Fálkinn - 01.09.1939, Side 10
10
F Á L K I N N
Copyrighl P. I. B. Bo* 6 Copenhoq*n
Nr. 563 Övæntui' fengur!
S k r í 11 u r.
.... en þá sagði jeg við hann.
Annaðhvort tátgið þjer blýantana
yðar yfir pappírskörfunni, eða þjer
verðið að fá yðnr annan samverka-
mann.
Læknirinn: Jæja, vinur minn, þú
verður nú alveg að hætta að drekka.
Sjúklingurinn: En, herra læknir,
jeg smakka aldrei áfengi.
Læknirinn: Þá verður þú að hætta
við að reykja.
Sjúklingurinn: Já, en jeg reyki
aldrei.
Læknirinn: Þá veit jeg ekki hvern
fjandann jeg á að ráðleggja þjer,
fyrst ekki er hægt að láta þig hætta
við neitt.
Maðurinn: Er það mögulegt, ehi:-
an mín, að útiit sje fyrir að við eign-
umst bráðum erfingja? En jeg skil
það ekki aimennilega; jeg sem hefi
verið á stöðugu ferðalagi í heilt ár.
Konan: Já, en elsku vinur, þetta
átti að koma þjer alveg óvænt.
Hann: Ætlar þú ávalt að ve :a
mjer trú, ástin mín?
Hún: Trú eins og gullið.
Hann: Það er nú svo, en það hef-
ir nú aldrei verið mjer trútt, og
sjaidan unað lengi hjá rnjer.
— Nú hefirðu gleymi að fara i
nærskyrtuna þína, Jútius.
Kennarinn: Sjerhvert barn á að
eiska kennara sinn, og af hverju?
Siggi: Af því að skrifað stendur:
Elskið óvini yðar.
Móðirin: Hefir þú nú verið i
sunnudagaskólanum í dag, Bjössi?
Bjössi: Já, mamma.
Móðirin: Hvernig stendur á því að
það er slorlykt af höndunum á þjer?
Bjössi: Það kemur sjálfsagt til af
þvi, að jeg kom með sunnudags-
skólabiaðið heim, en á allri fyrstu
síðunni er sagan af Jónasi og hval-
fiskinum.
Eiginkonan: Manstu eftir því,
Björn, að við þessa myndastyttu
beiðst þú ávalt effir mjer, þegar við
vorum trúlofuð?
Eiginmaðurinn: Jú, jeg held nú
það. En sjerðu ekki að þarna stend-
ur nú annar heimskingi og biður.
Hreppstjórinn: Jeg hefi heyrt að
Jón á Holti hafi stolið frá þjer
svartri gimbur í haust. Ætlarðu ekki
að kæra hann?
Þórður gamli: Jú, það hef jeg nú
hugsað mjer, en ekki fyrr en skját-
an er orðin veturgömul.
VMCS/W
LE/&NMIRNIR
SVONA Á AÐ FLJETTA BELTI.
Þú færð þjer leðurreim, sem er Vs
Iengri, en þú ert digur um mittið.
Reimin á að vera 4 cm. á breidd og
áttu að skera hana niður í 10 ræmur
og á hver þeirra að vera 4 mm. breið.
Þú byrjar með því að fljetta rænm
1. — síðan ræmu 2, 3, 4 o. s. frv.
Hvernig á að fara að því að
fljetta getur þú best sjeð á númer 1.
Þegar þú hefir lokið við að fljetfa
beltið, þá saumarðu skinnpjötlu fyr-
ir endana sín hvoru megin, eins og
þú sjerð á nr. 2.
Að lokum seturðu spennuna á
(mynd 3) og til þess notarðu leð-
urpjötlu 12 cm. langa, 4 cm. breiða
(mynd 4). Þegar þú hefir sett hana
á. ertu búinn með beltið.
BLÓMAPOTTAHLAUP.
Til þess að maður geti tekið þátt
í þessu skemtilega kapphlaupi verð-
ur maður að hafa blómapotta og
er mjóum kaðalspotta stungið i gegn
um gatið á botninum og hnútur
settur á endann, svo að kaðallinn
dragist ekki upp úr. Hver þátttak-
andi verður að hafa 2 blómapotta
Meö íIugujEl
aö næturlagi.
(Framhaldssaga með myndum).
34) „Heyrið þjer ungi maður, hvað
hefir komið fyrir,“ spurði Hinge for-
ingi, þegar hann með mestu erfiðis-
munum hafði skriðið inn í flugvjel
Jóns, þar sem hann fann fjórk menn
liggjandi á gólfinu og dreng við
stýrið. Hann fjekk ekkert svar. Jón
fjell í yfirlið.
35) Hinge foringi gat með aðstoð
leitarvjelarinnar lent eftir nokkra
stund á flugvellinum i Croýdon. Það
var undir eins ekið með Jón og
Mick á næsta spitala, en Jögreglan
tók Zagoczy og Jönsson fasta, því að
hún hafði lengi haldið spúrn fyrir
um þá.
36) Nokkrum dögum síðar heim-
sótti Jón og faðir hans Mick á spít-
alanum. Hann var nú kominn úr
allri hættu, og læknirinn gaf vomr
um, að hann mundi ná sjer mjög
fljótt aftur. Þegar Jón og faðir hans
gengu út úr sjúkrastofunni, hrópaði
Mick: „Sjáumst i veislunni!“
með kaðli í —■ og er um að gera að
hlaupa svo liart á pottunum, eins
og mögulegt er.