Fréttablaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI ÞRIÐJUDAGUR 29. september 2009 — 230. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG KOJAK BARPAS Kennir eina elstu bar- dagaíþrótt í heimi • heilsa Í MIÐJU BLAÐSINS Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Þetta er ein besta leiðin til að kom-ast í feiknaform,“ segir einkaþjálf-arinn Kojak Barpas um bardaga-íþróttina thai-boxing, sem hann hefur kennt hérlendis um nokkurra ára skeið, meðal annars í Baðhús-inu. Kojak er breskur Kýpurbúi sem kynntist thai-boxing á unga aldri á Englandi. „Þá var ég sextán ára og hafði æft kickboxing þer t sérstakt tré þar í landi gefur af sér. Að svo búnu veltu þeir klístr-uðum útlimunum upp úr glerbrot-um og héldu út á stríðsvöllinn. Til-urð þessarar íþróttar er því blóði drifin, en hún er auðvitað alls ekki þannig í dag,“ segir hann. Kojak tók að leggja stund á thai-boxing og var innan skamms farinað æfa af k i En hvað varð til að þessi afreks-maður flutti svo til Íslands? „Ástæðan var kona,“ segir hann og hlær við. „Er það ekki ein algeng-asta ástæða þess að útlendingar setjast hér að?“ spyr Kojak, sem hefur síðan 2005 verið búsettur álandinu og líkar l Bardagaíþrótt sem ásér blóði drifna söguKojak Barpas hefur starfað sem einkaþjálfari á Íslandi síðan árið 2006. Nú kennir hann Íslendingum allt um thai-boxing, eina elstu bardagaíþrótt í heimi, sem að hans sögn á sér ansi blóðuga sögu. Kojak er þessa dagana að vinna að gerð myndbands um thai-boxing. Á heimasíðunni kojak.is er hægt að afla sér nánari upplýs- inga um það og annað sem hann er að fást við. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM PAPRIKA, grænkál, spergilkál, hvítkál, blómkál og rósakál, kíví og allir sítrusávextir eru góðir C-vítamíngjafar, en C-vítamín þarf líkaminn meðal annars við ýmis efnahvörf. Vægur skortur á C- vítamíni getur lýst sér í þreytu og blóðleysi. Ertu með eitthvað gott á prjónunum? Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild Rauða krossins prjóna og sauma ungbarnaföt fyrir börn í neyð. Hópurinn, sem kallast Föt sem framlag , mun hittast næst og prjóna í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð, miðvikudaginn 30.september kl. 16-18. Á staðnum verða prjónar, garn og gott fólk sem hittist reglulega og lætur gott af sér leiða. Velkomið er að taka með sér eigið prjónadót. Þeir sem vilja gefa garn í verkefnið vinsamlega hafið samband. Kaffi á könn- unni og með því. Allar nánari upplýsingar í síma 554 6626 . Bjó til tölvu- sálfræðing Fjóla Dögg Helgadóttir hlaut virt verðlaun í sálfræði. TÍMAMÓT 16 verndar viðkvæma húð Leynist þvottavél frá í þínum pakka? SVAVAR KNÚTUR KRISTINSSON Líkt við Jack Black Ekki óalgengt að vera líkt við fræga menn FÓLK 20 Fer eigin leiðir Hugleikur Dagsson stofnar eigin bókaforlag. FÓLK 26 FÓLK Aldrei hafa fleiri kisur komið í Kattholt sem Kattavina- félag Íslands rekur. Að sögn Sig- ríðar Heiðberg, formanns félags- ins, er hálfgert ófremdarástand í Kattholti og allt útlit fyrir að fjölda katta verði lógað ef ekkert verður að gert. Um 160 kettir eru þar nú. „Svo veikist taugakerfið hjá köttunum þegar það er svona mikið álag, þeir fá kvef og við getum ekkert gert í því.“ - fgg / sjá síðu 19 Sigríður Heiðberg í Kattholti: Útlit fyrir að fjölda katta verði lógað FÓLK Fjölskyldumyndin Algjör Sveppi og leitin að Villa sló í gegn í kvikmyndahúsum borgar- innar um helgina. Að sögn Alfreðs Ásbergs Árnasonar, framkvæmda stjóra Sambíóanna, náði myndin þriðju bestu frum- sýningarhelginni í íslenskri kvik- myndasögu en alls sáu 8.500 manns Sveppa. Aðeins Mýrin og Stella í framboði hafa fengið fleiri áhorfendur sína fyrstu helgi í sýningu. Framar öllum vonum, segir Sveppi sem er þakklátur. - fgg / sjá síðu 26 8.500 gestir á mynd Sveppa: Barnamynd í sögubækurnar Ofbeldisvæðingin „Hjá bifreiðastjóranum fannst ná- kvæmt yfirlit yfir húsin í götunni, fjarvistir og vinnutíma íbúa,“ skrifar Jónína Michaelsdóttir. Í DAG 14 SJÁVARÚTVEGUR Yfirskuldsetningu sjávarútvegsfyrirtækja má að stór- um hluta rekja til annars en rekst- urs fyrirtækjanna. Nálægt helm- ingur skulda sjávarútvegsins er til kominn vegna hlutabréfakaupa, afleiðusamninga og skuldsettra yfirtöku fyrirtækja. Þetta kom fram í máli Ásmundar Stefánssonar, bankastjóra Lands- bankans (NBI), á aðalfundi Sam- taka fiskvinnslustöðva. Um helmingur íslenskra sjávarútvegs- fyrirtækja er viðskiptavinir bank- ans og því eru tölur NBI mark- tækar fyrir stöðuna í íslenskum sjávarútvegi í heild, að hans mati. Þegar ástæður yfirskuldsetning- ar fyrirtækjanna eru skoðaðar eru 54 prósent skulda þeirra tilkomin vegna kaupa á skipum og kvóta. 28 prósent eru tilkomin vegna hluta- bréfakaupa og fimmtán prósent vegna afleiðusamninga. Skuld- settar yfirtökur skýra þrjú prósent skuldanna. „Það sem er áhugavert er að kaup á skipum og kvóta eru aðeins ástæðan fyrir um helmingi yfirskuldsetningarinnar,“ sagði Ásmundur. Með öðrum orðum eigi um helmingur skuldsetningar- innar rætur að rekja til ákvarðana sem tengist ekki rekstri fyrirtækj- anna. Sjö af hverjum tíu fyrirtækjum standa ágætlega þó að mörg þurfi tímabundna aðstoð. Eftir stendur að eitt af hverjum tíu fyrirtækjum mun vart starfa undir óbreyttu eignarhaldi. Ásmundur sagði að staða fyrirtækja í vinnslu væri hvað best en erfiðust hjá þeim sem rækju minnstu bátana, og þá vegna kvótakaupa. Hann telur það liggja fyrir eftir um tvö ár hvernig spilist úr skuldavanda fyrirtækjanna. Heildarskuldir sjávarútvegsins voru 550 milljarðar í júlí og er talið að skuldir fyrirtækjanna hafi tvö- faldast vegna veikingar krónunnar á síðustu misserum. - shá Gróðabrask ástæða skulda í sjávarútvegi Skuldastaða sjávarútvegsfyrirtækja er að stórum hluta tilkomin vegna lántöku sem kom rekstri þeirra lítið við. Staða sjávarútvegsins er góð heilt yfir. Eitt af hverjum tíu fyrirtækjum er í mjög erfiðri stöðu og þá oft vegna kvótakaupa. BJART AUSTANLANDS Í dag verða vestan eða suðvestan 5-10 m/s. Dálítil rigning eða slydda NV- og V-til og stöku él norðanlands síðdegis. Hiti víðast 2-10 stig að deginum til, mildast SV-lands. VEÐUR 4 6 4 4 7 8 Gullskórinn kemur síðar Atli Viðar Björnsson rétt missti af marka- kóngstitlinum. ÍÞRÓTTIR 22 HEILSA Meirihluti Íslendinga á aldrinum 18 til 79 ára telur að hann þurfi að létta sig. Tæplega 43 prósent fólks eru ósátt við líkams- þyngd sína og þá heldur fleiri konur en karlar. Þetta er á meðal niðurstaðna úr rannsókn Ernu Matthíasdóttur sem hún kynnti í gær á fundi um líkamsþyngd og holdafar fullorðinna Íslendinga. Á fundinum kom fram að árið 1990 voru rúm sjö prósent karla of feit og um 9,5 prósent kvenna. Árið 2007 taldi hins vegar fimmti hver Íslendingur sig vera of feitan og stór hluti yfir kjörþyngd. Minni hreyfing og óhollt matar- æði er meðal þess sem þyrfti að breyta hjá þjóðinni, segja sérfræð- ingar Lýðheilsustöðvar. Of mikil áhersla sé lögð á þyngd í umræðu um heilsufar, á kostnað almenns heilbrigðis. Áhersla á þyngd leiði til þess að fleiri fari í megrun, en megrun skili sér ekki í bættu heilsufari nema síður sé. - sbt / sjá síðu 4 Fjöldi of feitra Íslendinga hefur ríflega tvöfaldast á sautján árum: Fimmti hver Íslendingur of feitur KISUR SEM VANTAR HEIMILI Sigríður Heiðberg segir að 160 kettir dvelji nú í Kattholti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MALBIKAÐ Í MYRKRINU Starfsmenn Loftorku unnu við lagfæringar á Miklubrautinni í gær þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá. Í nógu var að snúast enda mikið verk að dytta að fjölförnustu götu landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.