Fréttablaðið - 29.09.2009, Page 23

Fréttablaðið - 29.09.2009, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 29. september 2009 19 > EKKI AÐDÁANDI Poppgoðið Michael Jack- son var ekki aðdáandi söngkonunnar Madonnu. Í gömlum upptökum sem búið er að opin- bera má heyra Jackson ræða um Madonnu. „Ég held hún hafi verið ástfangin af mér en ég elskaði hana ekki á móti. Hún er alls ekki kynþokkafull. Kyn- þokki er eitthvað sem kemur frá hjartanu.“ folk@frettabladid.is Leikkonan Megan Fox ræddi við grínistann Jimmy Fallon í þætti hans Late Night á fimmtu- daginn var. Í þættinum viður- kenndi hún að henni þætti ónota- legt að snerta þurran pappír og þyrfti því ávallt að bleyta fingur sína áður en hún kæmi við blað. „Á mjög slæmum dögum sit ég með litla vatnsskál við hliðina á mér og bleyti fingurna upp úr vatni áður en ég flétti blaðsíð- unni. Sumum finnst óþægilegt hljóðið sem kemur þegar skólatafla er klóruð, mér finnst óþægi- legt að koma við pappír,“ sagði leikkonan. Hún sagðist jafn- framt fá öll kvikmyndahand- rit í tölvutæku formi. Fox þolir ekki pappír UNDARLEG Megan Fox kemur stanslaust á óvart með skrítnum yfirlýsingum sínum. Bandaríski listamaðurinn Rob Bliss framkvæmdi óvenjulegan gjörning á sunnudag þegar hundrað þúsund pappaflug- vélar voru settar á flug undir ómþýðum tónum Sigur Rósar. Um fimmtíu sjálfboðaliðar hjálpuðu Bliss að búa til flugvélarnar, sem voru í ýmsum litum. Einum lit í einu var hleypt á flug samtímis frá þaki nokkurra bygginga í bænum Grand Rapids í Michigan og undir hljómaði lagið Ólsen Ólsen. Áhorfendur voru hvattir til að syngja með laginu eða spila með því á hljóðfæri. Hinn tvítugi Bliss var í hálft ár að skipuleggja gjörninginn. Sigur Rós í gjörningi SIGUR RÓS Lagið Ólsen Ólsen með Sigur Rós hljómaði í listgjörningi í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ELDAR ÁSTÞÓRSSON Eldar er einn af skipuleggjendum tónleikaraðarinnar Rétta. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Ófremdarástand er að skap- ast í Kattholti sem Katta- vinafélag Íslands rekur í Stangarhyl. Fólk virðist vera að losa sig við kisurn- ar í kreppunni. „Frá upphafi, í þau átján ár sem Kattholt hefur verið starfrækt, hafa aldrei fleiri kisur verið hérna hjá okkur,“ segir Sigríður Heiðberg, formaður Kattavinafé- lags Íslands sem rekur Kattholt í Stangar hyl. Henni telst til að yfir 160 kisur dveljist nú í Kattholti og telur að kreppan sé fyrir alvöru farin að hafa áhrif á örlög katta um þessar mundir. „Fólk er hreinlega að losa sig við kettina þannig að þetta er bara skelfilegt ástand.“ Kettirnir eiga sér sumir ein- hverja von; stundum finnast eig- endurnir og stundum fá þeir ný heimili. Í sumum tilvikum er þó ekkert annað í stöðunni en að aflífa þá. „Svo er það þannig að þegar þeir koma hingað inn verð- ur svo mikið álag á taugakerfið, varnarkerfið brotnar niður og þeir fá kvef en það er vandamál sem við ráðum hreinlega ekk- ert við eins og staðan er í dag,“ útskýrir Sigríður og því ljóst að sannkallað ófremdarástand er að skapast í Kattholti um þessar mundir. Sigríður segir Kattavinafélagið skuldbundið til að taka móti þess- um heimilislausu dýrum. „Regla númer eitt er að koma þeim heim, númer tvö er að finna fyrir þá ný heimili,“ útskýrir Sigríður, sem kallar eftir harðari reglum um kattarhald. „Oft eru þessi dýr örmerkt en eigendurnir koma ekki til að vitja þeirra.“ - fgg Aldrei fleiri kettir í Kattholti ÓFREMDARÁSTAND Í KATTHOLTI Sigríður Heiðberg, formaður Kattavinafélags Íslands, segir ófremdarástand ríkja í Kattholti. Þangað hafi aldrei komið jafnmargar kisur og á undanförnum vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MÖRGUM LÓGAÐ Sumar kisurnar fá ekki ný heimili og eigendur þeirra finnast ekki. Þá er lítið annað að gera en að lóga þeim. Ný tónleikaplata hljómsveitarinnar Lady & Bird, La ballade of Lady and Bird, er komin út hér á landi. Skífan kom út í Frakklandi fyrir viku og hefur fengið mjög góðar við- tökur. Dúettinn er skipaður Barða Jóhanns- syni og hinni frönsk/ísraelsku Keren Ann Ziedel. Í júní á síðasta ári héldu Barði og Keren Ann tónleika ásamt Sinfóníu- hljómsveit Íslands í samvinnu við Listahátíð Reykjavíkur. Mikil ánægja var með tónleikana, sem Ríkisútvarp- ið hljóðritaði. Í framhaldinu falaðist plötufyrirtækið EMI í Frakklandi eftir réttinum til að gefa þá út um allan heim og eru þeir nú komnir út. Nýtt plötufyrirtæki Senu að nafni Kölski sér um útgáfu þessarar tónleika- plötu á Íslandi. Nýtt frá Lady & Bird LADY AND BIRD Ný plata dúettsins er komin í verslanir hér á landi. Randy Taraborelli, sem ritar ævisögu söngkonunnar Madonnu, segir í viðtali við tímaritið Hello! að söngkonan standi í ströngu við að skipu- leggja brúðkaup sitt og brasil- ísku fyrirsætunnar Jesus. „Hann er svo sætur. Hann er stanslaust að hringja í mig,“ á Madonna að hafa sagt við sína nánustu. Rætist úr þessum orðrómi mun þetta vera þriðja hjónaband Mad- onnu. Hún giftist leikaranum Sean Penn árið 1985 en skildi við hann fjórum árum síðar. Hún giftist leikstjóranum Guy Ritchie árið 2000 en þau skildu í fyrra. Giftist í þriðja sinn Tónleikaröðin Réttir sem var hald- in um síðustu helgi verður aftur í Reykjavík á næsta ári, að sögn Eldars Ástþórssonar, eins af skipu- leggjendum viðburðarins. „Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum og gekk ótrúlega vel. Þetta voru yfir hundrað tónleikar og það var fullt út úr dyrum á vel flestum. Ég held að það sé ljóst af viðbrögðum hátíðarinnar í ár að við munum endurtaka leikinn,“ segir Eldar. „Við ætluðum fyrst að hafa þetta lítið í sniðum en svo vatt þetta upp á sig og það bættust við fleiri stað- ir og fleiri vildu vera með. Þrátt fyrir lítinn fyrirvara og enga styrki sem við gátum reitt okkur á tókst þetta feikivel.“ Iceland Airwaves-tónlistar- hátíðin verður haldin 14. til 18. október og því er afar stutt á milli þessara tveggja svipuðu hátíða. Eldar vill ekki meina að þær skarist enda hafi miðasala á Airwa- ves gengið sérlega vel. „Það virðist vera bæði markaður og stemning fyrir því að hafa fyrirbæri eins og Réttir í september. Eini mínus- inn er að það er stutt á milli hátíð- anna en við sem stöndum að Rétt- um höfðum aldrei áhyggjur af því að þetta myndi bitna á öðrum við- burðum haustsins eða vetrarins, til að mynda Airwaves-hátíðinni. Við vonuðumst til að þetta myndi ganga vel upp bæði fyrir okkur sem höldum Réttir og þá sem halda Airwaves og það tókst.“ Vegna takmarkaðs fjármagns fengu erlendu hljómsveitirnar sem komu fram á Réttum lítið greitt. „Við vorum að hjálpa þeim með gistingu en greiddum ekki mikil laun. Það hefði aldrei gengið upp.“ - fb Réttir verða endur- teknar á næsta ári alltaf í leiðinni! 5 Goða pylsur og 5 Líf pylsubrauð ÓDÝRT ALLA DAGA! 299kr.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.