Fálkinn - 01.03.1940, Qupperneq 15
F A L K 1 N N
Chamberlain og frú á morgun-
göngu. Þau hafa tekið með sjer
gasgrímur.
Kafbáíurinn Thetis
Utlendum hlöðum hefir orðið tíð-
rætt um hið sorglega slys enska kaf-
bátsins Thetis, sem varð um hundr-
að manns að hana, og hafa m. a.
sagt ýmislegt frá kringumstæðum
eftirlifandi ættingja, sem hiðu milli
vonar og ótta þangað til vonlaust
var orðið um björgun. Meira en
helmingur þeirra, sem fórust voru
'giftir menn. Flestar mæðurnar standa
uppi með stóran barnahóp og fjór-
ar þeirra voru komnar að faili þeg-
slysið varð.
Kona W. T. Holes kyndara beið
iengi eftir manninum sínum. Hún
hafði eldað sjerstaklega góðan mið-
degisverð, því að daginn sem slysið
varð, var eitt ár iiðið frá brúðkaupi
hjónaúna. Nú situr hún eftir með
mánaðargamalt barn.
Þegar vjelamaðurinn, Ronald Ty-
ler, kvaddi húsinóður sína, áður en
hann fór í tilraunaferðina, hafði
hann orð á því, að kafbátar væru
eins Öruggir og flugvjeiar, llann ætl-
aði að gifta sig eftir átta vikur og
var búinn að bjóða i veisluna. En
ekki hefir hann verið alveg öruggur
um „Thetis“ því að liann -gerði arf-
leiðsluskrá kvöldið áður en hann
fór i ferðina.
*Ein ekkjan heitir frú Kennedy og
á heima í Silvertown. Maðurinn
hennar, sem var kyndari, fórst á
„Thetis“, en liefir tvívegis áður bjarg
ast úr miklum háska. Annað skiftið
var hann að gera tilraun með Davis-
öndunáráhald og var þá kominn að
köfnun. í liitt skiftið var hann í kaf-
bát, sem ekki komst upp fyr en eft-
ir tveggja tíma tilraunir.
S. W. Arnold, kyndarinn, sem
komst lífs af úr kafbátnum, hefir
bjargast fjórum sinnum áður úr lífs-
háska. Þegar liann var barn kvikn-
aði í fötum lians, nokkrum árum
síðar var honum bjargað frá drukn-
un í höfninni í Portsmouth og tví-
vegis hefir hann verið fluttur á spit-
ala eftir bifreiðaslys.
A. R. Glenn vjelstjóri, sem drukn-
aði á Thetis var iengi á kafbátnum
U 2, sem hvarf með 08 manns um
borð og hefir aldrei spurst til síðan.
Hann skráðist af þeim kafbát áður
en hann fór í síðustu ferðina.
Lloyd kapteinn hjelt brúðkaup sitl
fyrir einu ári með mikitli viðhöfn
og voru yfir þúsund gestir i veisl-
unni. Var mikið um það brúðkaup
talað.
— Einu sinni lofaðir þú mjer þvi,
að lesa allar óskir mínar út úr aug-
unum á mjer.
— Já, en jeg vissi ekki þá, að ásl-
in blindar mann.
Perlufesti Maríu Antoinette.
Um jjessar mundir er verið að
reyna að bjarga gulli og gimsteinum
úr skipinu „Telemaque“, sem sökk
fyrir nærri 150 árum við Signuósa.
Það hafði ineðferðis 700 miljón gull-
franka virði í gulli og dýrgripum,
svo að eftir miklu er að slægjast.
En ef fjársjóðirnir finnast getur það
líka orðið til þess að staðfesta það
sanna um málefni, sem í síðustu
hálfa aðra öld hefir verið ráðgáta.
Það mál veit að Maríu Antoinette
drotningu og skáldin, alt frá Goethe
saintíðarmánni hennar til Sacha
Guitry hafa gert það að yrkisefni.
Þett er fjeglæframál, sem snertir
drotninguna, og fjársjóðir „Telerna-
que“ geta sýnt hvort liún var sek
eða sýkn.
— Svo var mál með vexti, að æl'-
intýradrósin, la Motte greifynja hafði
talið Rohen kardínála trú um, að
liann gæti komið sjer í mjúkinn hjá
drotningunni, ef hann gæfi henni
perlufesti, sem kostaði 1.600.000 gult
franka. Kardínálinn beit á agnið.
Gullsmiðurinn, sem átti að færa
drotningunni festina, sór og sárt við
iagði, að hún hefði tekið við því
sjálf, en drotningin þverneitaði því.
Lenti i málaferlum, er smiðurinn
krafðist borgunarinnar af kardínál-
anum, og sýknaði þingið, sem þá
hjelt 'fundi sína í La Bastille, kardin-
álann, en dæmdi La Motte greifafrú
til hýðingar og brennimerkingar.
Var liún síðan sett í þrælkun í
Salpetriére.
En þrátt fyrir dóminn taldi almúg-
inn drotninguna seka og þetta mál
átti sinn þátt i þvi, að flýta fyrir
byltingunni og auka hatrið til drotn-
ingarinnar. En hið sanna í mátinu
vitnaðist aldrei, hvorki þegar greifa-
frúin var hýdd og pínd til sagna,
nje þegar Marie Antoinette var leidd
á höggstokkinn. En því telja menn,
að málið verði upplýst í sambandi
við „Telmaque", að það hefir komið
á daginn, að aðalmaðurinn í fje-
glæfrum þessum og samherji La
Motte var ítalski glæframaðurinn
Cagliostro. Æfi hans er heilt æfintýri
og samfeld svikakeðja.
Hann byrjaði ktæki sína i fæðing-
arstað sínum, Palermo, en jjar komst
upp um hann og hann lenti í fang-
etsi. Siðan flæktist hann til Egypta-
lands og Arabíu og tærði jiar lækn-
íngar og svokallaðar dulmættislistir.
Með þetta veganesti fór liann til Róm
og settist j)ar að sem gullgerðarmað-
ur og læknir, en ftuttist svo til París
og græddi þar stórfje og náði áhrif-
um við liirðina og seldi hirðmönn-
um duft til að framleiða gull úr og
töfradrykki, sem gátu breytl gretl-
um kerlingarherfum i fállegar stúlk-
ur. En hann lagði fæð á drotning-
una og gerði henni alt til bölvunar,
sem hann gat. Og það er sagt, að
hann hafi náð perlufestinni á jiann
hátt, að hann klæddi eina liirð-
meyna eins og drotninguna og tjel
hana taka við festinni af gullsmiðn-
um. Skömmu siðar l'lýði hann land,
eftir að skelfingarnar hófust í Frakk
landi. Öllum fjársjóðum sínum kom
hann fyrir um borð í „Telemaque“.
Ef hálsfesti finst nú þar, þá sannar
jjað, áð jjað er hann, sem hefir stol-
ið Jjví, i blóra við Marie Antoinette
Fyrsta tilraunin til að ná upp
fjársjóðum „Telmaque*' var gerð
1842. Síðan er fimm metra jjykt lag
leir og leðju komið yfir skipið. Það
tókst þá að koma festum undir skip-
ið, en þær slitnuðu jjegar reynt var
að lyfta Ijví. Síðan hafa verið gerðar
margar árangurslausar tilruáunir. En
nú eru tæki til- þessa stórum full-
komnari en áður, og einnig liafa
straumar breyst, jjar sem skipið
liggur, svo að hægra er að athafna
sig. Þessvegna eru menn vongóðir
nú og búast við, að fjársjóðirnir
verði komnir upp á þurt eftir nokkr-
ar vikur.
• ,. ' :
Húseignir.
Hefi jafnan til sölu fjölda af húseignum í Reykjavík,
af öllum stærðum og gerðum.
HúsaskÍfti geta iðulega komið til greina.
Kaupið ekki eða seljið húseignir, án þess að hafa fyrsl
talað við mig.
Lárus Jóhannesson
hæstarjettarmálaflutningsmaður.
Suðurgötu 4. Símar 4314 og 3294.
■IIIIIIIIIIIBIIIIBIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIIIIIBIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIb
FYRIRLIGGJANDl: 1
----------1----------- I
SKÍÐABUXUR SKÍBAPEYSUR
■ i
SKÍBASKÖR
■
VerksmiðjnAtsalan fiefjun - Iðunn f
Aðalstræti. Sími 2838, 2
B
■IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIB
Gotupokar
Fiskumbúðir
Fyririiggjandi
ÓLAFUR GÍSLASON'c)
REYKJAVIK
Simi 1370
!