Fréttablaðið - 29.09.2009, Síða 14

Fréttablaðið - 29.09.2009, Síða 14
14 29. september 2009 ÞRIÐJUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Fimm ára stúlka var stungin með eggvopni af ungri konu í Keflavík, og liggur þungt haldin á Landspítalanum. Grunur leikur á að konan hafi verið að hefna sín á foreldrum, samkvæmt fjölmiðlum gærdagsins, en ekki er ljóst þegar þetta er skrifað, fyrir hvað. Í gær var líka viðtal við lögreglustjóra Suðurnesja, sem segir skipulagða glæpastarfsemi finnast í umdæm- inu. Þar séu bæði innlendir og erlendir hópar sem fylgst sé vel með. Hættumat greiningardeildar þjóni embættinu og hún mæli með að fleiri umdæmi verði greind með sambærilegum hætti. Í ljósi aðstæðna hlýtur það að teljast sjálfsagður hlutur, þó að napurt sé að þurfa að horfast í augu við að að fámenn en upplýst þjóð á eyju í Atlantshafi, þar sem slíkt ætti ekki að geta dulist, skuli ekki eiga ráð til að uppræta inn- lenda glæpahópa og vísa hinum úr landi. Þó að illskiljanlegur örvænt- ingarglæpur sé ekki það sama og skipulagðir hópar innbrotsþjófa og fíkniefnaþjóna er ofbeldi beitt í báðum tilvikum til að ná sér niðri á, eða ná sínu fram. Það er þjóðar- smán að handrukkarar skuli vera starfandi hér á landi, í þeirri vissu að fórnarlömbin geta ekki kært þá nema stofna lífi og heilsu sinna nánustu í hættu. Vantar ekki eitt- hvað í lagabálkinn? Að koma eins og þjófur á nóttu, er ekki lengur bara líkingarmál. Fólk leggst ekki lengur rólegt og öruggt til svefns á eigin heimilum. Árvökull maður veitti athygli bifreið sem lengi vel ók fram og aftur í götunni hans, og gerði viðvart. Hjá bifreiðastjóranum fannst nákvæmt yfirlit yfir húsin í götunni, fjarvistir og vinnutíma íbúa. Merkt var með bláu við hús með öryggiskerfi en rauðu hjá þeim sem áttu hunda. Þó að erlendir og þrautþjálfaðir fagmenn í þjófnaði hafi verið stór- tækir hér á landi og vafalítið skop- ast að andvaraleysinu hérlendis er eins víst að að Íslendingar á sömu braut eru námfúsir. Og þess utan er engu að kvíða. Fari svo að þeir náist er ekki pláss fyrir þá í fang- elsum, svo að þeir geta notað bið- tímann vel. Eða þeir eru settir inn í fangelsi sem eru eins og hótel, miðað við það sem tíðkast víða erlendis. Gott frí. Hvernig er með heimavistarskóla á landsbyggð- inni, sem ekki eru lengur í notk- un? Er ekki húsnæði úti um allt sem hægt væri að laga að þessari starfsemi? Vald yfir lífi annarra Heimilisofbeldi hefur smám saman komið upp á yfirborðið á síðustu árum. Fólk veit um úrræði, veit hvert það getur farið og fengið skilning og stuðning. Það er ekki lengur skömm að segja frá því að maður hafi sætt ofbeldi og lifað við það, ekki frekar en að vera samkynhneigður. Ofbeldið getur átt greiða leið upp á yfirborðið þegar áfengi og fíkniefni eru undir stýri hjá manneskjunni, til dæmis á úti hátíðum, en oft þarf ofbeldið enga örvun. Óhugnanlegar fréttir af fyrirbærinu í Austur ríki, sem gerði dóttur sína að fanga og kyn- lífsþræli í kjallaranum heima hjá sér, voru á þann veg, að manni þóttu þær nánast handan við hug- myndaflugið. Síðan kemur annar slíkur ofbeldis maður í ljós vest- anhafs. Hvort tveggja vitnar um öðrum þræði um þá ónáttúru að sækjast eftir og njóta þess að hafa algjört vald yfir lífi annarrar manneskju. Þetta endurspeglast í frábærum leik Þrastar Leós, Dav- íðs, Jörundar og Dóru í leikritinu, Heima er best, í Borgarleikhúsinu. Birtingarmynd þess er líka með- ferðin á föngunum í Guantanamo, sem og víðar. Á vaktinni Vald og valdagræðgi er jafnan tengd stjórnmálum og fjármála- starfsemi, en valdagræðgi er algeng inni á heimilum, á skóla- lóðum og vinnustöðum. Þessi hneigð til að ráða yfir öðrum. Sýna vald sitt með því að niður- lægja einhvern, gera hann hlægi- legan og niðurbrotinn, til að hinir sjái hvers viðkomandi er megn- ugur. Þetta er náttúrlega birting- armynd vanmetakenndar. Sá sem er öruggur og sáttur innra með sér þarf ekki á fylgispekt á kostn- að annarra að halda. En valdið og ofbeldið er líka vinsælasta afþreyingarefni sam- tímans. Vinsælustu bíómyndir og bækur á Vesturlöndum eru saka- málasögur með hugvitsamlegum hörmungum innan um skemmti- lega spennufrásögn. Eflaust blundar einhvers konar valdafíkn í hverjum manni. Hjá sumum rumskar hún kannski, en vaknar aldrei. Aðrir eiga sína takta í vinahópi, en reynslan kennir að þessi kennd glaðvaknar oft þegar menn fá mannaforráð. Þá þurfa þeir að vera á vaktinni gagnvart sjálfum sér. Reyndar þurfum við öll að standa slíka vakt, allar stundir. Ofbeldisvæðingin JÓNÍNA MICHAELSDÓTTIR Í DAG | Ofbeldi og vald Vefarinn mikli Ein margra smárra hliðarverkana bankahrunsins var sú að Björgvin G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra, sem örskömmu eftir hrunið lokaði vefsíðu sinni, gafst ekki tóm til að lagfæra hana eins og til stóð. Hann hefur líkast til verið of upptekinn. Síðan í októb- erbyrjun í fyrra hefur orðsendingin „Verið er að endurskoða og breyta vefsvæðinu bjorgvin.is“ því mætt gestum. Margir hafa sýtt það að komast ekki í skrifin og jafn- vel sakað Björgvin um að reyna að hylja slóð óheppi- legra ummæla. En þótt viðgerðin á vefsvæðinu sækist hægt skyldu hvorki Björgvin né áhugamenn um hann örvænta, því nú gefst á ný færi á að drekka í sig skrif hans með aðstoð Vefsafnsins, splunkunýrrar íslenskrar veftímavélar á vegum Landsbókasafns. Týnda ávarpið Vefsafnið veitir aðgang að ýmsum skemmtilegum skrifum eftir ráðherr- ann fyrrverandi, sem annars hefðu fallið í gleymskunnar dá. Til dæmis ávarp sem hann flutti á ársfundi Fjármálaeftirlitsins í nóvember árið 2007, en er af einhverjum ástæðum hvorki að finna á vef FME né viðskiparáðuneytisins. Þar sagði Björgvin meðal annars þetta: „Íslensku fjármálafyrirtækin hafa notið þess meðbyrs sem verið hefur á alþjóðleg- um fjármálamörkuðum undanfarin ár og nýtt vel þau tækifæri sem gefist hafa á mörkuðum með fyrirtækja- kaupum og stofnun útibúa erlendis.“ Umræðuóróinn Björgvin bætti þessu síðan við um störf Jónasar Fr. Jónssonar og undir manna hjá FME: „Á undanförnum tveimur árum hefur eftirlitið staðið frammi fyrir þeirri miklu áskorun að fylgja eftir og halda í við framrás íslenskra fjár- málafyrirtækja auk þess að takast á við umræðuóróann vorið 2006. Að mínum dómi hefur stofnuninni tekist vel til í þeim efnum.“ Lesþyrstum er bent á síðuna vefsafn.is, vilji þeir kynna sér skrifin betur. stigur@frettabladid.is Auglýsingasími – Mest lesið UMRÆÐAN Þorkell Helgason skrifar um greiðslujöfnun Joseph Stiglitz, nóbelsverð-launahafi, hefur lagt til að verðtrygging lána miðist fremur við laun en neysluverð. Þannig tengist greiðslubyrðin beint við afkomu lángreiðenda. Hængur- inn er sá að til lengdar litið hafa laun hækkað meira en verðlag og svo verður von- andi í framtíðinni. Í frétt á forsíðu Fréttablaðsins í gær er t.d. bent á að launavísitala hafi hækkað um 29% umfram vísitölu neysluverðs síðan 1991. Því er hæpið að lántakendum sé greiði gerður með tengingu höfuðstóls við laun. En til er svipuð en betri lausn. Hún felst í árs gamalli lagasetningu um greiðslujöfnun á verðtryggðum fasteignaveðlánum. Lánin eru samkvæmt þessu fyrirkomulagi verðtryggð miðað við neysluverð en greiðslubyrðin aðlöguð breytingu á launum frá ársbyrjun 2008. Þannig er byrðin léttari nú en ella væri, og gott betur því einnig er tekið tillit til lækkandi atvinnustigs. Aftur á móti mun höfuðstóllinn ekki hækka meira en svarar til hækkunar neysluverðs þegar hagur þjóðarinnar fer að vænkast og kaupmáttur að vaxa á ný. Undar- legt er að bjargráðið sem felst í greiðslujöfnunar- lögunum hefur lítt borist almenningi til eyrna og fáir nýtt sér möguleikann. Lækkun á greiðslubyrði er vissuleg keypt því verði að lánin lengjast. Dágóð von er samt til þess að þeir sem nýta sér greiðslu- jöfnun séu á endanum betur settir en með verð- tryggingu að hætti Stiglitz. Engu að síður kann kúfurinn sem bætist við lánin að vera ástæða þess að lausnin er vannýtt. Nú hefur kvisast út að félagsmálaráðherra hygg- ist dusta nýfallið ryk af greiðslujöfnunarlögunum og gera tillögur um endurbætur og útvíkkun á þeim í ljósi reynslunnar. M.a. mun hugað að viðlaga- ákvæði sem taki með samfélagslegum hætti á eftir- hreytum greiðslujafnaðra lána verði þær óeðlilega miklar. Tillögur ráðherrans virðast því bæði sneiða hjá þeim galla sem felst í tengingu höfuðstóls við laun og jafnframt stemma stigu við löngum skulda- hala ef efnahagsbati lætur á sér standa. Gagnrýni er samt þegar komin á kreik, t.d. í fyrrgreindri frétt blaðsins. Þjóðmálaumræða á Íslandi er einatt þannig að byrjað er að gagnrýna áður en ljóst er að hverju hún beinist. Hvernig væri að sjá tillögur ráð- herrans áður en gripið er til vopna? Höfundur sat á sínum tíma í vinnuhópi um greiðslujöfnun. Hvers konar verðtrygging? ÞORKELL HELGASON Ó vissan hefur verið heldur leiður förunautur þjóðarinnar undanfarið ár. Hún hefur lagst eins og mara yfir öll svið hins daglega lífs. Óvissan snýr bæði að því hvernig samfélagið verður hér á næstu árum og áratugum en ekki síður um fjárhagslega afkomu hvers og eins heimilis í samfélagi þar sem atvinna er orðin ótrygg og skuldirnar eru óræð stærð, svo ekki sé meira sagt. Fyrir liggur að almenningur mun á næstu misserum þurfa að bera þungar sameiginlegar byrðar. Draga þarf úr útgjöldum hins opinbera á sama tíma og ríkið verður að auka tekjur sínar. Það blasir því við að Ísland verður ekki lengur meðal þeirra vestrænu þjóða sem lægsta hafa skattana heldur verður skattheimta hér meira í átt við það sem þekkist í nágrannalöndum okkar. Óvissa ríkir þó enn um það hvernig skattabreytingar muni hitta hvern og einn fyrir. Fréttir af þeim niðurskurði og sparnaði ríkisútgjalda sem fram undan er hafa birst í brotum. Listi ríkisstjórnarinnar yfir viða- miklar breytingar á stofnunum ríkisins sem birtur var í gær er því fagnaðarefni, ekki endilega vegna allra þeirra efnisþátta sem á honum eru heldur hins að með birtingu hans er létt á óvissu um hvar eigi að bera niður í niðurskurðinum og dregin upp mynd af þeim breytingum sem fram undan eru og lúta allar að því að draga úr kostnaði. Sömuleiðis er ljóst þegar listinn er skoðaður að um verulegar kerfisbreytingar er að ræða, sem eru líklegar til þess að skila umtalsvert meiri sparnaði til lengri tíma en hægt yrði að ná með minna róttækum aðgerðum. Sú óvissa sem áreiðanlega hvílir hvað þyngst á íslenskum almenningi er þó óvissan um fjárhagslega afkomu heimilanna. Boðað hefur verið að aðgerðir ríkisstjórnarinnar gagnvart skuld- settum heimilum verði kynntar nú í vikunni, en um helgina var sýnt á einhver spil sem eru á þeirri hendi. Þessara aðgerða hefur verið beðið meira en nokkurra annarra. Ljóst er að aðgerðir sem þessar eru ekki hristar fram úr erm- inni. Það er vandaverk að finna sanngjarna leið til þess að létta á skuldavanda heimilanna. Í slíkum aðgerðum mega þeir til dæmis ekki fara halloka sem ábyrgastir hafa verið í fjármálum sínum. Forsætisráðherra hefur sagt að aðgerðirnar eigi að gilda um alla, sama hvað þeir skulda og hverrar tegundar lán þeirra eru. Svo virðist þó sem aðgerðir ríkisstjórnarinnar taki fyrsta kastið aðeins til afborgana lánanna, að ekki sé um niðurfærslu höfuðstóls að ræða. Þetta hlýtur að þýða að ákveðnum vanda er skotið á frest. Slíkar aðgerðir létta vissulega á ákveðinni spennu og munu leysa úr bráðavanda margra heimila. Hins vegar verður óvissan til lengri framtíðar söm ef hagsmunir lánveitenda verða áfram teknir fram yfir hagsmuni lántakenda. Vonandi verða langþráðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar farsælar skuldsettum heimilum bæði í bráð og lengd. Þau þurfa þess með. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til handa skuldsettum heimilum: Verða að duga í bráð og lengd STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.