent telpuna upp í sveit til frænku
sinnar, og telpan er mjög hrifin
af að vera þar. Dagurinn liður þar
i leik og söng, og þegar fulltrúi
Mr. Kent kemur þangað, er hún
nauðug að fara með honum, og
frænkan má ekki heyra það nefnt.
Eftir nokkurt þóf, með köflum all
hlægilegt, lætur Shirley þó tilleiðast
að fara. —
Ipsen og Alstrup leystu bæði hlut-
verk sín ágætlega af hendi, þá fekk
myndin ekki þær móttökur, sem
búist var við.
Nú hefir Norræna kvikmynda-
fjelagið aftur ráðið Bodil Ipsen. í
þetta sinn fær hún fjörugra hlut-
verk, saumastúlkuna Bolette í gam-
anleiknum „Brúðarför Bolettu". Er
myndin tekin eftir leik, er sýndur
var nýlega á leikhúsi i Khöfn og
samin er af Orla Bocli og Henrik
Malberg. Kvikmyndatökuna annaðist
Emanuel Gregers.
Leikurinn fer fram upp i sveit
og er um saumastúlkuna Bolette,
konu, sem liðið hefir skipbrot og
allir í hjeraðinu eru hræddir við
vcgna tungu hennar. Stórbændurnir
vilja losna við hana og reyna að
gifta hana utanhjeraðsmanni, hæg-
lætismanni, en þó gallagrip, sem
kallaður er „Hænsnasalinn“. Peter
Malberg leikur hann. Kvikmyn 1
þessi verður án efa mjög skemtileg,
og enginn þarf að efast um að Bodil
Ipsen kemur til að njóta sín vel i
þessari mynd. —
Mr. Itonald Colman í myndinni:
„Ef jeg væri konungur“.
Hin vinsæla ameriska kvikmynda-
hetja Ronald Colman leikur aðal-
hiutverkið í nýrri sögulegri Para-
mountkvikmynd, sem heitir: „Ef
jeg væri konungur“ (If I Were
King). Meðan á upptöku myndar-
innar stóð varð hann að hafa skegg.
í þeim atriðum, er lýsa liinu við-
burðaríka lífi hins franska föru-
manns, skáldsins Francois Willon,
þurfti hann einmitt að sýna sig með
skegg. Meðan verið var að taka
myndina fekk hann heimsókn af
einum vina sinna í New York, þekt-
um kvikmyndamanni, sem bauð
honum aftur heim til sin meðan
hann bjó i Hollywood.
Þegar nú Colman kom í heim-
boðið á tilsettum tíma, neitaði þjónn
New York mannsins að hleypa hon-
um inn, og það var vegna skeggs-
ins. Eftir nokkrar málalengingar
fekk Colman þó að koma inn, en
þjónninn fekk duglega ofanígjöf,
En sagan er ekki búin enn. Viku
sc-inna, þegar Colman kom aftur i
heimsókn, og nú ágætlega rakaður
og eins og nýr maður, var honum
neitað um inngöngu. Þjónninn sagði
glottandi að hann þekti Colman of
vel til þess að hægt væri að blekkja
sig. Siðan skelti hann hurðinni í
lás alveg við nefið á kvikmynda-
hetjunni. Colman fór þá í síma og
hringdi til vinar síns og sagðí sinar
farir ekki sljettar. Og var honum
nú hleypt inn. Hjer endar annar
þáttur o,g allsorglega, því að trúa
þjóninum var vikið frá. En sagan
endar þó ágætlega, því að þjónninn
er nú komi-nn til Colman, sem lengi
hafði leitað að dyggum þjóni, og
þykist nú loksins hafa fundið hann.
ANNABELLA í PARÍS.
Hin fræga leikkona Annabella er
nýkomin heim til Parísar frá Holly-
wood. Á myndinni horfir hún frá
liótelsvölunum yfir Signu borgina.
Hún virðist vera ánægð yfir því að
vera komin heim.