Fálkinn - 03.05.1940, Síða 5
F A L K I N N
;>
*>
Ung brúðhjón.
og hengir hana í trje fyrir utan kol'a
stráksins til merkis um, að nú sje
hann löggiltur bjarnarveiðiinaður og
njóti fullra rjettinda seni slikur. Og
siðan ráðast allir a‘ð sláturpottinuni
eins og villidýr og veiða feitustu bit-
ana upp með skítugum fingrununi.
Sólin er hnigin, en stálgrá ský ber
við kveldroðann. Fuglarnir eru þagn-
aðir og skuggar breiðasl um dalinn.
Á hlaðinu fyrir framan einn kofann
brennur stórt ból og lýsir skurðgoð-
unum, sem standá í kring, reykinn
ieggur hlágráan upp úr kjarrinu og
blandast holtaþokunni, sem iagst hef-
ir eins og slæða yfir dalinn. Innan
úr kofanum heyrist trumbusláttur,
sem fer hækkandi og nú safnast flest-
ir karlmenn í þorpinu saman á lilað-
inu og allir eru í hátíðabúningi, með
skotthúfur, sem skreýttar eru með
íkornarófum, en í tilbærilegri fjar
iægð situr kvenfólkið í hnapp og eru
sumar með hvítvoðunga á handleggn
um og á brjósti. Trumbuslátturinn
þagnar og allir mæna á kofann, þvi
að nú kemur særingamaður
„Sagdi Samani“ — út. Hann er lítill
og skorpinn, andlitið hrukkótt og
bólugrafið. Hann er hvítur fyrir hær-
um, en hárið og skeggið ótrúlega skít-
ugt. Hann er með skotthúfu i mislitri
skyrtu og víðum brókum, sem alsett-
ar eru ikornaskottum og fjöðrum,
en í beltinu að aftan er fjöldi af
járnþynnum, sem þenjast út eins og
htævængúr þegar hann fer að dansa.
Snæri er fest í beltið og heldur son-
ur hans í það, svo að særingamað-
urinii verði ekki uppnuminn í dans-
inum. Nú slær hann á trumhu og
sparkar og stappar, setur sig í fá-
ránlegar stellingar til þess að ná
valdi á illu öndunum, reigir sig afl-
ur. Nú er honum rjett skál með á-
fengi, og hann þambar hana í botn
og fleygir lienni frá sjer. Svo dans-
ar liann og djöflast, eins og vitlaus
maður.
Att í einu neinur hann staðar, lít-
ur til himins og nötrar eins og
hrísla, veinar og vælir, en gul froða
kemur út um bæði munnvikin og
lekur niður á höku. Svo steypist
hann á grúfu og liggur eins og dauð-
ur.
Við gengum þegjandi heim að
kofa Gjalondika og Kimunka bjarna-
bani varð samferða. Hann hafði lof-
að að segja okkur söguna af upp-
runa Udeli-manna. Það var komið
niðamyrkur, en við settumsl við bát-
ið og hlustuðum á söguna:
Fyrir mörgum, mörgum árum
átti maður lieiina lijerna í skógun-
um, sem hjet Jegda, ásamt systur
sinni. Annað fólk var ekki hjer um
slóðir. Einn daginn sagði systirin
við Jegda: „Farðu og fáðu þjer
konu!“ Jegda fór, og' eftir mörg sól-
artög kom liann loksins að kofa. í
kofanum sat lcona, allsnakin en
hún var alveg eins og systir hans.
„Ert þú systir mín?“ spurði Jegda.
„Nei“, svaraði hún. Þá fór Jegda
heim og sagði systúr sinni hvað á
dagana hefði drifið, en hún sagði,
að þetta hefði verið ókunnug kona,
því að allar konur væru eins. Jegda
fór á nýján leik að leita konunnar,
en systirin sagðist lika ætla í ferða-
lag til að leita sjer að manni, en
fór i mótstæða átt við hann. En hún
sneri við og stytti sjer leið og komst
i kofann, sem bróðir hennar hafði
fundið. Þar fór hún úr fötunum og
settist alsnakin á fletið. Jegda kom
og tók hana sjer fyrir konu, og fljót-
ið rann í heilt ár og þá fæddist þeim
sonur og dóttir. Einn vetrardag er
Jegda var á veiðum var drengurinn
að leika sjer fyrir utan bæinn og
særði /vua-fuglinn með ör sinni.
Fuglinn spurði: „Hversv.egna særir
þú mig?“ Drengurinn svaraði: ,,Af
því að jeg er maður en þú f'ugl,“ en
Kua svaraði: „Rangt er það, ef þú
heldur þig mann, því að þú ert af-
kvæmi bróður og systur og jiess-
vegna dýr eins og jeg." Drengurinn
sí gði móður sinni hvað fuglinn hafði
sagt. Móðirin varð lirædd og lagði
ríkt á við drenginn að minnast ekki
á það við föður sinn, því að annars
mundi hann fleygja þ’eim báðum i
ána.
Þegar Jegda kom heim fór dreng-
urinn að spyrja föður sinn spjörun-
um úr, en móðir hans ávítaði hann
og sagði honum að þegja. Um nótt-
ina spurði Jegda son sinn og sá
nú, að systir hans hafði blekt hann.
Morguninn eftir gekk hann út i skóg
og fram á hengiflug. Þar helti hann
vatni á snjóinn, svo að hann varð
háll eins og is og kom ör fyrir í
runnanum, þannig að hún hlaul að
hitta hvern þann, sem snerti runn-
ann. Svo fór hann heim og sagði við
systur sína: „Jeg hefi felt dýr, far
þú og rektu slóðá minn upp á kletta-
Frh. á bls. l'i.
Udeh-menn fyrir utan kóf.a sœringamannsins.