Fréttablaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 8
8 29. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1. Með hvaða flokki hyggst Angela Merkel mynda nýja ríkisstjórn Þýskalands? 2. Hvaða þekkti leikstjóri var nýlega tekinn höndum í Sviss? 3. Hverjar urðu markadrottn- ingar Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í sumar? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26 ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 4 72 85 0 9/ 09 * Innifalið: Flug ásamt flugvallarsköttum, gisting í 3 nætur með morgunverði, rútuferðir til og frá flugvelli erlendis, einnig í Jónshús og í „Fisketorvet“. Skoðunarferð um Kaupmannahöfn, kvöldverður á Copenhagen Corner, aðgöngumiði í Tívolí og “julefrokost” á Restaurant Kronborg og fararstjórn. Uppgefið verð getur breyst til samræmis við hækkun á eldsneytisgjaldi og álögðum sköttum og gjöldum. Verðið m.v. gengi 27. ágúst 2009. KAUPMANNAHÖFN AÐVENTUFERÐIR FYRIR ELDRI BORGARA VERÐ 99.200 KR.* Á MANN Í TVÍBÝLI (AUKAGJALD FYRIR EINBÝLI: 17.700 KR. Ferðadagar: 15.–18. og 22.–25. nóvember. Íslenskir fararstjórar: Erla Guðmundsdóttir / Emil Guðmundsson + Bókanir á www.icelandair.is/hopar. (Númer hópa er 1207). Nánari upplýsingar hjá Hópadeild Icelandair í síma 50 50 406 eða með tölvupósti á hopar@icelandair.is ÞÝSKALAND, AP Angela Merkel og Guido Westerwelle ætla að vera snögg að mynda nýja ríkisstjórn Kristilegra (CDU) og Frjálsra demókrata (FDP) í Þýskalandi. Flokkarnir tveir fengu samtals 326 þingmenn í kosningum á sunnudag, sem er öruggur meirihluti á 622 manna sambandsþingi landsins. „Þýskaland á skilið að fá nýja stjórn fljótt,“ sagði Merkel, sem er leiðtogi Kristilegra demókrata, og lofar því að stjórnarmyndun verði lokið fyrir 9. nóvember, þegar hún tekur á móti erlendum þjóðarleið- togum í tilefni þess að þá verða tuttugu ár liðin frá því að Berlínar- múrinn féll. Sósíaldemókratar (SPD), sem hafa verið í stjórn með Kristi legum undanfarið kjörtímabil, hröpuðu niður í 23 prósent atkvæða úr 34 prósentum, sem flokkurinn fékk fyrir fjórum árum. Sigurvegari kosninganna er Guido Westerwelle, leiðtogi Frjálsra demókrata, en sigur sinn getur hann væntanlega að stórum hluta þakkað Merkel kanslara, því hún hamraði á því í kosninga baráttunni að hún vildi frekar mynda stjórn með Frjálsum demókrötum en halda áfram stjórnarsamstarfinu með Sósíaldemókrötum. Sósíaldemókratar geta hugsan- lega einnig kennt Merkel um sitt tap, því hún hefur óspart kennt samstarfsflokknum um að hafa ekki getað hrint í framkvæmd þeim umbótum sem hún hefur viljað gera í Þýskalandi. Merkel hefur notið vinsælda almennings, en gæti átt erfitt með að halda þeim í stjórn með Westerwelle, sem kemur ferskur inn í stjórnarsamstarfið með skýrar hægriáherslur. Westerwelle vill ganga mun lengra en Merkel í frjálshyggjuátt, meðal annars í skattamálum. Kristilegir og Frjálsir demó- kratar hafa oft starfað saman í stjórn áður, en veruleg breyting hefur orðið á vinstrivæng þýskra stjórnmálaflokka. Sósíaldemókratar hafa lengst af haft þar yfirburðastöðu, með minni flokk Græningja við hlið sér, en nú eru vinstriflokkarnir þrír. Sósíaldemókratar eru áfram stærstir, en Vinstriflokkurinn, arf- taki gamla austurþýska Kommún- istaflokksins, hefur bætt við sig miklu fylgi með Gregor Gysi og Oskar Lafontaine í fararbroddi, og er nú orðinn stærri en Græningja- flokkurinn. „Vinstri hefur breytt flokka- kerfinu,“ segir Lafontaine stoltur og lofar harðri stjórnarandstöðu. gudsteinn@frettabladid.is Westerwelle gengur til liðs við Merkel Merkel lofar nýrri stjórn fyrir 9. nóvember. Sigur- vegari kosninganna, Guido Westerwelle, getur að verulegu leyti þakkað Merkel og félögum sigurinn. MERKEL OG WESTERWELLE Þau Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, og Guido Westerwelle, leiðtogi Frjálsra demókrata, hittust í gær og ætla að ljúka stjórnar myndun á næstu vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI „Þetta er mjög ánægju- legt og átti sér stuttan aðdraganda, nokkra daga,“ segir Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marel Food Systems. „Með þessum kaupum eru stjórnendur Columbia Management að sýna Marel mikið traust og eru greinilega sáttir við stefnu og horfur.“ Sjóðir á vegum bandaríska eignastýringafyrirtækisins Col- umbia Wanger Asset Management, dóttur fyrirtækis Bank of America, keyptu á föstudag 5,2 prósenta hlut í Marel Food Systems fyrir 1,9 milljarða króna. Félagið er með 330 milljarða Bandaríkjadala í eignastýringu, sem jafngildir rúmum 41 þúsund milljörðum króna. Erlendir aðilar eiga nú sextán prósent í Marel Food Systems og hefur hlutfallið aldrei verið hærra. Félagið verður eftirleiðis fjórði umsvifamesti hluthafi Marel Food Systems. Árni Oddur segir bandaríska félagið hafa átt frumkvæðið að viðskiptunum. Forsvarsmenn þess þekki vel til Marel Food Systems enda hafi þeir um allangt skeið verið hluthafar í hollensku iðnsam- steypunni Stork sem er fyrrverandi eigandi Stork Food Systems. Mikil viðskipti voru með hlutabréf Marel Food Systems í Kauphöll Íslands eftir að tilkynnt var um viðskipt- in og hækkaði gengi bréfa þess um sex prósent í gær. - jab Bandarískur risasjóður orðinn fjórði stærsti hluthafi Marel Food Systems: Keyptu fyrir 1,9 milljarða ÁRNI ODDUR ÞÓRÐARSON Bandarískur sjóður hefur keypt rúm fimm prósent í Marel Food Systems. Erlendir aðilar hafa aldrei átt jafn stóran hlut í félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA CDU/CSU 239 FDP 93 SPD 146 Vinstir 76 Grænir 68 Alls 622 sæti Skipting þingsæta HEIMILD: YFIRKJÖRSTJÓRI ÞÝSKALANDS © GN BRETLAND Sérfræðingar Háskól- ans í Hull hafa hleypt af stokk- unum viðamikilli rannsókn á hugsanlegum aukaverkunum sætuefnisins Aspartam. Mat- vælaeftirlit Bretlands og Evrópu hafa hingað til lagt blessun sína yfir notkun efnis- ins og er það notað í matvælum um allan heim, meðal annars hér á landi. Ástæða rannsóknarinnar er umkvartanir fólks síðastliðin ár sem stendur í þeirri mein- ingu að það hafi fundið til höfuð- verks, svima og þreytu eftir að hafa innbyrt efnið í mat eða drykk. Hundrað manns munu taka þátt í rannsókninni, sem stendur yfir í átján mánuði. - jma Ný rannsókn á sætuefni: Rannsaka auka- verkanir af Asp- artam-sætuefni ÁLFTANES Þrír fulltrúar Sjálf- stæðis flokks og Margrét Jóns- dóttir hafa myndað „starfhæfa bæjarstjórn“, samkvæmt tilkynn- ingu frá þeim í gær. Þar segir að þjónusta við íbúa eigi að skerðast sem minnst og að bæjarstjórnin muni „einbeita sér að því að rétta af fjárhag bæjar- ins“. Með góðri sátt meirihlutans megi við því búast að það sjáist, þegar á næstu vikum, „áherslu- breytingar Álftnesingum til heilla“. Margrét Jónsdóttir er formaður bæjarráðs en Kristinn Guðlaugs- son er forseti bæjarstjórnar. - kóþ Nýr meirihluti myndaður: Bæjarstjórn á Álftanesi kynnt SJÁVARÚTVEGSMÁL Hvalveiði- vertíðinni er að ljúka en hrefnu- veiðimenn stunda enn veiðar frá Vestfjörðum. Rúmlega 200 dýr hafa verið veidd sem er langt frá útgefnum kvóta. Hvalur 9 og Hvalur 8 hættu veiðum fyrir nokkru og komu 125 langreyðar á land. Þau 25 dýr sem óveidd eru af útgefnum kvóta verða veidd á sumri komanda. Vertíðarlok voru fyrir viku, á sama tíma og venja var til á fyrri tíð. Hrefnuveiðimenn veiða út septem ber frá Vestfjörðum og Konráð Eggertsson, skipstjóri á Halldóri Sigurðssyni ÍS, tók sína fyrstu hrefnu þetta árið nýlega. Alls hafa veiðst um áttatíu hrefn- ur í sumar, flestar í Faxaflóa. - shá Hvalveiðivertíðinni lýkur um mánaðamótin: Yfir tvö hundruð hvalir komu á land KONRÁÐ EGGERTSSON Vertíðinni er að ljúka. VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.