Fálkinn


Fálkinn - 01.09.1939, Blaðsíða 11

Fálkinn - 01.09.1939, Blaðsíða 11
F Á L K I N N 11 Barnasundbolur með treyju. Efni: 150 gr. gult garn, 10 gr. grænt og 10 gr. ryðrautt. 2 prjónar nr. 2 og 5 sokkaprjónar. PRJÓNAAÐFERÐ: Lykkjufjöldinn, sem fitjaður er upp, verður að vera deilanlegur með 8 og því næst er 5 1. bætt við. Prjónið sýnishorn, t. d. 21 1. og æf- ið yður á munstrinu. 1. prj. 5 rj. + 2 br., 0 rj. + og á- fram frá + til +. 2. prj. + 1 rj., 4 br.. 1 rj., 2 br„ + áfram frá + til + og endið á 1 rj., 4 br. 3.—4. prj. Sljett prjón (annar prj. rjettur, hinn brugð- inn). 5. prj. 1 rj., 2 br., + 6 rj., 2 br., + áfram frá + til + og endið á 2. rj. 6. prj. 1 br., + 1 rj., 2 br., 1 rj., 4 br., + áfram l'rá + til +. og endið með 1 rj., 2 br., 1. rj. 7.—8. prj. Sljett prjón. Sundbolsf ramstykki: Byrjið að neðan og fitjið 17 1. upp og prjónið eftir áðurnefndi að- ferð. Þegar búið er að prjóna 4 prjóna er aukið út beggja megin eins og hjer segir: Fyrst 1 1. á fimta hverjum prjóni 2 sinnum, svo 1 1. á þriðja hverjum prjóni 5 sinnum, 2 1. á þriðja hverj- um prjóni 1 sinni, 3 1. á þriðja hverj- um prjóni 3 sinnum, 4 1. á þriðja hverjum prjóni 2 sinnum og eiga þá að vera 09 1. á prjóninum. Þegar stykkið er orðið 22. cm. eru prjónaðir 10 prjónar með einfaldri brugðningu (1 rj. 1 br.). Á eftir brugðningunni eru prjónaðar 3 1. rj. í hverri hlið en hinar með sljettu prjóni. Úrtökur byrja strax eftir þess- ar fyrstu 3 rj. 1. þannig: Fyrst 1. I. á hverjum prjóni næstu 8 prjóna, svo á öðrurn hvorum prjóni næstu 24 prjóna. Þegar þannig er búið að taka úr 20 1. í hvorri hlið, eru prjón- aðir 10 prjónar garðaprjón og svo eru feldar af 15 1. í miðjunni, en haldið áfram og prjónaðir hlírar úr þessum 7 1. hvoru megin. Þeir eiga að vera 19 cm. langir og með hnappagati á endanum. Bakið er prjónað eins og framstykkið, l>angað til það er 22 cm. Þá eru prjónaðir 10 prjónar einföld bruðn- ing og svo felt af. Samsetningin: Saumið bolinn saman. Takið tykkjur upp meðfram hverri skálm að neðan og notið til þess sokka- prjónana. Prjónið 1 umferð rj., 1 umf. br., 6 umferðir í alt. Feílið laust af. Saumið 2 hnappa á bakið. Vinstri treyjuboðangur: Fitjið 40 1. upp og prjónið 6 prj. garðaprjón, því næst 7 1. með aðal- munstrinu, 16 1. sljett prjón (vas- inn), 14 1. munstrið og 3 1. garða- prjón. Það eru prjónaðir 32 prjón- ar, og á 4 síðustu af þessum 32 prjón- um eru vasalykkjurnar prjónaðar með garðaprjóni, og svo eru þessar 16 vasalykkjur feldar af. Fitjið 16 1. upp á aukaprjón og prjónið sjálfan vasann, 30 prjóna. Prjónið hann síðan fastan við þess- ar 16 1. sem feldar voru af. Prjónið áfram og hafið 3 rj. 1. sem kant. Þeg- ar boðangurinn er orðinn 16 cm. er byrjað að mynda handveginn. Það eru feldar af 2 sinnum 2 1. á öðr- um hvorum prjóni og 2 sinnum 1 1. ó öðrum hvorum prjóni. Þegar boð- angurinn er orðinn 23 cm. eru 10 1. feldar af í einu fyrir hálsmálinu, og því næst 1 1. á öðrum hvorum prjóni þangað til eftir eru 18 1. Þegar boð- angurinn er orðinn 26 cm. er felt af i tvennu lagi. Hægri boðangur er prjónaður eins, með þeim mun, sem altaf er á hægri og vinstri. Bakið: Fitjið 68 1. upp og prjónið 6 prj. garðaprjón. Prjónið áfram með að- álmunstrinu. Þegar bakið er orðið 16 cm. er handvegurinn myndaður með þessum úrtökum: Tvisvar sinn um feldar af 2 1. í hvorri hlið og tvisvar 1 1. í hvorri hlið. Þegar hand- vegurinn er orðinn 10 cm. eru feld- ar af 18 1. hvoru megin í tvennu lagi, en hólsmálslykkjurnar eru feld- ar af i einu lagi. Ermarnar: Fitjið 48 1. upp og prjónið 6 pri. garðaprjón. Prjónið því næst aðal- munstrið og aukið 1 1. i hvoru megin á fjórða hverjum prjóni, fimm sinn- um. Þegar ermin er orðin 6 cm. er tekið úr heggja megin, fyrst 6 sinn- um 2 1. svo 4 sinnum 3 1. og afgang- urinn í einu lagi. Kraginn: Saumið treyjuna saman á öxlunum og takið upp lykkjur meðfram háls- málinu. Prjónið aðalmunstið með 3 1. rj. hvoru megin. Á þriðja hverj- um prjóni eru 4 1. auknar í. Þegar kraginn er orðinn 6 cm. er endað með 4 garðaprjónum. Því næst er treyjan saumuð saman. ísaumurinn: Vasarnir og kraginn er ísaumað með uppdrættinum, sem sýndur er á myndinni V. Blómin eru saumuð með löngum rauðum keðjusporum. Legg- irnir, blöðin og miðja blómanna er saumað með grænum kontursting. BARNAKJÓLL. Þegar börnin eru búin að leika sjer allan daginn í ullarfötum er mjög þægilegt að geta klætt þau í eitthvað ljett. Hjerna sjest mjög lient- ugur kjóll úr rauð- og bláköflóttu bómullarefni. Á síðastliðnum þrjátíu árum hefir sjórinn milli Noregs og Svalbarða hitnað um þrjú stig og loftslagið í Norður-Noregi verið stórum lilýrra en óður. Og meðalhitinn á Svalbarða var 9 stigum hærri órin 1931—38 en á árunum 1911—20. Nú er búist við að hafið og veðráttan fari kólnandi aftur á næsta áratug, en þó ekki fyr en yfirstandandi ár er liðið. Ameríkumenn eru frægir að end- emum hvað veðmál snertir, en nýj- asta veðmálssóttin, sem tekið hefir ameríska stúdenta, tekur þó út yfh- allan þjófabálk. Þeir veðja um, hver geti jetið flesta gullfiska — lifandi. Methafinn var þegar síðast frjettist Donald Mulcahy stúdent frá Boslon, sem gleypti 29 gullfiska, en næstur honum var stúdent frá Pennsylvanía háskólanum, sem innbyrti 25. Nú hefir dýraverndunarfjelagið tekið i taumana, svo að líklega verður Mul- cahy methafi að þessari ógeðslegu iþrótt til eilífðarnóns.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.