Fréttablaðið - 29.09.2009, Side 6

Fréttablaðið - 29.09.2009, Side 6
6 29. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR VIÐSKIPTI Íslandsbanki ætlar að bjóða viðskiptavinum sínum að breyta gengistryggðum húsnæðis- lánum yfir í óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Byrjað verður að taka við umsóknum eftir mánuð. Við breytinguna er miðað við að færa höfuðstól lánanna þar til septem ber í fyrra. Gert er ráð fyrir að höfuðstóll þeirra geti lækkað um allt að 25 prósent. Í boði verða tvenns konar kjör fyrstu þrjú árin: 7,5 prósenta breytilegir vextir eða fastir níu prósenta vextir. Viðskiptavinir geta greitt lán sín upp innan þessara þriggja ára án uppgreiðslugjalds ef um lán á breytilegum kjörum er að ræða eða endur fjármagnað að þremur árum loknum. Breytingarnar eru í undirbún- ingi innan bankans. Gert er ráð fyrir að þeim ljúki í byrjun nóvem- ber. Una Steinsdóttir, framkvæmda- stjóri viðskiptabankasviðs Íslands- banka, segir þetta einn þeirra val- möguleika sem séu í skoðun innan bankans. „Við höfum verið í góðu sambandi við viðskiptavini okkar. Við höfum hug á því að bjóða upp á þetta samhliða þeim lausnum sem við höfum verið að vinna náið með stjórnvöldum og kynnt verður í þessari viku”. - jab Tölvuviðgerðir - 72 stundir - Verð: 110.000.- Nám fyrir þá sem vilja hasla sér völl á viðgerðarsviðinu. Verklegur undirbúningur fyrir A+ gráðurnar frá Comptia. Eftir námið eiga nemendur að vera í stakk búnir til að uppfæra, bilanagreina og gera við tölvubúnað, ásamt því að setja upp viðeigandi stýrikerfi og koma tölvum í netsamband. Kennt í sérútbúinni tölvuviðgerðarstofu. | Morgunnámskeið byrjar 6. okt. | Kvöld- og helgarnámskeið byrjar 21. okt. | MCITP (áður MCSA) - 185 stundir - Verð: 319.000.- MCITP námið er fyrir þá sem vilja starfa sem sérfræðingar við umsjón Microsoft netkerfa. Markmiðið með náminu er að nemendur læri undirstöðuatriði við rekstur og hönnun netkerfa byggðum á Windows stýrikerfinu og geti að náminu loknu tekið þau þrjú alþjóðlegu próf sem þarf til að verða: Microsoft Certified Server Administrator. | Helgarnámskeið (lotunám) byrjar 3. okt. | MCTS og Network+ - 108 stundir - Verð: 139.000.- Markmiðið með þessu námskeiði er að nemendur öðlist færni og kunnáttu til að setja upp og hafa umsjón með tölvum sem keyra á Windows stýrikerfinu. Nemendur öðlast einnig viðtækan skilning á netkerfum og geta leyst vandamál sem að þeim snúa. Auk þess er kynntur fyrir nemendum Windows 2008 Server. Að námskeiði loknu á nemandi að geta séð um rekstur minni eða meðalstórra tölvuneta. | Morgunnámskeið byrjar 2. nóv. | Kvöldnámskeið byrjar 5. okt. | NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI HLÍÐASMÁRA 9 : KÓPAVOGI : SÍMI 544 4500 : WWW.NTV.IS Upplýsingar og skráning: 544 4500 / www.ntv.is NÁM SEM GETUR SKAPAÐ ÞÉR ATVINNU- MÖGULEIKA HÉRLENDIS SEM ERLENDIS SPENNANDI TÆKNINÁM NTV EFNAHAGSMÁL „Verðbólgutölurnar eru í takt við væntingar. En verð- hækkanir á fötum og skóm koma okkur á óvart,“ segir Snorri Jakobs- son, sérfræðingur hjá IFS Grein- ingu. Verðbólga mælist nú 10,8 prósent samanborið við 10,9 prósent í ágúst. Þetta er jafnframt þriðji mánuður- inn í röð sem dregur úr verðbólgu eftir uppskot í apríl og maí. Fyrir ári stóð verðbólgan í fjórtán pró- sentum en hæst fór hún í 18,6 pró- sent í janúar á þessu ári. Hún hefur ekki verið lægri síðan í apríl í fyrra en um svipað leyti tók gengi krónu að lækka hratt. Verð á bens- íni og dísilolíu lækkaði um 2,7 prósent á milli mánaða auk þess sem verð á flugfargjöldum til útlanda fór niður um 12,7 prósent. Hins vegar hækk- aði verð á mat- og drykkjarvöru um 1,7 prósent. Þetta er undir spá IFS Greiningar, sem gerði ráð fyrir 2,5 prósenta hækkun á mat- og drykkjarvöru- verði vegna áhrifa sykurskattsins og lagðist á ákveðna vöruflokka um síðustu mánaðamót. Af þessum sökum telur Snorri að jafnvel megi gera ráð fyrir að verð á vörum sem skatturinn nær ekki til, svo sem kjötvörum, breytist lítið eða lækki á næstu mánuðum. Verð á fatnaði og skóm hækk- aði um 6,2 prósent á milli mánaða. Snorri segir að það hafi komið á óvart og sýni að föt eru orðin veru- lega dýrari en fyrir útsölur í sumar. „Þetta helst líklega aðeins í hend- ur við gengisþróun,“ segir hann og bætir við að spár hljóði upp á að hratt dragi úr verðbólgu á næstu mánuðum. jonab@frettabladid.is Hækkun á fötum og skóm kemur á óvart Greiðslubyrði tuttugu milljóna króna verðtryggðs fasteignaláns hefur hækkað um 1,2 milljónir frá áramótum þrátt fyrir afborganir. Sérfræðingur segir hækk- un á fötum og skóm koma á óvart. SNORRI JAKOBSSON VERÐÞRÓUN FASTEIGNALÁNS* Upphaflegt lán: 20 milljónir Höfuðstóll í nóvember:* 21,2 milljónir króna. Hækkun: 1,2 milljónir króna Hækkun höfuðstóls á mánuði: 190 þúsund krónur * Útreikningarnir miðast við afborganir á láninu sem greiðist inn á höfuðstól á tímabilinu. Ekki er því teljandi munur á fasteignaláni með 4,9 prósenta vöxtum og uppgreiðsluálagi og láni með 5,4 prósenta vöxtum án uppgreiðsluálags. HEIMILD: ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR 250 200 150 20 15 10 okt. nóv. des. jan. feb. mars apr. maí júní júlí ágú. sept. 2008 2009 Kr ón ur Pr ós en t ( % ) Gengi krónu Verðbólga Gengi krónu og verðbólgu í eitt ár BREYTING Í KRÓNULÁN* Höfuðstóll láns Fyrir breytingu Eftir breytingu 20.000.000 15.000.000 Meðalgreiðslubyrði á mánuði Fyrir breytingu Eftir breytingu 106.000 102.000 Eftir þrjú ár: Án breytingar Með breytingu 17.000.000 14.000.000 * Allir útreikningar eru í krónum. Gert er ráð fyrir óbreyttum vöxtum erlendis á lánstímanum en hóflegri lækkun óverð- tryggðra vaxta og gengisþróun hér. Viðskiptavinir Íslandsbanka geta breytt myntkörfulánum í krónulán í nóvember: Höfuðstóll niður um fjórðung VIÐSKIPTI Alls hafa 22 þúsund fyrirtæki ekki skilað ársreikn- ingum til Ársreikningaskrár. Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að framvegis verði aðgengilegir listar á rsk.is yfir þá lögaðila sem ekki hafa sinnt skyldu sinni um að skila ársreikningum til opinberrar birtingar hjá Árs- reikningaskrá. Meðal þeirra fyrirtækja sem þar er að finna eru Atlantsolía, Baugur Group, Fáfnir, Fengur eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar, Eimskipafé- lag Íslands og Straumur Burða- rás. Ársreikningaskrá er heimilt að leggja sektir á félögin. - ghh Listi yfir fyrirtæki birtur: Trassa að skila ársreikningum FRIÐUR Til stendur að mynda mannlegt risavaxið friðarmerki á Klambratúni á föstudaginn. Þann dag, 2. október, er friðardagur Sameinuðu þjóðanna haldinn hátíðlegur um allan heim, en 2. október er einnig fæðingardagur friðarleiðtogans indverska Mahatma Gandhi. „Við ætlum að lyfta kyndlum á loft og mynda friðar merki. Þetta er táknræn aðgerð um djúp- stæða þrá eftir samfélagi án ofbeldis,“ segir Helga R. Óskarsdóttir húmanisti. Skipulagshópur Heimsgöng- unnar, ásamt Rauða krossinum, Sambandi íslenskra framhalds- skólanema, Samtökum hernaðar- andstæðinga, Öryrkjabandalag- inu og fleiri fjöldasamtökum, standa að göngunni. Á degi friðar hefst heimsganga frá Nýja-Sjálandi og á að ganga heiminn þveran og endilangan á þremur mán- uðum, eða til 2. janúar, þegar henni lýkur í Andesfjöllum í Argentínu. Göngufólkið fer í gegnum hátt í hundrað lönd og ræðir við stjórnmálamenn og aðra leiðtoga í hverju landi. Helstu kröfur göngu- fólksins eru að kjarnorkuvopnum verði útrýmt og að innrásarherir hverfi frá herteknum svæðum. Friðarmerkið á Klambratúni á að mynda klukk- an 20 á föstudag, en um morguninn verður mín- útuþögn í mörgum grunnskólum landsins. - kóþ Dagur án ofbeldis haldinn á föstudag þegar fjöldasamtök mætast á Klambratúni: Mynda mannlegt friðarmerki HELGA R. ÓSKARSDÓTTIR UNGVERSKUR FRIÐUR Um 3.500 manns hittust í Búdapest í fyrra til að mynda þetta friðarmerki. Á föstudag á að endur- taka leikinn, á Klambratúni. Kyndlar verða á staðnum. MYND/HEIMSGANGA.IS KJÖRKASSINN Eiga stjórnvöld að breyta lögum um Seðlabankann til að knýja niður stýrivexti? Já 76,9% Nei 23,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu sátt(ur) við tillögur stjórn- valda um lausnir við skulda- vanda heimilanna? Segðu skoðun þína á visir.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.