Fréttablaðið - 29.09.2009, Síða 10
10 29. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNMÁL Útfærsla endanlegra
aðgerða til að koma til móts við þá
sem eiga í mestum skuldavanda er
á lokastigi. Er aðgerðunum ætlað
að gilda um alla, sama hvar þeir
skulda og sama hverrar tegundar
lán þeirra eru.
Þetta kom fram í máli Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra á
flokksstjórnarfundi Samfylkingar-
innar á laugardag.
Sagði hún aðgerðirnar tryggja
bæði húsnæðisöryggi fólks og að
skuldsett heimili verði ekki föst í
skuldafjötrum um ókomna tíð.
„Allar kannanir sýna að vandinn
er viðráðanlegur og í raun séu það
um tuttugu prósent heimila sem
þurfi nú á róttækum aðgerðum að
halda,“ sagði Jóhanna.
Ríkisstjórnin stendur frammi
fyrir að stoppa í 180 milljarða
króna halla á fjórum árum. Sagði
Jóhanna ráðgert að hallinn yrði
tæpum 100 milljörðum minni í lok
næsta árs. Því verði náð fram með
niðurskurði, sparnaði, uppstokkun
ríkiskerfisins og réttlátari skatta-
stefnu en verið hafi.
Í undirbúningi eru stórfram-
kvæmdir í orkumálum, vegamálum
og byggingariðnaði, meðal annars
með aðkomu lífeyrissjóða. Jóhanna
gat um ákvörðun ríkis stjórnar-
innar frá því á föstudag um að
greiða götu þess að nýr Landspít-
ali risi. Við það skapast minnst 800
störf. Nefndi hún líka Búðarháls-
virkjun, stækkun Straumsvíkur-
álversins, byggingu álversins í
Helguvík, Suðurlands veg, gagna-
ver og virkjun jarðhita sem verk-
efni til uppbyggingar atvinnulífs.
Hún sagði líka margt í bígerð til
að draga úr umsvifum hins opin-
bera og nefndi sameiningu stofn-
ana og embætta.
Þá upplýsti Jóhanna að hún
hefði farið fram á að skilanefndir
bankanna greindu opinberlega frá
störfum sínum. Sagði hún marga
hafa áhyggjur af því hvernig stað-
ið væri að endurskipulagningu á
skuldum fyrirtækja, hver þeirra
yrðu knúin í þrot og hverjum
hjálpað með skuldbreytingum og
afskriftum. Allt þyrfti að vera á
hreinu í þessum efnum í nýju og
betra samfélagi. bjorn@frettabladid.is
Skuldavandi heim-
ila er viðráðanlegur
Aðgerðir til að mæta vanda þeirra sem eiga í mestum skuldavanda eru í loka-
vinnslu. Stórframkvæmdir eru í undirbúningi. Allt er undir í uppstokkun ríkis-
kerfisins. Forsætisráðherra vill að skilanefndir starfi fyrir opnum tjöldum.
STOLT Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kveðst stolt af þeim árangri sem
ríkisstjórn hennar hefur náð á átta mánaða starfstíma sínum.
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin hefur
ákveðið að ráðast í viðamiklar
breytingar og endurskipulagningu
á verkefnum ráðuneyta og stofn-
ana. Markmið þeirra er meðal ann-
ars að forgangsraða í ríkisrekstr-
inum, auka skilvirkni og nýta
fjármuni á sem árangursríkast-
an hátt.
Í tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu segir meðal annars að ekki
sé hægt að ganga út frá því sem
vísu að allir þeir sem nú vinni hjá
ríkinu sinni sömu eða sams konar
störfum eftir að endurskipulagn-
ingin hefur farið fram. Enn fremur
segir að breytingarnar séu komnar
mislangt á veg en þær kalli á nýja
hugsun, útsjónarsemi og samhent
átak allra aðila.
- bþs
Viðamikil endurskipulagning á verkefnum ráðuneyta og stofnana áformuð:
Breytingar kalla á nýja hugsun
■ Lögreglu- og sýslumannsembætt-
um verður fækkað.
■ Héraðsdómstólar sameinaðir í
einn.
■ Landið gert að einu skattum-
dæmi.
■ Aðgerðaáætlun um samstarf heil-
brigðisstofnana og breytt skipulag
stjórnsýslustofnana heilbrigðisráðu-
neytisins.
■ Sameining átta heilbrigðisstofn-
ana á Vesturlandi og tveggja í
Fjallabyggð.
■ Breytt verkaskipting stærri stofn-
ana sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytisins.
■ Verkefni og stofnanir á sviði vinnu
og velferðar endurskipulögð og
starfsemin samþættuð félagsþjón-
ustu sveitarfélaga.
■ Unnið er að flutningi málefna
fatlaðra og aldraðra frá ríki til sveitar-
félaga.
■ Sameining slysarannsókna-
nefnda. Keflavíkurflugvöllur ohf. og
Flugstoðir ohf. sameinuð.
■ Endurmat á háskólakerfinu, þar
með talið á möguleikum til aukins
samstarfs eða sameiningar háskóla.
■ Varnarmálastofnun lögð niður í
núverandi mynd 2010 og verkefni
hennar samþætt hlutverki annarra
opinberra stofnana.
MEÐAL ÞESS SEM STJÓRNVÖLD ÁFORMA
REYKJAVÍK Kjartan Magnússon,
formaður Íþrótta- og tómstunda-
ráðs, kveðst reikna með að borg-
in muni áfram styðja tómstunda-
starf barna í
gegnum frí-
stundakortin
svonefndu.
Frístunda-
kortunum var
komið á lagg-
irnar árið 2007
í tilraunaskyni
til þriggja ára.
Í ár átti
styrkurinn að
nema 40 þúsund krónum á hvert
barn en fjárhæðin var lækkuð
í 25 þúsund í kjölfar efnahags-
hrunsins.
Kjartan segir formlega
ákvörðun um framhald frí-
stundakortanna ótekna en að
hann búist fastlega við að kerfið
verði til frambúðar. - bþs
Stuðningur vegna tómstunda:
Frístundakortin
líklega áfram
KJARTAN
MAGNÚSSON
SVISS, AP Pólski kvikmyndaleik-
stjórinn Roman Polanski er stað-
ráðinn í að berjast gegn framsali
til Bandaríkjanna, en í gær hafði
framsalskrafa ekki borist.
Polanski, sem er einn fremsti
leikstjóri heims, var handtekinn
þegar hann kom til Sviss um
helgina fyrir að hafa fyrir þrjá-
tíu árum níðst kynferðislega á
þrettán ára gamalli stúlku. Hann
hefur verið eftirlýstur síðan og
ekki getað farið til Bandaríkj-
anna.
Ráðamenn í Frakklandi sem
og ýmsir framámenn í kvik-
myndagerð hafa fordæmt hand-
tökuna og hvatt Svisslendinga til
að láta Polanski lausan. - gb
Polanski í baráttuhug í Sviss:
Berst gegn
framsalskröfu
BAK VIÐ LÁS OG SLÁ Fangelsið í Zürich-
Kloten, þar sem talið er að Polanski sé í
haldi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Skuldastaða heimilanna
Fundur um skuldastöðu heimil-
anna verður haldinn á Grand hóteli
í hádeginu í dag. Félag viðskipta-
og hagfræðinga stendur fyrir
fundinum. Á meðal frummælanda
verður Árni Páll Árnason félags-
málaráðherra.
FUNDUR
ÍRAN, AP Íranski herinn skaut upp í
tilraunaskyni flugskeyti af nýrri
og fullkominni gerð, sem dreg-
ur nógu langt til að bæði Ísrael
og bandarískar herstöðvar við
Persaflóa eru í skotfæri.
Alls gerðu Íranar tilraunir með
flugskeyti í þremur lotum í gær
og á sunnudag. Prófaðar voru
nýjar og endurbættar útgáfur af
flugskeytum af gerðinni Shahab-
3 og Sajjil.
„Írönskum f lugskeytum
er hægt að miða á alla staði,
sem Íran stafar ógn af,“ sagði
Abdollah Araqi, yfirmaður í
íranska hernum.
Tilraunirnar hófust aðeins
tveimur dögum eftir að Banda-
ríkin og fleiri ríki ljóstruðu upp
að Íranar hafi með leynd reist
aðra kjarnorkutilraunastöð þar
sem úran er auðgað.
Íranar voru harðlega gagn-
rýndir og skorað á þá að leyfa
alþjóðlegum kjarnorkueftirlits-
mönnum að skoða nýju stöðina.
Vaxandi spenna hefur verið vegna
kjarnorkuáforma Írana.
Javier Solana, utanríkismála-
fulltrúi Evrópusambandsins,
segir Írana verða án tafar að leysa
úr deilum sínum við umheiminn.
Hillary Clinton, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, segist ekki
telja að Íranar geti sannfært aðra
um að þeir ætli sér einungis að
vinna kjarnorku í friðsamlegum
tilgangi. - gb
Tilraun með flugskeyti endapunkturinn á tveggja daga heræfingum í Íran:
Íranar sýna hvað þeir geta
FLUGSKEYTI SKOTIÐ Á LOFT Nýja flug-
skeytið kemst tvö þúsund kílómetra og
getur borið allt að þúsund kílógramma
þunga sprengihleðslu. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA Forystumenn sveitar-
félaga á Austurlandi ákváðu
um helgina að fela starfshópi að
kanna kosti þess að sameina öll
sveitarfélög í fjórðungnum í eitt.
Á starfshópurinn meðal annars
að gera tillögur að stjórnkerfi nýs
sameinaðs sveitarfélags, kanna
vilja ríkisvaldsins til að stuðla
að opinberum framkvæmdum í
því og fjalla um þau áhrif sem
tilkoma sveitarfélagsins hefði
í för með sér fyrir austfirskt
samfélag.
Níu sveitarfélög eru á Austur-
landi og hefur þeim fækkað
nokkuð með sameiningum undan-
gengin ár. - bþs
Sameining sveitarfélaga:
Eitt sveitarfélag
á Austurlandi
Jóhanna boðaði breytta skatta-
stefnu. Hún vitnaði til óbirtrar
skýrslu sem sýndi að þær skatt-
breytingar sem gerðar voru í þágu
atvinnulífsins, og áttu ekki síst að
laða að erlenda fjárfestingu, hafi
nánast engu skilað í þeim efnum.
Áhugi erlendra aðila á fjárfestingum
hér hafi nánast eingöngu átt við um
stóriðju. Á sama tíma hafi Íslending-
ar í stórum stíl fjárfest hér í gegnum
erlend fjárfestingarfélög. Sagði hún
ríkisstjórnina ætla að jafna hlutföll
milli tekjuskatta og fjármagnstekju-
skatta og innleiða orku-, umhverfis-
og auðlindaskatta. Skattheimtan
verði að sönnu aukin en varlega
verði farið í breytingar á óbeinum
sköttum og hvorki hreyft við eigna-
né erfðafjársköttum.
Úr fjórum prósentum í tuttugu
Jóhanna tók dæmi um breytingar.
Árið 1993 var 1 prósent ríkustu
fjölskyldna landsins með um 4
prósenta hlutdeild í ráðstöfunartekj-
um. Árið 2007 var hlutdeild sama
hóps orðin um 20 prósent. Árið
2007 höfðu 10 prósent fjölskyldna
um 40 prósent ráðstöfunartekna
en 90 prósent fjölskyldna skiptu 60
prósentum teknanna á milli sín.
BREYTINGAR SEM SKILUÐU NÁNAST ENGU
UPPSTRÍLAÐUR HUNDUR Eigendurnir
hafa sjálfsagt verið ákaflega ánægðir
með múnderinguna, sem þeir voru
búnir að troða hundinum sínum í á
hundakeppni í Mumbaí á Indlandi.
NORDICPHOTOS/AFP