Fálkinn


Fálkinn - 01.09.1939, Page 2

Fálkinn - 01.09.1939, Page 2
2 F Á L K I N N GAMLA BIO Gamla Bíó sýnir nú á nœstunni Metro-Goldwyn-Meyer kvikmyndina Ástmey ræningjans. ASalhlutverkin Jeika Jeanette MacDonald, Netson Eddy og Walter Pidgeon. Jeanette er glæsileg söngkona, sem alstaðar hefir getið sjer frægð, hvar sem hún hefir sungið. Hún leikur aðalhlutverkið í þessari mynd, og töfrar alla með söng sínum. Myndin sýnir hið marglita líf frá miðri 19. öld, þegar gullgrafaratímabilið stóð sem hæst í Ameríku, þegar feikna- legir fólksflutningar áttu sjer stað um j)vera álfuna, frá austri til vest- urs. Lif þessa fólks er með sjer- kennilegum blæ og fjölbreytileikinn mætir því hvarvetna. — Ferða- mannahóparnir eru á leið til Kali- forníu — fyrirheitna landsins. I einum af þessum hópum er stúlkan með röddina fögru, sem syngur að lokinni dagsleið og töfrar samferða- fólkið, sem situr við tjöld sín og nýtur kvölddýrðarinnar. í hópnum er fólk af öllum sauðahúsum, hinn liúaði prestur Sienne, ræningjafor- inginn Ramarez og litli snáðinn Gringo, er varð eftirmaður hans. Indíánar, kúrekar og allskoar fólki ægir þarna saman í þjóðbúningum og sýnir kappreiðar og þjóðdansa. Stúlkan með fögru röddina kemst í lítið gullgrafaraþorp og þar rekur hún Polka-veitingahúsið. — Margir koma til hennar og reyna að vinna ástir hennar, en það verður sífeid sneypuför. — Ramarez yngri, ræn- ingjaforinginn, sem hafði verið henni samferða forðum daga, kemur einnig til hennar og hún töfrar hann með söng sínum. Æðsti maður þorpsins er einnig á biðilsbuxum og milli hans og ræningjaforingjans verður hörð barátta. í þeirri bar- áltu reynir mjög á heillyndi stúlk- unnar með fögru röddina og þá kynnumst við henni í nýju ljósi. Þetta er atburðarík, fræðandi og skemtileg mynd og er söngurinn laðandi og hrifandi. Ekkjan Sesselja tíuðmundsd. frá Hraunakróki varð90 ára 28. f.m. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Skúli Skúlason. Lúðvík Kristjánsson. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Aðalskrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Simi 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-0. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjötsgade 14. Blaðið kemur út hvern föstudag. Askriftarverð er kr. 1.50 á mán., kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millim. HERBERTSpren/. SkTadðaraþankar Fyrsti Vestur-íslendingadagur var haldinn á Þingvelli um leið og fimtugasti íslendingadagur var haldinn vestanhafs. Hálfa öld var heimaþjóðin að hugsa sig um, hvort hún ætti að taka undir kveðju að vestan. En nú tókst loksins að manna sig upp í þessa kurteisi og er þá senni- legt að nokkurt framhald verði á, og að framvegis inegi gera ráð fyrir, að frændum og vinum Vestanhafs verði helgaður einn dagur á ári i hinni önnum köfnu meðvitund heimaþjóðar- innar. Það er betra en ekki neitt. En þó getur íslensk þjóð ekki litið blygðunarlaust yfir hafið fyr en hún hefir gert betur. Það er gott að vísu, að minnast frænda erlendis einn dag á ári, en þeir eiga ekki að vera gleymdir hina 304 dagana. Með- vitundin um þá á að vera sí- vakandi í hug allrar þjóðarinn- ar, á sama hátt og móðirin, faðirinn, bróðirinn eða systir- in man ættingjann fyrir handan haf. — Þvi hefir oft verið hreyft, að þjóðin ætti að eiga sterkan fjelagsskap til þess að halda tengslunum óslitnum við ætt- ingjann erlendis. Það hefir jafn- vel verið reynt að halda uppi slikum fjelagsskap, en ráða- menn hans gátu ekki haldið honum Iifandi. Fjelagsskapur Vestur-íslendinga i Reykjavík mun lengstum hafa verið mjög atkvæðalítill og nánast til þess að gefa heimkomnum Vestur- íslendingum tækifæri til að hittast. En íslendingasambandið, fje- lagið, sem safnar öllum íslend- ingum, hvar sem þeir eru í heim- inum, saman til kynningar og starfs, er ókomið enn. Það hefði ekki verið fjarri lagi, að nota fyrsta Vestur-íslendingadaginn á Þingvöllum til þess að stofna þennan fjelagsskap, en annað- hvort hefir engum dottið það i hug, eða enginn liaft uppburði til að ympra á því í kuldanum og rokinu, sem var þennan dag. Hefði það verið stórum nýti- legra, en að klæða upp fjall- konur og miss Canada og U.S.A. og „stilla þeim út“ upp á fer- legum sykurkassa. — En nú mun vera orðin til föst „nefnd“ vegna undirbúnings Vestur-ís- lendingadagsins og má því vænta, að hún sjái sóma sinn i því, að hefjast handa um stofnun íslendingasambandsins i samráði við fulltrúa íslendinga vestan hafs og í Kaupmanna- höfn. Verkefni liess sambands eru stærri en svo, að rúm sje til að tæpa á þeim hjer. Þess gerist heldur ekki þörf, þvi að allir, sem vilja hugsa um þau mál- efni, finna sjálfir hver verkefn- in eru. I NÆSTA BLAÐI FÁLKANS: Grein um útilegur. — Tvær sögur. — Grein um Nuf- field lávarð. — Frjettamyndir. — Barnadálkur. — Skrítl- ur. — Litli og Stóri. — Sagnir af gömlum förukörlum, eftir Sigurð Þorsteinsson o. m. fl. ______________________________________________________i Best auglýsa í Fálkanum !S9B8iÍK Frú Marsibel Ólafsdóttir, tíorg- arnesi, verður 70 ára h. sept- ember. Eggert St. Melstað, stökkviliðs- stjóri og byggingarmeistari á Akureyri varð 60 ára 29. ágúst. NVJA BIO Um næstu lielgi sýnir Nýja Bíó myndina Victoría mikla Englands- drottning. í síðasta blaði var minst á leik- ara og efni myndarinnar. Um þessar mundir flýgur mörgum í hug nafn Victoríu drottningar, því að i stjórnartíð hennar jókst Brel- land stórlega að nýlendum og varð þá í raun og veru það heimsveldi, sem jiað er enn i dag.. Þessvegna er nafn Victoríu greipt gullnum stöf- um á söguspjöld Breta, og þessvegna kemur liún mörgum í liug nú, þeg- ar við Brellandi blasa jafn alvarlegir hlutir og eru á vörum allra um gjör- vallan heim. Hvað bíður ríki Vict- oríu drottningar? Því munu fáir geta svarað. Victoría var slíkur persónuleiki, að það er vel þess vert að kynna sjer hina merkilegu og fjölbreyti- legu ævi hennar, stjórnsemi liennar og stjórnvisku, einkalíf hennar og ástir, gleði og sorgir. í þessari mynd er reynt að túlka þetta á minnisstæð- an hátt, reynt að skilgreina skapþætti liennar og leiða hana stig af stigi fram fyrir sjónir vorar, alt frá þvi að hún varð drottning og til þess tíma að hún gat haldið 60 ára af- mæli sitt sem stjórnandi Englands. — Heimilislíf hennar er einnig greitt í sundur og þar kynnumst við henm á alt öðru sviði, en sem stjórnanda ríkisins, þar rætast fegurstu draum- ar hennar og í því riki unir hún sjer best, en þar kemur einnig sorg- in í skjáinn og veikir lund hennar. En hún er styrk og einbeitt og stend- ur eins og klettur í hafinu og ver sig fyrir aðsvífandi öldum. Stjórnartímabil Victoríu drottn- ingar í sögu Bretlands nær yfir fjölda mörg ár og er ærið viðburða- ríkt. Það er því mjög fróðlegt að sjá mynd þá, er Nýja Bíó sýnir nú um helgina, en um leið og hún er fræðandi er lhin jafnframt skemtileg og birtir manni einhverja dásamleg- ustu ástarsögu heimsins. Ólafur Einarsson vjelfræðinyur og skoðunarm. skipa og vjela, verður 50 ára h sept. }

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.