Fálkinn - 19.01.1940, Page 11
F A L lv 1 X N
11
Éfe
K vikmy ndaf r j et tir
••"tlllii" O -Mllln.-
SVART FLAUEL OG HERMELÍN.
Langar ermar eru aftur komnar í
tísku á samkvæmiskjólum og jafn-
framt þeim kemur líka fram aftur
Berthakraginn svokallaði, sem virð-
ist vera sígildur, ósamt berum öxl-
um.
Hjer er kjóll úr möttu, svörtu
EIGINMAÐUR Á KLAFA.
í ærslaleiknum „Never say die“
frá Paramount leikur Bob Hope
þreytandi nöldursegg, sem heldur
að hann sje bráðfeigur. þó i raun-
inni sje hann fílhraustur. Hann gift-
ist til málamynda ungri stúlku
(Martha Ray) til þess að hjálpa
henni úr kröggum og gera henni
kleift að giftast siðar æskuvini sin-
um (Andy Devine). En hann verður
hræddur um stúlkuna, fyrir mann-
inum hennar. Þessvegria þorir hann
ekki annað en sofa í sama her-
bergi og hann, og til þess, að hann
laumist ekki út á nóttunni, biniiur
hann þá saman á stórutánum.
Keppinautarnir Bob Hope og And\
Divine sjást hjer á myndinni.
NÝR CHARLIE CHAN.
Svíanum Warner Oland hafði tek-
ist að gera heimsfræga persónu úr
kínverska njósnaranum Charlie
Chan. Hann var orðinn vinsæll um
allan lieim, og ekki sísl i Kína. En
svo dó Warner Oland í fyrra. En
Kvikmyndafjelagið „20 Cenlury-Fox“
vildi ekki láta Charlie Chan deyja
og eftir nokkurra mánaða leit fann
það nýjan mann í hlutverkið. Hann
heitir Sidney Toler og er gamal-
kunnur leikari. Fyrsta myndin, er
hann leikur þetta hiutverk í, heitir
„Charlie Chan i Honolulu“ og er
njósnarinn þar að eltast við morð-
ingja, sem hann vitanlega nær i.
STÍLFAGUR KJÓLL.
Hvítur crepesatínkjóll, útsaumað-
ur. Eru hjer að engu höfð hin víðu
pils, sem eru þó í tísku. Ekki dreg-
ur hin ódauðleg'a Bolerotstreyja úr
glæsileik kjólsins.
EINKENNISBÚNINGAR VINSÆLIR.
Leikritið „Brother Rat“, sem leik-
ið var 18 mánuði samfleytt í Nev.
York og síðan um öll Bandarikin,
hefir nú verið kvikmyndað af Warn-
er Bros og leika Priscilla Lane og
Wayne Morris, sem sjóst hjer á
myndinni, aðalhlutverkin. Myndin
gerist á stórum hermannaskóla og
eru þar 700 ungir nemendur. Hafa
rnargar kvikmyndir verið gerðar af
líl'inu í hermannaskólunum, en þessi
kvað vera frábrugðin þeim öllum og
afar brosleg. Einn nemandinn brýt-
ur skólareglugerðina með því, að
gifta sig og þar við bætist, að konan
verður óljett of snemma. En fjelagar
hans hjálpa honum úr klípunni.
llaueli, prýddur hreysikattaskinni.
Hann er mjög smekklegur og stil-
fagur —- næstum því tígulegur.
CLARK GABLE DANSAR.
Leikritið „Idiots Delight" (Yndi
afglapans),, sem sýnt hefir verið
víða á Norðurlöndum i vetur, hefir
verið kvikmyndað og lcika Clark
Gable og Norma Shearer þar saman
i aðalhlutverkum í fyrsta skifti. Hjer
á myndinni eru þau að talast við á
„bak við“ leikstjórann, Ilunt Strom-
berg. Norma Shearer gerir mest að
þvi að leika alvarleg hlutverk og
frægar konur - en lijer er annar
góllinn á henni, sem rússnesku æf-
intýrameynni Irene og hún sýnir
sig meir að segja sem sirkusstúlku
Og Clark Gable hefir haft mikið
fyrir þessari mynd, þó að hann
sjáist ekki nema í 5 sýningum henn-
ar af 107.
UNDARLEG HÁRGREIÐSLA.
Það er víst lítill vafi á því, að fyr-
irmyndin að þessari hárgreiðslu er
sóít til lifstykkjanna, sem nú eru
aftur að komast i tísku.
PASTELBLÁR SAMKVÆMISKJÓLL
ÚR ULLARTAUI.
Það er ekki ótrúlegt, að margar
(lömur fagni þessum langermaða
samkvæmiskjól úr ullartaui — og lít-
ist vel á hann, — það er þó altaf til-
breyting frá öllum dýru silkikjólun-
um. Kjóllinn er úr pastelbláu efni,
liár i hálsinn.