Fréttablaðið - 29.09.2009, Side 2

Fréttablaðið - 29.09.2009, Side 2
2 29. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR Sigurður, ætlarðu að leik-stýra fluginu? „Nei, ég mun ekki leikstýra fluginu. Enda ekkert að leika sér með.“ Sigurður Hrannar Hjaltason hefur getið sér gott orð sem leikari en ætlar nú að ljúka flugumferðarstjórnarnámi. Hann hefur sagt að reynsla hans af leiklist muni hjálpa til við að þola álagið við flugumferðarstjórnina. DÓMSMÁL Jónas Ingi Ragnarsson og Tindur Jónsson voru í gær í Héraðs- dómi Reykjaness dæmdir í tíu ára og átta ára fangelsi fyrir að hafa staðið saman að framleiðslu amfetamíns í Hafnarfirði. Jónas Ingi var jafn- framt dæmdur fyrir vörslu á ríflega átján kílóum af kannabis og tæp- lega 700 grömmum af amfetamíni. Hann var dæmdur í tíu ára fangelsi en Tindur í átta ára fangelsi. Báðum dómunum verður áfrýjað. Lögregla hafði fylgst með mönn- unum tveimur um hríð, áður en þeir voru handteknir, á grundvelli upplýsinga sem henni höfðu bor- ist. Um miðjan október á síðasta ári voru mennirnir svo handteknir, Jónas Ingi í verksmiðjuhúsnæðinu í Hafnar firði en Tindur skömmu síðar skammt frá heimili sínu. Í húsnæð- inu var afar fullkominn búnaður og efnaframleiðsla í gangi. Þar fund- ust rúm 38 kíló af efninu P-2-NP og rúmlega 3,5 lítrar af P-2-P. Við greiningu þessara efna kom fram að úr þeim hefði mátt framleiða fjórtán kíló af hreinu amfetamíni sem hefði gefið 353 kíló eftir íblöndun í sölu á götunni. Einnig hefði mátt fram- leiða úr þeim metamfetamín. Jónas Ingi neitaði því að til hefði staðið að framleiða amfetamín eða metamfetamín. Þarna hefði átt að framleiða eldvarnarefni. Tindur kvaðst hafa aðstoðað Jónas Inga við framleiðslu eldvarnarefnisins. Hefðu þeir talið að um „ábatasama framleiðslu gæti orðið að ræða ef vel tækist til“. Hefði hann talið verkefn- ið svo vænlegt til árangurs að hann hefði tekið þátt í frumkvöðlakeppni hjá Innovit, nýsköpunar- og frum- kvöðlasetri. Þáttur hans hefði verið að aðstoða Jónas Inga við fram- leiðslu efnanna enda hefði honum sem efnafræðinema fundist það ögrandi verkefni. Lögreglumenn sem fluttu Jónas Inga á lögreglustöðina við Hverfis- götu eftir að hann hafði verið hand- tekinn í Hafnarfirði kváðu hann hafa farið að tala um málið að fyrra bragði og sagst hafa verið tekinn „með höndina í kökukrúsinni“ og væri nú á leiðinni „austur“ í lang- an tíma. Brot mannanna er stórfellt og verður að teljast enn alvarlegra en innflutningur eða varsla fíkniefna, segir í dómi héraðsdóms. Þá hafi ásetningur þeirra verið einbeittu og þeir eigi sér engar málsbætur. jss@frettabladid.is Amfetamínmenn fengu tíu og átta ár Jónas Ingi Ragnarsson var dæmdur í tíu ára fangelsi í gær og Tindur Jónsson í átta ára fangelsi. Dómana fengu þeir fyrir framleiðslu á amfetamíni, sem hefði getað orðið yfir þrjú hundruð kíló, komið á götuna, svo og vörslu fíkniefna. JÓNAS INGI RAGNARSSON 9. nóvember 2004 Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot, brot gegn lífi og líkama og ósæmilega meðferð á líki. (Líkfundarmálið í Neskaupstað.) 28. september 2009 Tíu ára fang- elsi fyrir framleiðslu á miklu magni af amfetamíni, svo og vörslu á átján kílóum af kannabis og um 700 grömmum af amfetamíni. TINDUR JÓNSSON 17. maí 2004 Þriggja mánaða fang- elsi, skilorðsbundið, fyrir eignaspjöll og líkamsárásir. 12. apríl 2006 Sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, fjórar líkamsárásir, brot á vopnalögum og fíkniefnabrot. 6. janúar 2009 Sektargreiðsla og svipting ökuréttinda. 28. september 2009 Átta ára fang- elsi fyrir framleiðslu á miklu magni af amfetamíni. SAKAFERILL TVÍMENNINGANNA AMFETAMÍNMENNIRNIR Jónas Ingi Ragnarsson og Tindur Jónsson á leið í dóms- sal undir eftirliti lögreglumanns. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Konan sem handtekin var í Keflavík á sunnudag fyrir að stinga fimm ára stúlku í brjóstið hefur játað brotið. Hún var hvorki undir áhrifum áfengis né vímu- efna þegar árásin var gerð, sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins. Henni hefur verið gert að gangast undir geðrannsókn. Stúlkan sem ráðist var á er á batavegi en er enn á Barnaspítala Hringsins. Litlu mátti muna að verr færi fyrir henni, en hnífur- inn var einungis nokkrum milli- metrum frá því að fara í hjarta hennar. Konan var í gær úrskurðuð í fimm daga gæsluvarðhald á grund- velli rannsóknarhagsmuna. Hún kærði ekki úrskurðinn til Hæsta- réttar. Konan, sem er 22 ára gamall íslenskur ríkisborgari, bankaði á útidyrnar á heimili stúlkunnar við Suðurgötu í Keflavík á hádegi á sunnudag, og stakk stúlkuna síðan í brjóstið með stórum eldhús- hníf þegar hún kom til dyra. Ellefu ára systir stúlkunnar varð vitni að árásinni. Leiddar hafa verið getur að því að konan hafi með árásinni viljað hefna sín á foreldrum stúlkunnar, en þeir höfðu kært hana fyrir skemmdarverk og hótanir. Að því er fram kom í fréttum RÚV í gær hefur konan áður hlotið dóm fyrir líkamsárás og hafa barnaverndaryfirvöld fylgst með henni lengi. - sh Fimm ára stúlka sem stungin var í brjóstið á sunnudag er á batavegi: Árásarkonan í Keflavík var allsgáð AF VETTVANGI Konan bankaði upp á í þessu húsi og stakk stúlkuna í brjóstið þegar hún kom til dyra. Hún var hand- tekin skömmu síðar á heimili sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM STÓRIÐJA Rannsóknir á fjárhags- legri hagkvæmni álvers á Bakka halda áfram þó að ríkisstjórnin hafi ákveðið að framlengja ekki sérstaka viljayfirlýsingu þar um. Tómas Már Sigurðsson, for- stjóri Alcoa á Íslandi, segir verk- efninu haldið áfram með orku- fyrirtækjunum og sveitarstjórn Norðurþings. Það snýst nú um hið sameiginlega mat á umhverfis- áhrifum sem umhverfisráðherra ákvað í fyrrasumar. Tillögu að matsáætlun var skilað til Skipu- lagsstofnunar í síðustu viku og gangi allt að óskum býst Tómas við að niðurstaða stofnunarinnar liggi fyrir næsta vor. Aðspurður kveðst Tómas ekki vilja tjá sig um hvort hann telji líkur á að álver rísi á Bakka á meðan VG fái einhverju um ráðið. Hann tjái sig ekki um pólitík. Hins vegar segir hann álver Alcoa í Fjarðabyggð hafa haft góð áhrif á byggðirnar og afkomu íbúa. Sér- kennilegt sé ef stjórnvöld vilji ekki sporna við fólksflótta úr Þingeyjar- sýslum með því að nýta þau tæki- færi sem bjóðist. Að sögn Tómasar hefur Alcoa lagt meira en milljarð króna til Bakkaverkefnisins. Heildarkostn- aðurinn sé hins vegar ótalinn en íslenskir vísindamenn hafi átt í margvíslegu og umfangsmiklu samstarfi við vísindamenn Alcoa í útlöndum um þróun tækni til að knýja álver með jarðvarmaorku. - bþs Forstjóri Alcoa lýsir vonbrigðum með að stjórnvöld framlengi ekki viljayfirlýsingu: Halda samt áfram að meta Bakka TÓMAS MÁR SIGURÐSSON Forstjóri Alcoa á Íslandi segir fyrirtækið ætla að halda áfram rannsóknum á fjárhagslegri hagkvæmni álvers á Bakka. BANDARÍKIN Sheila Blair, yfir- maður tryggingarsjóðs inni- stæðueigenda í Bandaríkjunum, hefur viðrað hugmyndir um að bankar verði skikkaðir til að setja þak á kostnað viðskiptavina vegna óheimils yfirdráttar (FIT- kostnað). Að sögn bandaríska dagblaðs- ins USA Today hefur bandaríski seðlabankinn í hyggju að setja fjármálafyrirtækjum nýjar regl- ur um innheimtuna. Það hefur sömuleiðis eftir fjármálasér- fræðingum ytra að bankar hafi fram til þessa haft góðar tekjur af innheimtunni. Ætla megi að tekjur bankanna á þessu ári af kostnaði vegna óheimils yfirdráttar nemi 38,5 milljörðum dala, jafnvirði 4.800 milljarða króna. Það er tæp- lega tvöfalt meira en Banda- ríkjamenn greiða fyrir vanskil á kreditkortareikningum. - jab Bankar hagnast á FIT-kostnaði: Bandaríkjamenn vilja þak á gjöld SVÍÞJÓÐ, AP Lögreglan í Serbíu hafði fengið veður af áformum um ránið mikla í Stokkhólmi í síðustu viku og segist hafa látið sænsku lögregluna vita fyrir mánuði, bæði um nöfn ræn- ingjanna og ránsstaðinn. „Við létum þeim allt í té sem hefði þurft til að koma í veg fyrir ránið,“ hefur sænska dag- blaðið Aftonbladet eftir Milorad Veljovic, lögreglustjóra í Serbíu. „Við gerðum virkilega allt sem í okkar valdi stóð, nema að stöðva sjálfir ránið.“ Aftonbladet segir sænska lög- reglan að frásögn serbnesku lög- reglunnar standist ekki að öllu leyti. Sex hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna ránsins. - gb Þyrluránið í Svíþjóð: Sex hafa verið handteknir ÞYRLAN SKILIN EFTIR Einn ræningjanna hafði verið í sænskum þyrluskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EFNAHAGSMÁL Íslendingar eru í betri stöðu en Írar til að vinna sig fljótt út úr kreppunni. Þetta er mat sérfræðinga Deutsche Bank, sem fram kemur í minnisblaði frá bankanum um kreppuna. Að mati sérfræðinganna getur fljótandi gengi krónunnar gagn- ast Íslendingum við endurreisn- ina. Vegna þess að samkeppnis- hæfni landsins hafi aukist með gengishruni krónunnar eigi Íslendingar möguleika á að vinna sig út úr kreppunni á tveimur árum. Hins vegar séu Írar fastir með evruna og geti því ekki fellt gengi gjaldmiðilsins eins og margir telja að þurfi. - sh Mat Deutsche Bank: Krónan hjálpar við endurreisn LÖGREGLUMÁL Öryggisvörður hjá Securitas, sem fenginn var til að vakta hús forstjóra nokkurs sem óttaðist skemmdarverk, varð uppvís að því að hafa hótað og áreitt forstjórann að nóttu til, á meðan hann vaktaði hús hans í bíl fyrir utan. Málið er nú í rannsókn hjá lögreglu. Þetta kom fram í Kastljósi í gær. Í umfjölluninni kom fram að símskilaboð sem forstjóranum bárust hefðu verið rakin til síma sem týnst hefði í verslun 10-11 og tölvu úr sömu verslun. Maður- inn starfaði einnig í versluninni. Hann er pólskur og eftirlýstur þar ytra fyrir stórfelld fjársvik. - sh Öryggisvörður Securitas: Hótaði kúnna um miðja nótt Lét 13 ára son sinn keyra Lögregla á Selfossi stöðvaði í fyrradag þrettán ára dreng undir stýri bifreiðar. Faðir hans var með í bílnum og kom í ljós að sá hafði leyft stráknum að spreyta sig á akstrinum. Faðirinn var kærður fyrir vikið. LÖGREGLUFRÉTTIR Eftirlit árangursríkt Í kjölfar skyndiskoðana varðskipsins Ægis á fiskimiðunum við landið í sumar hafa verið gefnar út fjórtán kærur á skipstjóra og 28 skipstjórar verið áminntir, að því er fram kemur í frétt á vef Landhelgisgæslunnar. Á tímabilinu frá 1. júní til 18. september var varðskipið gert út í 57 daga og fór til eftirlits í 87 skip og báta. LANDHELGISGÆSLAN SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.